Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1983, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1983, Blaðsíða 12
12 1 Frjálst.óháÖ dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. ■ ' | Stjórnarformaðurogútgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóriogútgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoóarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON ogÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P.STEINSSON. Ritstjórn: SiDUMÚLA 12—14. SÍMI 86A11. Auglýsingar: SÍDUMÚLA33. SÍMI 27022. Afgreiðsla,áskriftir, smáaugtýsingar,skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI27022. Sími ritsljórnar: 86611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerö: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. P rentun: Árvakurhf., Skeifunni 19. Áskriftarverð á mánuði 250 kr. Verð í lausasölu 22 kr. Helgarblað 25 kr. Þjóðin kjósi um bjór Sum mál eru þess eðlis, aö fólk hefur afstöðu til þeirra, sem er meira eða minna óháð öðrum skoöunum þess, til dæmis á stjórnmálum. Gott dæmi um þetta eru viðhorf manna til þess, hvort leyfa skuli sölu á venjulegum, þ.e.a.s. áfengum bjór. Erfitt er að hugsa sér, að Sjálfstæöisflokkurinn eða Alþýðubandalagið, svo dæmi séu nefnd, geti haft flokks- lega skoðun á slíku máli. Innan allra flokka hljóta að vera þverstæð og ósættanleg sjónarmið í máli af þessu tagi. Stjórnmálaflokkarnir hafa á Alþingi fulltrúafjölda í hlutfalli við stuðning kjósenda í síöustu kosningum. Þannig endurspeglar Alþingi almenn stjórnmálaviðhorf landsmanna, en ekki viðhorf þeirra til venjulegs bjórs. Ef slík þverpólitísk mál eru tiltölulega einföld í sniðum, ef almenningur á tiltölulega auðvelt með að svara þeim með einföldu jái eöa neii, — þá eru þau kjörið viðfangs- efni í þjóðaratkvæöagreiðslu til hliðar almennum kosningum. íslendingar eiga áreiðanlega auðvelt með að svara, hvort þeir vilji eða vilji ekki, að sala á áfengum bjór verði leyfð í búöum áfengisverzlunarinnar og á vín- veitingastöðum. Þetta er einföld spurning um já eða nei. Magnús H. Magnússon alþingismaður hefur ásamt nokkrum þingmönnum úr öðrum flokkum lagt fram til- lögu um, að Alþingi feli ríkisstjórninni að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um bjórinn samtímis næstu al- mennum kosningum. Þetta er þörf tillaga um eðlilega meðferð á viðkvæmu deilumáli, sem Alþingi getur ekki leyst sjálft, af því að það er mannað á öðrum forsendum, pólitískum. Hvað er betra en að vísa slíku máli til þjóðarinnar í heild? Auk þess er bjórmáliö kjörið tækifæri til að dusta rykið af heimild til þjóöaratkvæðagreiðslu, sem hefur alltof lítiö verið notuö, þótt ýmis þverpólitísk mál hafi komið til háværrar umræðu bæði innan þings og utan. Þjóðaratkvæðagreiösla um þverpólitísk mál getur oröiö mikilvægur þáttur í efldu lýðræði í landinu. Það hlýtur að draga úr spennu vanmáttar, ef fólk fær að taka þátt í ákvörðunum, hver svo sem úrslitin verða að lokum. Þjóðaratkvæðagreiösla er ekki dýrt lýðræði, ef hún fer fram samhliða annaðhvort alþingiskosningum eða byggðakosningum. Raunar væri tiltölulega ódýrt aö kjósa um ýmis slík sérmál samhliða venjulegum kosningum. Um þessar mundir benda líkur til, að meirihluti þing- manna sé annaðhvort beinlínis hlynntur sölu á venjulegu öli eða hlynntur þjóöaratkvæðagreiðslu um málið. Hinir eru færri, sem hvorki vilja bjór né þjóðaratkvæöa- greiðslu. Að vísu er ekki vitaö, hvernig atkvæði munu falla að lokum, þegar búið er að rökræða og rífast um málið á Al- þingi og öðrum opinberum vettvangi. Má búast við heift- úðugri umræðu, ef þjóðkunnir bjórhatarar verða sjálfum sér líkir. Bent verður á, að skoðanakannanir sýni stuðning tveggja þriðju hluta landsmanna við bjórinn gegn einum þriðja hluta. Sagt verður, að þingmenn séu í raun að sam- þykkja þjóðarfyllirí með því einu að samþykkja þjóðar- atkvæðagreiðslu. Þingmönnum ber að standa af sér þá orrahríð. Þeim ber að vísa bjórmálinu till þjóðarinnar allrar. Á þann hátt einan fæst brýn niðurstaða í ósættanlegu deilumáli, sem gengur eins og fleinn gegnum alla stjórnmálaflokka landsins. JónasKristjánsson. DV. FIMMTUDAGUR 24. NOVEMBER1983. Upplausn á vinstri kanti? Fyrir nokkrum vikum samþykkti þing Verkamannasambands Islands úti í Vestmannaeyjum skorinoröa ályktun þar sem þess var krafist aö lágmarkslaun í landinu yröu 15 þús- und krónur. Mátti skilja þessa sam- þykkt svo aö þingið teldi eölilegt aö þær launahækkanir sem til þessa þyrftu skyldu ekki ganga upp allan launastigann, þannig að í fyrsta skipti yröi gripið til raunverulegrar launajöfnunar. Undir þessa ályktun tóku fulltrúar Bandalags starfs- manna ríkis og bæja og forsvars- menn fleiri sambanda, sem hafa stóra hópa láglaunafólks innan sinna vébanda. 1 grein, sem ég skrifaði skömmu síðar, sagöi ég aö nú skyldu menn taka eftir hvernig heildarsamtök launafólks brygöust viö þessu; hvort þaö myndi nú loksins gerast aö mál- staöur láglaunafólks nyti skilnings á boröi ekki síöur en í oröi. Jafnframt lét ég í ljósi efasemdir um að þaö myndi gerast, í ljósi sögulegra staö- reynda, því sannleikurmn er sá aö þessi skilningur hefur aldrei dugað nema aö samningaboröinu, við þaö hefur hann alltaf af einhverjum dularfullum ástæöumgufaðupp. Á enn að svíkja? Satt best aö segja bendir flest til þess aö enn eigi aö svíkja láglauna- fólkiö. Strax eftir samþykkt Verka- mannasambandsþingsins létu for- svarsmenn annarra launþegasam- taka í ljósi þaö álit sitt í einkasamtöl- um aö þaö myndi meira aö segja stranda innan Verkamannasam- bandsins aö þessi launajöfnuöur kæmist á. Innan þess væru mjög sterkir aöilar sem myndu berjast meö kjafti og klóm gegn honum. Kjallari á fimmtudegi Magnús Bjamf reðsson grunneiningin sé lágt tímakaup verkamannsins, og þaö gætir þess vandlega aö ekki mjókki biliö milli þess og þeirra sem vinna eftir um- sömdum launatöxtum eingöngu. Aörir bentu á aö verkalýðsforyst- unni myndi þykja býsna hart ef slík launajöfnun kæmist á í tíö núverandi ríkisstjómar. Þeir flokkar, sem eink- um nudda sér utan í launþega, A- flokkamir svokölluöu, hafa jafnan þóst bera hag láglaunafólks fyrir brjósti, þótt þeir í raun hafi stuölað aö auknu launamisrétti í landinu. Þeim þætti þaö því ekki gott ef ríkis- stjóm sem þeir koma hvergi nærri stuðlaöi aö raunveralegri launajöfn- un. Nú er fariö aö tala um skamm- tímasamninga, þar sem launamis- rétti veröi eitthvaö leiðrétt. Vissu- lega má hugsa sér þaö. En gæta skyldu menn þess aö þar kann fiskur að liggja undir steini. Það er gamal- kunn aöferö verkalýðsforystunnar aö semja fyrst fyrir láglaunafólkið og gera síðan betri samninga fyrir þá hærra launuöu á eftir. Sú kann aö vera ætlunin nú. Menn geta þóst ætla aö leiðrétta misræmiö en ráöa svo bara ekkert við hina, sem ná betri samningum. Þarna þarf aö búa tryggilega um hnúta. Þetta fólk, sem einu nafni er gjarna kallaö „þjónustufólkiö” og vinnur eftir afkastahvetjandi launakerfi, hefur mun meiri tekjur en þetta, þótt Prófað á BSRB? Forsætisráöherra hefur ítrekaö lýst yfir því aö hann telji aö nota beri þaö svigrúm sem nú gefst, þótt lítiö sé, til aö bæta kjör hinna lægst laun- Upp með Fisk- vinnsluskólann Fiskvinnsluskólinn, hinn eini sinnar tegundar hér á landi, hefur nú starfaö í rúm 12 ár. Fyrstu tvö árin var hann staðsettur í húsakynnum Rannsóknastofnana sjávarútvegsins aö Skúlagötu 4 í Reykjavík en síöast- liðin 10 ár hefur skólinn veriö starf- ræktur í Hafnarfirði. Hann er nú til húsa á þremur stööum í bænum og alls staöar í leiguhúsnæöi. Tilefni þessara skrifa er þaö aö vekja at- hygli almennings og ráðamanna á húsnæöisvandræöum Fiskvinnslu- skólans. Loksins eftir aö skólinn haföi starfaö í 10 ár, eöa 1981, var tekin ákvöröun um aö byggja nýjan Fiskvinnsluskóla. Skólinn átti frá- tekna lóö í Hafnarfirði og var nú hafist handa viö hönnun og undirbún- ing nýs skólahúsnæðis. Þáverandi fjárveitinganefnd veitti fé til allrar undirbúningsvinnu. Undirbúnings- vinnu miöaöi aö vísu hægt en nú í vor ' var allt tilbúiö og átti aðeins eftir aö fá grænt ljós frá samstarfsnefnd um opinberar byggingar og bjóöa fyrsta hluta verksins út. I fyrsta áfanga átti aö koma upp fokheldu verknáms- húsi. Þetta græna ljós kviknaði aldrei og skýringin fékkst þegar f jár- lög sáu dagsins ljós. I þeim var ekki Lárus Björnsson aö finna eina krónu til nýbyggingar skólans. Sem sagt, þetta mál lenti undir hnífnum fræga, eins og svo mörg önnur mál nú í ár. Þó á skólinn nokkrar milljónir í sjóöi til aö nota í þetta húsnæöi en leyfi til aö hefja framkvæmdir fæst ekki. Nú er þaö vitanlega svo aö þaö verður aö meta hverju sinni hvaöa skólahúsnæði á aö byggja og hvaöa ekki, hvaöa skólar eru mikilvægari en aörir og hafa því forgang o.s.frv. Ekki veit ég þó hvaö þeir vísu menn sem þessu ráöa leggja til grund- vallar þegar peningum er útdeilt til skólabygginga en mér finnst þaö mat óréttlátt. Er þaö nema von aö nem- endur og starfsmenn Fiskvinnslu- skólans veröi bæöi sárir og reiðir þegar horft er upp á þaö í gegnum árin aö hver fjölbrautaskólinn á Ojk „Ég held að íslendingar eigi það skilið að ™ eiga myndarlegan og veglegan fisk- vinnsluskóla sem menntar fólk fyrir fiskiðnað- inn, menntastofnun sem við getum verið stolt af.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.