Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1983, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1983, Blaðsíða 18
DV. FIMMTUDAGUR24. NOVEMBER1983. • PANTANIR SÍMI13010 • HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG 29. TINNA - NA TINNA - TINNA - TINNA HÁRGREIÐSLUSTOFAN Furugerði 3. Opið á fimmtudögum til kl. 8.00. Athugið: Síminn er 32935. Pantið tímanlega fyrir jól. TINNA - TINNA - TINNA Z z > > I ÚRVAL AF JÓLAFATNAÐI Á BÖRN OG UNGLINGA VELKOMIN Sími 33830. Frá tollstjóranum í Reykjavík Hér meö er skorað á gjaldendur skipulagsgjalds af nýbygging- uin í Reykjavík, sbr. 35. gr. laga nr. 19/1964 og reglugerð nr. 167/1980, með gjalddaga á árinu 1983, að gera full skil á gjald- inu nú þegar og eigi síðar en einum mánuði eftir birtingu áskorunar þessarar. Að þeim tíma liðnum verður krafist nauðungaruppboðs á fasteignum þeim, sem skipulagsgjald skal greiða af, samkv. 1. gr. laga nr. 491951. Reykjavík, 18 nóv. 1983, Tollstjórinn í Reykjavík FRA PÓLÝFÓNKÚRNUM Kórfélagar og kórskólafólk Pólýfón- kórsins. Skemmtum okkur saman í Hreyfilshúsinu föstu- daginn 25. nóvember. Eldri kórfélagar velkomnir. Húsið opnað kl. 22. Lögtök Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undangengnum úr- skurði verða lögtök látin fram fara án frekari fyrirvara á kostnaö gjaldenda, en ábyrgö ríkissjóös, að átta dögum liön- um frá birtingu auglýsingar þessarar, fyrir eftirtöldum gjöld- um: Söluskatti fyrir júlí, ágúst og sept. 1983, svo og söluskatts- hækkunum, álögðum 23. ágúst 1983—16. nóv. 1983; vörugjaldi af innlendri framleiðslu fyrir júlí, ágúst og sept. 1983, mæla- gjaldi af dísilbifreiðum, gjaldföllnu 11. okt. 1983; skemmtanaskatti fyrir júní, júlí, ágúst, sept. og okt. 1983. BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ í REYKJAVÍK 16. nóv. 1983 IVIenning Menning Menning LÍF í UÓDI Ingibjörg Haraldsdóttir: Orðspor daganna Ljóð útg. af Móli og menningu, Rvík. 1983.103 bls. Orðspor daganna er önnur ljóða- bók Ingibjargar Haraldsdóttur. Hin fyrri, „Þangað vil ég fljúga”, kom út hjá Máli og menningu árið 1974. I þeirri litlu bók eru ákaflega sterk ljóð, sprottin úr miklum sviptivind- um tilfinninga. Þau spanna ævi höf- undar frá fæðingu (ljóöið „Upphaf”) aðþeim tímaerlngibjörghefursest að á Kúbu (ljóöiö „Santiago de Cuba”). 1 „Oröspori daganna” heldur Ingi- björg áfram að túlka veröld sína í ljóðum og koma einhverju skikkan- legu lagi á heimsmynd sína. Fyrsta ljóðið ,,I útlegð”: Þú sérö mig ganga um borgina og heldur þá kannski ég eigi hér heima eða sé að minnsta kosti sátt við þessi pálmatré samt hlýturöu aö sjá að í göngulag mitt vantar trumbusláttinn. Til skamms tíma hélt ég að ekki skipti máli hvar ég svæfi í nótt því skip mitt lægi feröbúiö við bryggju. Nú eru bryggjustaurarnir fúnir og langt síöan blásið var til síðustu ferðar. Miðvikudagar lífs míns skreppa saman í langan hitabeltisdag með skúrum uppúr hádeginu og snöggu sólarlagi að k völdi. Borgin er full af fólki. (bls. 9) Upphafs- og lokalína mynda um- gjörð um ljóðiö og halda föstum óróa þess ogeinsemd. Heimþrá er leiðarstef ljóðanna í fyrsta kafla bókarinnar og það er eins og óþolið hafi aukist frá fyrri ljóðabók. Sú áhersla sem höfundur leggur á framandleik sinn í suörænu umhverfi í ólgandi litum „lygilegra blóma” fer stöðugt vaxandi. Með ljóðinu „Til ófædda barnsins míns” (16) verður þaö augljóst að skáldiö þolir ek"ki lengur viö á þessum ókunna stað og ætlar sér að gera eitt- hvaö í málinu. „Eg geng út úr skóg- inum.. .” segir í upphafi og í lokin þetta: „Það ljóö vil ég lesa / í augum þínum / þegar þú kemur.” Já, bam hennar skal fæðast inn í ljóðið „sem fellur af himni”, og „sprettur úr grænni jörö.” Hér fer það ekki dult að það er ættjörðin sem kallar. Núeraðeinseftiraðkveðja. Ljóðið „Þreyta” þykir mér áhrifarík mynd af sorglegum málalokum. Skilnaöur er óumflýjanlegpr, ástvinurinn skil- rnn eftir í því umhverfi sem hann til- heyrir (eða hvað? Þaö sést af síöari Ijóöum). Því næst er ljóöiö ,/3ér grefur gröf. . .” (18) um húsið sem þau reisa í sameiningu úr þykkum steini og hvemig hamingjunni reiöir af bak viö þykka veggi þess. „Kaffihlé” varpar á sama hátt annarlegri birtu á lífiö svo þaö virðist tilgangslaust. Og áhrif þess magnast fyrir ljóðin sem á eftir koma. Eitt þeirra er svona: Astina þekkti ég sæluna sársaukann þekkti ég. Þig sem ég elskaði þekkti ég ekki. (Eftirmáli, bls. 21) Komin heim inn á reyk- vísku holtin Svo snýr höfundurinn heim inn á reykvísku holtin og tekur að hlaöa sinn garð að nýju, þann sem fallinn varílangrifjarveru. Þessi kafli er aðeins þrjú ljóð, eins konar millistef við áttaskil. Fyrsta ljóðið er „Heimkoma”, hugleiöing um tíma, fjarlægð, draum og veru- leika. Annað ljóðið ber heitiö „Von- brigði”og ersvona: Þú hélst þú kæmir heim í hlýjan faöm þin biði sól í grænu grasi huggun hvíld. Þú hélst þú ættir skjól ílandsinshjarta. Envonþín brást: þín biðu nakin f jöll og naprir vindar. (27) Hér rís úr d júpi draumanna kaldur vemleikinn. En skáldið litla er ekki af baki dottið. Þriðja ljóðið í þessum ágæta kafla er „Þymirós” og stenst ég ekki freistinguna að taka líka upp þetta magnaöa valkyrjuljóð: raunir”, þar sem veslings blaða- maðurinn þarf að halda sig við hinn nálægari sannleik, og ,,— allt sem snertir hag hins vinnandi manns.” því „Sláturtíöin í E1 Salvador vekur áhugafárra.” Vorið er komið Nú líður aö lokum sögunnar, fimmti og síðasti kafli frumsömdu ljóða bókarinnar hefst á ljóði sem heitir „Vorið 79” (61) Enn hvílir drungi yfir dögunum þó ofurlítil von sé í sjónmáli. Það er ort um dauðann, jafnvel þótt höfundur lýsi því yfir aö þaö vilji hann ekki gera. („Lífið” bls. 64 og „Annars hugar” 65) 1 ljóö- inu „Á flýtisferð um lífið” fer höfundur á kostum í nöpru háði. Og þá emm við komin þar sem ofurlitla skímu leggur inn í hugartetrið , „Ljóöiö um haming juna”: Ingibjörg Haraldsdóttir. Nú rís ég upp einbeitt og vakna af aldarlöngum svefni — eða er ég aö f æðast? Núna. Hér. Með tvær hendur tómar — hreinar og tómar. Einhver hefur sagt mér égeigihérheima. (28) Bókmenntir Rannveig G. Ágústsdóttir Og nú upphefst þriðji kafli með fílósófíu um frelsið: „Eg neita því ekki: / öryggiskenndin var sæl.” (Hér finnst mér hefði farið beturað segja sæt, ekki sæl) (31). Og nú opn- ar Reykjavík faöminn meö sínar blautu götur, líflegu skemmtistaði og tilraunir til samneytis manna á milli sem mistakast að mestu. Angistin fyllir hugann. Kona hverfur að sínu aldagamla starfi, þjónustustörfum með uppþvotti. Eldhúsvaskurinn veröur ískyggilega miðlægur og því er kominn tími til endurskoðunar og uppgjörs. Kaflanum lýkur með einu fegursta ljóöi bókarinnar um andar- takið, „geturðu níst það prjóni?” (bls. 44). 1 hinum fjórða þætti bókarinnar er ort til mannsins sem eftir var skilinn í fjarlægö, eitt Ijóöanna er svona: Þúhorfirámig augum sonar okkar þegarhannsegir: ég ætla aö verða sjóræningi eins og pabbi minn. (,,Fjarlægð”51) Þá eru syninum ort tvö falleg ljóð og síðan kemur sjálfið: „ÉG” (bls. 54) en þar segir Ingibjörg m.a.: „Asfaltiö er iljum mínum kær- ast.” Hún er borgarinnar bam, Reykjavíkurbam. Pólitíkin er líka dálítið reykvísk t.d. í „Blaðamanns- Á hverjum morgni vaknaégviöhliö þér oghugsa: þama erhún lifandi komin, hamingjan. (66) Síðan er „Bið” (67) og þá „Verald- arundur” (68) um líf sem fæðist og barn sem lifir. 1 næstsíöasta ljóði kaflans, „Bam á brjósti” er skýlaus yfirlýsing um hvaða eiginleika móðirin óskar nýfæddri dóttur sinni og vonast auðvitaö til þess að með móðurmjólkinni drekki telpan áræði og óttaleysi, visku og stolt. Ljóð Ingibjargar eru samsteypt í eina heild eins og ævisaga í Ijóðum. Vissulega verður lesandi að geta í eyður, ekkert er smásmugulegt í ljóöunum, þau eru hafin yfir hið hversdagslega þótt þau fjalli um það. Höfuðþemað er heimþrá, heim- koma og sátt. Áberandi er baráttan milli skyldurækni við hiö nýja líf og svo ákafrar löngunar til að samein- ast upphafi sínu. Þetta gengur ekki átakalaust eins og ljóðin sanna, þótt sigur vinnist aö lokum. Eða er sigur- inn unninn? Skáldiö slær vamagla meðsíðasta ljóöinu: Gakktu hægt yfir grasið í nepjunni. Sólin hefur enn ekki sungið sitt síðasta. („Varúö” 71) Athyglisvert er hve form ljóöanna er heillandi og myndmálið hnitmið- að. Ingibjörg Haraldsdóttir er tví- mælalaust meöal okkar fremstu ljóð- skálda. Ljóðaþýðingar, sem eru um fjórðungur bókarinnar, hef ég ekki getað skoðaö með hliösjón af frum- textum, aðeins lesiö þessi 15 ljóðsem fjalla aðallega um kúgun alþýðu- mannsins í Rómönsku Ameríku. Þetta eru áhrifamikil Ijóö og sum frumleg mjög og fjalla ekki um neinn borgaralegan hégóma, heldur eru þau full af lífsháska eins og flest bók- menntakyns sem kemur frá þessum heimshluta. Islenskur búningur Ingi- bjargarhæfirþeimvel. Rannvcig

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.