Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1983, Blaðsíða 8
8"
DV'. FIMMTUDAGUE 24. NOVEMBER1983.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Skipta á 6 fsraelum
og5000 skæruliðum
komnir á kreik
Skæruliðar Kampútsíu hafa náð á
sitt vald tveim mikilvægum svæðum í
vesturhluta landsins, samkvæmt því
sem herinn í Thailandi hefur orðið á-
skynja um.
Rauðu khmerarnir hafa látið
töluvert að sér kveða að nýju i
Battambanf'-héraði mcöan á
regntímanum hefur staðið, en honum
er nú rétt lokið. — Fyrir regntímann
hafði hernámslið Víetnama hrakið
skæruliða mjög, og er búist við að það
hefji gagnsókn að nýju núna eftir að
regntímanum er lokið.
En eins og stendur eru skæruliðar
sagðir hafa f jalllendiö Phnom Malai og
Phnom Mak Houen á valdi sínu.
GETA STJÓRNAÐ
HERÞOTUM MEÐ
RÖDDINNIEINNI
Bandarískar orrustuþotur eins og
Phantom-þotumar og þá sérstaklega
F—16 þykja mikið tækniundur meðah
flugfróðra, en nú er tæknin svo langt
komin aö flugmenn þeirra geta
stjórnað þeim meö röddinni.
Skýrt hefur veriö frá því að í júní í
sumar hafi í fyrsta skipti verið flogið
F—16 þotu sem flugmaðurinn
stjórnaði með því að tala til stjóm-
tækjanna. Tilraunin er sögð hafa
tekist vel en hún var framkvæmd í
Ed ward-f lugstööinni í Kalifomíu.
I októberblaði tímaritsins Astron-
autics & Aeronautics skýrir Frank
W. Smead frá þessari tilraun.
Það munu vera yfir þrjú hundruö
malar, hnappar, handföng og stýri-
pinnar sem flugmennirnir þurfa að
annast í svona flugvél og var þeim
engin vanþörf orðin á fleiri höndum
og augum. En þessi nýja tækni á að
auðvelda þeim stjórnina og veita
þeim meira ráðrúm til að svipast
um.
Israel ætlar að láta lausa yfir 5000
fanga Palestínuaraba í skiptum fyrir
sex Israclsmenn, sem eru á valdi PIjO.
Fangaskiptin eru þegar byrjuð.
tsraclsmcnnirnir sex voru í haldi í
Trípolí en voru sendir skipalciðina í
morgun af stað. — Israel cr þegar búið
að sleppa 100 inönnum úr Ansar-fanga-
búðunum í Suður-Libanon. Með þá var
flogið til Alsír.
Síðar í dag verður öllum hinum föng-
unum í Ansar-búðunum sleppt en þeir
munu vera um 4000 eftir. Eins stendur
til að sleppa föngum sem Israelsmenn
hafa í bæjunum Sídon og Nabatiyeh í
Iábanon.
Scxmenningarnir ísraelsku voru
teknir til fanga í innrás Israels í
Iábanon í fyrra. Heima í Israel hefur
veriö kvíöi um afdrif þeirra vegna bar-
daganna í Trípólí. Fimm aðrir Israels-
menn, sem eru fangar Sýrlendinga og
uppreisnarskæruliöa, voru ekki inni í
þcssum samningum.
Um 300 Sýrlendingar eru fangar
Israels.
Rauðu khmerarnir
Hætta bardögum
i bili við Trípolí
— en Arafat hef ur f rest t il laugardags til þess
Milliganga araba hefur oröiö til
þess að hlé hefur veriö gert á bardög-
um skæruliöa Palestínuaraba við
Trípolí. Hvorugur bardagaaðilinn vill
þó aftaka að til úrslita veröi látið
draga.
Aðstoðarmenn Arafats, leiðtoga
PLO, sögðu í gær aö þeir hefðu fallist á
nokkrar tillögur sem menn höfðu kom-
ið sér saman um í Damaskus. I þeim er
gert ráð fyrir vopnahléi og brottför
skæruliðanna frá þessum landshluta.
Sumir talsmanna Arafats telja þó
að þetta hlé á bardögunum sé aðeins
lognið á undan storminum því að upp-
reisnarskæruliðar hafi ákveðiö að ráð-
ast inniborgina.
Ahmed Jibril, foringi umsátursliös-
ins, hefur gefið Arafat frest fram á
laugardag til þess að hafa sig á brott
frá Trípolí, „annars ákveðum viö sjálf-
ir með hvaða hætti við komum inn í
Trípolí”.
Uppreisnannenn sem risu upp gegn
forystu Arafats í PLO fyrir hálfu ári
saka hann og fleiri háttsettja foringja
um spillingu og fráhvörf við baráttuna
gegn Israel. Telja þeir Arafat hafa selt
sig Bandaríkjunum. — Jibril og fleiri
vilja draga Arafat fyrir byltingardóm-
stól.
Bardagar PLO-skæruliðanna við
Trípolí þykja hafa komið harðast niður
á óbreyttum borgurum, konum og
börnum og ein móðir sést hér forða sér
undan orrahríðinni með barn sitt.
að verða á brott
A talsmönnum Arafats var helst að
heyra í gærkvöldi að Arafat mundi
yfirgefa Trípolí með mönnum sínum
samkvæmt samkomulaginu en þó ekki
fyrr en hann hefði tryggingu fyrir að f á
að fara óáreittur.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
mæltist einróma til þess í gærkvöldi aö
vopnahlé yrði gert í N-Líbanon og friö-
söm lausn fengin á ágreiningnum.
AndreiGromyko, utanrikisráðherra
Sovétrikjanna, skoraði á bardagaaðila
að halda einingu innan PLO og hét því
að Kremlstjórnin mundi gera hvað
sem væri til þess að stuöla aö því.
Arafat, leiðtogi PLO, á lcið milli vígstöðvanna cn hann hefur frcst til laugardags
að verða á brott úr Trípolí, áður en upprcisnarmcnn láta til skarar skríða með
fyrirsjáanlcgum óhugnanlcgum afleiðingum fyrir borgarbúa Trípolí.
Hlýnandi veðurfar
vekur óvissu um
framtíð jarðarbúa
Sérfræðingar í vcðurfarinu eru
hættir að hafa áhyggjur af nýrri ís-
öld en eru meira með hugann
bundnir við hlýnandi gufuhvolf
jarðar. Ymsar rannsóknir þykja
benda til þcss að hlýnandi fari á jörð-
inni og að þaö muni halda áfram að
hlýna næstu þúsund árin eða svo.
Umhverfisverndarráð Bandaríkj-
anna spáir þvi aö hitinn í heimi
okkar jarðarbúa muni hækka um 2
gráður á Celsíus fyrir áriö 2030 og
um 5 gráöur á Celsíus fyrir árið 2100.
Aðrir vísindamenn hafa orðið til þess
að spá því að hitinn muni í lok næstu
aldar hafa hækkaö citthvað á milli
l,5til4,5gráða.
Þetta á sínar orsakir að rckja til
koltvísýringsins í andrúmsloftinu
(sem kcmur mikið með útblæstri
véla) en það fer vaxandi í hlutfalli.
Fyrirbrigðið er kallað „gróöurhúsa-
fyrirbrigðið”.
Sérfræðúigar eru nokkuö vissir í
sinni sök um hækkandi hitastig, en
það er hitt, sem enginn veit meö
vissu um eða getur séö abnennilega
fyrir í dag, hverjar afleiðingar það
getur haft fyrir líf á jörðinni ef hitinn
hækkar. Meðal vísindamanna gerast
þær raddir æ háværari sem mælast
til þess að auknu fé verði veitt til
rannsókna á þessu atriði.
Það eru oröin mörg ár síöan
gróðurhúsa-fyrirbrigðinu skaut upp í
veðurfarsumræðum en á seinni
árunum hafa æ fleiri fyrri efa-
semdarmenn látið sannfærast um að
það sé raunverulega rétt að hitastig í
gufuhvolfi jarðar stefni upp á viö.
En svo flókin eru lögmál veðurs og
veöurfars að enginn er viss hvort t.d.
hækkandi hiti muni leiða til meiri eöa
minni úrkomu í Evrópu, sem mundi
auövitað hafa gífurleg áhrif á land-
búnaö og margt fleira. Efnahagslíf
hcillar heimsálfu gæti gjörbreyst.
Aþreifanlegust mundu áhrifin
veröa á heimskautunum. Af
einhverjum ástæðum mundi hitinn
breytast meira þar ef þessi þróun
heldur áfram og sjá allir fyrir að
iniklu munar hvort hitinn er 2 gráður
eða 10, sem mundi bræða ísinn. Fyrst
rekísinn og síðan jöklana.