Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1983, Side 15
DV. FIMMTUDAGUR 24. NOVEMBER1983.
15
Menning
Menning
Menning
Menning
Natt eftir Ingvar Lidholm. Á
plötunni Nordisk musik er að vísu
ekkert verk eftir Islending, en ekki
er hún verri fyrir það. Ketil Hvoslef
(f. 1939) kannast margir Islendingar
við. Hann nam í Bergen, Stokkhólmi
og London, kom fyrst fram opinber-
lega áriö 1965 og hefur nú skrifað
háttí 40tónverk.
Kvartett
V
Kvartoni er skrifað fyrir sópran-
rödd, blokkflautu, gítar og píanó
(1974). Má verkið því teljast eins
konar kvartett, þar sem sópran-
röddin er notuð sem hvert annað
hljóöfæri. Tónverkið er eins og léttur
jass í a cappella búningi, — og fagur-
lega flutt af Anne Bolstad, Rigmor
Titt Davidsen, Sten-Erik Olsen og
Jan Horden.
Björn Wilho Hallberg (f. 1938) nam
í Stokkhólmi, varð hrifinn af Boulez
og Penderecki við upphaf sjöunda
áratugarins, en sneri sér síðar að
Richard Strauss. Hefur Hallberg
síðan leitast við að sameina helstu
kosti hefðbundinnar tónlistar og
nýrri tónlistar (t.d. Ligetis) í
verkum sínum, sem nú eru orðin
fjöldamörg. Aspiration per orkestra
(1971) er einn samfelldur tónvefur,
sem hefst með litlu stefi og hleöur
utan á sig uns hvörfum er náö. Þar
greinast tónar smátt og smátt í
sundur og hverfa að lokum í djúp
þagnarinnar.
Spike Jones líka...
Poul Ruders (f. 1949) hefur ekki
enn hleypt heimdraganum svo
heitið geti og býr og starfar í heima-
landi sínu, Danmörku. Hann byrjaði
snemma að fást við tónlist sem hann
sjálfur flokkaöi undir „eftirlíki”, þ.e.
í henni skírskotaði hann opinskátt til
eldri tónlistar og blandaöi þau föng
suðrænum rytmum. I seinni tíð hefur
Ruders helst leitað fanga í enskri
söngtónlist frá miðöldum, svoköll-
uðum víxlsöngvum („change-
ringing system”) þar sem hver rödd
tekur við af annarri. Rondeau (1976)
mætti allt að eins kalla Geðbót, svo
mjög sem verkið framkallar bros-
viprur á hlustandanum. Að hluta til
minnir það á jass, aö hluta á mið-
aldasöng og svo líka Spike Jones,
svei mér þá. Hver segir að nútíma-
tónlist geti ekki verið skemmtileg?
Heikki Laitinen (f. 1943) nam við
Síbelíusarakademíuna og jafnframt
því stundaði hann rannsóknir á tón-
list Sama og Lappa. Sumt af rann-
sóknarsviði hans hefur orðið honum
tilefni til tónsmíða, m.a. samdi hann
tónverk sem byggt var á hói eöa jóðli
Sama. Var það flutt á tónlistar-
dögunum í Osló fyrir nokkrum árum
og vakti mikla athygli.
Með þjóðlegu sniði
Tilraunahljómsveitin Harpans
Kraft varð áheyrandi að því og bað
Laitinen aö semja nútímaverk meö
þjóölegu sniöi fyrir sig. Linnés resa i
Finland 1732 varð árangurinn. Verk
þetta er byggt á köflum úr frægri
dagbók vísindamannsins Lrnné, og
eru þeir sumpart sagðir fram, sum-
part sungnir af sópranrödd með
undirleik píanós, sellós og slagverks.
Laitinen valdi texta þar sem Linné
talar um basl Lappa, gjafmildi og
hetjulund, og með undirleik verður
til afar aðlaðandi ljóöræn svíta.
Tvö fyrstnefndu tónskáldin, Hvos-
lef og Hallberg, nutu leiösagnar
sænska tónskáldsins Ingvars
Lidholm. Því er við hæfi á þessum
vettvangi að kynna einnig nýja
hljómplötu með tónlist Lidholms.
Hér er um aö ræða kantötu hans,
Skaldens natt, nótt skáldsins, sem
þegar er talið með áhrifamestu
verkum þessa virta tónskálds. Lid-
holm (f. 1921) þekkja flestir þeir sem
fylgst hafa með sænsku tónlistarlífi
síðastliðna þrjá áratugi.
Nýnæmi í kórverkagerð
Kantata hans, byggö á Canto
LXXXI eftir Ezra Pound (1956) þótti
mikiö nýnæmi í sænskri kórverka-
gerö, svo skipulega uppbyggð og
mikilúðleg sem hún er. <
Skaldens natt samdi Lidholm að
hluta 1957 —58 og í þeirri mynd var
verkiö flutt víða um Evrópu og hlaut
viðurkenningar á tónlistarhátíöum.
Árið 1981 lauk tónskáldið endanlega
viö kantötuna. Byggir hann það á
slitrum úr ljóðabálki eftir 19. aldar
skáldið Carl Jonas Love Almqvist,
en í honum gerir Almqvist upp hug
sinn gagnvart Guði, eftir miklar sál-
arþrengingar. Tónlist Lidholms lýsir
þessum þrengingum kröftuglega,
bæði í söng og tónum. Tónklasar eru
vandlega hlaönir upp, ná hámarki,
tvístrast og hverfa. Kór er teflt á
móti hljómkviðu, sópran á móti kór.
Hér er á feröinni verk sem er í senn
stórbrotið og ljóörænt, ágengt og
innilegt. -AI.
SMITWELD
rafsuðuvír
Rafsuðumenn um allan heim
þekkja SMITWELD merkið. I yfir
hálfa öld hefur SMITWELD
þjónað iðnaði og handverks-
mönnum um allan heim.
SMITWELD rafsuðurvírinn er
einn sá mest seldi í Evrópu.
Yfir 70% af rafsuðuvír fyrir ryð-
varið efni, sem selt er í Vestur-
Evróþu er frá SMITWELD.
Sannarþaðeittgæðihans. Við
höfum fyrírliggjandi í birgðastöð
okkar alar aJgengustu gerðir
SMITWELDS rafeuðuvírs og
pöntum vírfyrirsérstök verkefni.
SMITWELD:
FYRSTA FLOKKS VÖRUR Á
MJÖG HAGSTÆÐU VERÐI
SÍNDRA
Pósthólf 881, Borgartúni 31.105 Reyfcjavfk, sfmi: 27222, bein llna: 11711.
Kvóld og hdgarsimi: 77968.
Í3VEKAM
KÖKUBLAÐ >:
- Stækkað blað - '•!
■ a
> a
NU ER ÞAÐ KOMIÐ
Ómissandi við jólabaksturinm!
Jólakökuuppskriftir
með
litmyndum á 16 aukasíðum
AFMÆLISGETRAUN •!
HEFST >:
í VIKUNNI - NÚNA X
Vertu með frá byrjun. \ • )•
Askriftarsíminn er
27022
• a
a a
a a
Banki
Gœnsás-qg
fössvqcK-
hvofi
Réttarholtsútibú Iðnaðarbankans á mótum
Sogavegarog Réttarholtsvegar.
Aukin þjónusta við íbúa nærliggjandi hverfa
pg þá sem leið eiga hjá.
í Réttarholtsútibúinu fara fram öll almenn
bankaviðskipti.
Við leggjum sérstaka áherslu á persónulega
þjónustu og ráðgjöf; - t.d. um þau
mismunandi inn- og útlánsform sem henta
hverju sinni.
Verið velkomin á nýja staðinn
og reynið þjónustuna.
Iðnaðarbankinn
Réttarholtsútibú,
Réttarhottsvegi 3, sími 85799
i