Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1983, Blaðsíða 31
DV. FIMMTUDAGUR24. NOVEMBER1983.
31
Sandkorn Sandkórn Sandkorn
"i
Tíundin
felld niður
Þau túnamót uröu i sögu
Alþýöubandalagsins á
síöasta landsfundi aö
samþykkt var aö fella
svokallaö tíundargjald niöur.
Umrætt gjald var þannig
tilreiknaö að þeir sem voru í
launuðum trúnaðarstörfum
fyrir flokkinn þurftu að
greiða visst hlutfall þeirra
launa í sjóði hans. Mun þetta
hafa verið arfur frá gamla
Kommúnistaflokknum.
En allt um það, þegar
ofangreind samþykkt haföi
verið gerð, tilkynnti for-
maður flokksins að mið-
stjórn hefði eftir sem áður
heimild til að innheimta
tíundina ef talið vari að á
þyrfti að halda. Gerðist þá
mikill kurr I liði landsfundar-
fulltrúa. Sögöu þeir, aö þarna
væri um að ræöa laun fyrir
vínnu, sem fólk ætti að fá að
halda óskertum. Fór svo að
lokum, að formaðurinn varð
Unnur var talln nijur...
... og Bjamfriftur út.
að draga dagskipunina til
baka.
Niðurtalning
Það kemur ebistaka sinn-
um fyrir að fólk cr talið niður
og stundum alvcg út, eí svo
má aö orði komast. Upp á sið*
kastið hefur þetta einkum
komið niður á konum — að
sjálfsögðu.
Sem dæmi má nefna, að
Unnur Steinsson feguröar-
drottning var talin niður um
eitt sæti í fegurðarsamkeppn-
inni „Miss World”, og
hafnaði að lokum í 4. sæti, en
ekki 5. ehis og út hafði verið
gefið.
Annaö dæmi er um Bjarn-
fríði Leósdóttur, scm var ekki
bara talin niður heldur alvcg
út úr stjórn Verkamanna-
sambands Islands. En liklega
munu mistök i talningu vera
hiö cina, sem VMSÍ og „Miss
World" eiga sameiginlegt.
Dýrt spaug
Talandi um tíundargjaldið
góða. þá kom í ljós á lands-
fundi allaballa, að það sem af
er þessu ári hcfur Alþýðu-
bandalagið fcngið ekki minna
en 380 þúsund krónur frá
þingflokki sinum. Þaö þýðir
að hver þingmaður hefur
mátt greiða riflega 34.000
krónur i tíund á þessum tíma.
Þá hefur flokkurinu fengið
rúmar 36.000 krónur frá
öðrum, sem gegna launuöum
trúnaðarstörfum á vegum
hans.
Það hefur því verið nokkuð
dýrt spaug að komast á þing
fyrir Alþýðubandalagið áður
en tíundínni var aflétt.
Oflug samkeppni
Nú, þegar bjórumræðan
stendur sem hæst, er ekki úr
vegi að rifja upp cina gamla
og góða til hugarléttis í
skammdcginu.
Gamall bóndi hafði alia tíð
haft hina mestu skömm á
íslenskum pilsner. Hann
hafði enda komist í „alvöru”
bjór í úttandinu og fannst þvi
lítið til þessa íslenska iönaðar
koma. Spaugarar nokkrir
hugðust breyta þessari bjarg-
föstu skoðun karlsins, urðu
sér úti um tóma pilsner-
flösku og fylltu hana af
brennivíni. Héldu þeir síðan á
fund hans og sárbáðu hann aö
smakka. Karl lét loks til
leiöast, tók fiöskuua, drakk
niður í hana niiðja i einurn
teyg og mælti síðan há-
tíðlega:
„Ja, nú mega þeir hjá
Carlsberg fara að vara sig.”
Sá guli er nú cinkum til í draumhcimum.
Draumur
um þorsk
I ræðu, sem Vigdis
Finnbogadóttir forseti hélt
nýlega í kvöldverðarboði
Portúgalsforseta, sagði hún
m.a. að þaö væri sagt í hálf-
kæringi, að Portúgalir lifðu á
þorski og draumum. Hið
sama mætti scgja um
islcndinga.
Ein er sú stétt, sem mun
ciga í crfiðleikum mcð að
skilja þessi ummæli forset-
ans, ncfnilega fiskifræðing-
arnir. Þeir telja okkur ekki
lcngur lifa á þorski og draum-
um, heldur draumum um
þorsk.
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Trúboðinn að starfi í miðbæ Lundúna.
St jörnubíó—Trúboðinn:
FALLNAR KONURI
FAÐMITRÚBOÐA
Stjörnubíó, TRÚBOÐINN (The Missionary);
Stjórn: Richard Locraine.
Handrit: Michael Palin.
K vikmyndun: Dewi Humphries.
Aðalleikarar: Michael Palin, Maggie Smith,
Trevor Howard, Denholm Elliot. Michael
Hordern, Pheobe Nicholls.
Tónlist: Mike Moran.
Framleiðendur: Nevillo C. Thompson og
Michael Palin.
Enskur húmor hefur lengi átt upp
á pallborðið hjá þjóöum heims. Svo
hefur einkum veriö um kímni þeirra í
kvikmyndum. Fáir eða engir hafa
reyndar komist með tæmar þar sem
enskir hafa haft hælana hvað gerð
grínmynda snertir á síðustu árum og
áratugum.
Allmargar kímniklikur, ef svo má
kalla, hafa verið uppi í enskum kvik-
myndaheimi. Nægir þar að nefna
Áframhópinn sem á baki marga tugi
gamanmynda sem sumar hafa að
vísu elst illa en jafnan hafa samt
geymt góðan húmor, að ógleymdum
Monty Python-hópnum sem hefur
sent frá sér hvert aðhlátursefnið á
fætur ööm á allra síðustu misserum
viö mögnuð bakföll áhorfenda.
Sumir úr þessari kímniklíku hafa
sent frá sér sóló inni á milli sam-
eiginlegrar framleiðslu og svo er um
Michael Palin.
Stjörnubíó sýnir um þessar mundir
kvikmynd sem hann stendur að baki,
næsta óstuddur, og heitir hún The
Missionary, trúboðinn.
Að því er best er vitaö er þetta
fyrsta sjálfstæða mynd Palins og það
verður aö segjast eins og er að ekki
nær þessi frumraun hans aö komast í
hálfkvisti yiö sumar bestu myndir
Pythons-hópsins hvaö viökemur
beinskeyttri fvndni, frumlegum per-
sónum og handriti, ríku ímyndunar-
afli í sviðsetningum eöa góðri tækni-
vinnu. Myndin er aöeins reykurinn af
þeim réttum sem Python-félagar
hafa gefið okkur aö smakka að
undanfömu.
Myndin fjallar, eins og nafngift
hennar gefur til kynna, um trúboða,
Charles Fortescue að nafni. Þegar
myndin hefst er hann aö snúa heim
frá tíu ára fórnfúsu trúboðsstarfi
inni í myrkustu frumskógum Afríku.
Heima bíður hans ungt fljóð sem
beðið hefur þess að giftast honum í
öll þessi ár. Eins og að líkum lætur er
Fortescue spenntur að fá að vita
hvaö enski biskupinn ætli að láta
hann fá að starfa þegar heim kemur.
Hann hefur gert sér í hugarlund
einhver viröuleg embætti eftir þetta
vanþakkláta starf í Afríku, en verður
fyrir allmiklum vonbrigðum því að
biskupinn segir honum að hans bíði
erfiður starfi í helsta melluhverfi
Lundúnaborgar þar sem hann eigi
aö reisa trúboðsstöð fyrir „fallnar
konur” sem hann svo nefnir. 1 stuttu
máli gengur svo myndin út á fram-
gang trúboðans í melluhverfinu, sem
tekur á sig alleinkennilega mynd,
auk þess sem fléttað er inn í
söguþráðinn undirbúningi brúðkaups
trúboðans og unga fljóðsins, svo og
ágirnd miðaldra heföarkonu ástum
klerksins sem hitti hann af tilviljun á
skipinu á leiö heim frá Ariku og varð
síðan aö styrkja hann í að koma upp
trúboösheimilinu í Lundúnum.
Helsti veikleiki þessarar myndar
er handrit hennar. Fyrir utan það að
vera nokkuö þurrt og margtuggið er
það ákaflega sundurlaust i vinnslu
og gerir það myndina mjög ósmellna
ásýndar. Að vísu er myndin talsvert
fyndin á köflum og nokkrir góöir
brandarar fá að njóta sín inni á milli
en þeir koma fyrir lítið þar sem er
þessi hroðvirknislega úrvinnsla og
uppbygging söguþráðarins.
Þá bregður sjaldan fyrir góðum
leik í Trúboðanum og persónur
hennar ná aldrei að vera sennilegar
ellegarþá spennandi.
Sundurlaus gamanmynd með lítt
spennandi persónum og frekar slök-
um leik í þokkabót er nokkuö sem
ekki verður lofað. Þaö er hreint
skrum sem segir í auglýsingunni aö
þessari mynd að hún sé „stórkost-
lega skemmtileg og alveg
bráðfyndin. . .”
Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Hef opnað tannlæknastofu mína í
heilsugæslustöðinni Hellu, sími
5090.
Garðar Brandsson
tannlæknir.
)odge
Ramcharger78-81
Höfum verið beðnir að útvega Dodge
Ramcharger árg. '78—'81 í skiptum
fyrir tvo ódýrari bíla.
JÖFUR HR
Nýbýlavegi 2 - Kopavogi - Simi 42600