Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1983, Qupperneq 11
TTTwl
DV. FIMMTUDAGUR 24. NOVEMBER1983.
11
VIÐTAUÐ:
, Tómstundirnar eru ekki margar en þann fritima sem óg hef nýti ég
með fjöiskyidunni," segir Margrét Frimannsdóttir oddviti, kennari og
gjaidkeri Alþýðubandalagsins.
„Breytir ekki
líðan minni”
— segir Margrét Frímannsdóttir,
nýkjörinn gjaldkeri Alþýðubandalagsins
Margrét Frímannsdóttir oddviti á
Stokkseyri var kjörin gjaldkeri
Alþýöubandalagsins á nýafstöðnum
landsfundi flokksins. Margrét hlaut
yfirgnæfandi meirihluta atkvæöa í
kosningu til embættisins og hún var
spurö hvernig henni liði eftir svona
stóransigur.”
„Osköp svipað og áöur,” sagöi
hún. „Þetta breytir ekki líðan minni
ánokkum hátt.”
— Líturöu á kosningu þína sem
persónulegan sigur þinn eða sem
sigur fyrir konur innan Alþýðu-
bandalagsins?
„Ég held aö þetta sé stuðningur viö
baráttu kvenna almennt.”
Og aðspurð hvort þetta væri fyrsta
skref hennar til frama í flokknum
eöa hvort hún ætlaði að láta þarna
staðar numið, sagðist Margrét engar
áætlanir hafa þar um.
Margrét gekk í Alþýðubandalags-
félag Selfoss fyrir 10 árum en hóf
ekki að starfa af krafti fyrr en fyrir
um 5 árum. I flokkinn gekk hún m.a.
til að leggja lið baráttunni fyrir
breyttu þjóðfélagi.
Margrét settist sem varamaður á
þing í fyrsta skipti í haust. Þar sat
hún í hálfan mánuð og leist bara vel
á. I framhaldi af því var hún spurð
hvort hún teldi það eftirsóknarvert
að vera alþingismaður.
„Þaö er eftirsóknarvert ef maður
þarf að koma ákveðnum málum á
framfæri,” sagði hún.
Margrét er fædd og uppalin á
Stokkseyri og þar hefur hún alla tíð
búið. Auk oddvitastarfans, kennir
hún 11 ára bömum í Stokkseyrar-
skóla í vetur en áður starfaði hún í
frystihúsinu. Hún var spurð hvernig
henni tækist að sameina allt þetta.
„Það tekst vel meö hjálp fjölskyld-
unnar.”
— Attu þér eitthvert sérstakt tóm-
stundagaman?
„Tómstundimar eru nú ekki
margar en þann frítíma sem ég hef
nýti ég meö fjölskyldunni,” sagði
Margrét.
Margrét Frímannsdóttir er gift
Baldri Birgissyni skipstjóra og eiga
þau tvö böm, 11 og 9 ára.
-GB
Endurtryggingafélag Samvinnutrygginga
Skuldbindingar koma
fram á mörgum árum
„Flana ekki að neinu/’ segir Matthías Bjarnason
„Það kemur ekki til að Endurtrygg-
ingafélag Samvinnutrygginga verði
svipt starfsleyfi, eins og Trygginga-
eftirlitiö hefur lagt til, því að þaö hefur
þegar skilað inn sínu starfsleyfi,”
sagði Matthías Bjarnason trygginga-
málaráðherra í viðtali við DV.
Endurtryggingafélag Samvinnu-
trygginga hefur nú hætt starfsemi
sinni vegna fjárhagsörðugleika. Er
höfuðstóll félagsins neikvæður um 10
milljónir króna. Tryggingaeftirlitið
hefur farið þess á leit við Matthías
Bjarnason tryggingamálaráðherra aö
skipuð verði skilastjóm, sem fari meö
mál félagsins, en hún tekur m.a.
ákvörðun um hvort það skuli tekiö til
gjaldþrotaskipta.
„Félagið mun ekki taka við frekari
tryggingum,” sagöi tryggingamála-
ráðherra, „og er því hætt starfsemi
sinni. Hins vegar hvíla á því margvís-
legar skuldbindingar sem ekki koma í
ljós nema á mörgum árum. Eg hef ekki
tekið ákvörðun um hvort skipuö verður
skilastjórn í máli þess. Eg er nú aö láta
kanna ýmis lögfræðileg atriði þar að
lútandi og þaö tekur tíma. En þetta er
vandasamt mál og erfitt og ég mun
ekkiflanaaðneinu.” -JSS
Goði le§§ur jfgð bSn'*KN^I
, „joaurn «» * Veiðipyka
* * s-™**
Kindohakk * Gris°' medisterpy^
ílrljeinaou' ry
gott ítœfirgódiun
VINNUSTAÐIIMN
UPPÞVOTTAVÉLAR Á AÐEINS KR. 3.300,-
Allt efni til raflagna og lýsingar, Ijósaperur í miklu úrvali,
aðventuljós, jólaseríur úti og inni og m.m.fl.
vers/un — verktakar
Rafviðgerðir hf.
Blönduhlíð 2 sími 83901.
Á HEIMILIÐ OG 1