Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1983, Síða 34
34
DV. FIMMTUDAGUR 24. NOVEMBER1983.
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
.
IVota oftast italska leikinn, hef stúderaö hann mest.
DV-myndir: Einar Ólason.
Hannes HHfar Stefánsson, Norðurlandameistari i skák i flokki tíu ára og
yngri. Hann var sjö ára þegar hann tók þátt i sinu fyrsta skákmótí, grunn-
skólamótínu svokaUeða.
Skák, tónlist og
Félag nýalssinna
Komiði sælir, félagar og vinir góðir, og líkt og Bítlarnir sögðu good day,
sunshine, þá bjóðum við ykkur góöan daginn með sólskinsbros á vör.
Við fjöllum um tónlist, skák og Félag nýalssinna í Dægradvölinni aö þessu
sinni, allt efni sem fellur ykkur vonandi vel í geð.
Fyrst er það hún Edda Borg Ólafsdóttir sem spilar á hljómborð og syngur í
hljómsveit Gunnars Þórðarsonar í Broadway. Eitilhress stúlka, Edda.
Þá er það hann Hannes Hlífar Stefánsson, 11 ára Reykvíkingur, en hann er
talinn einn efnilegasti skákmaður landsins þessa stundina.
Og aö lokum er það Félag nýalssinna. Við ræöum við formann þess félags,
Ingvar Agnarsson, og er það hið forvitnilegasta efni.
Með á nótunum setjum við punktinn á sinn stað.
Texti: lón G. Hauksson Myndir: Einar Ólason
„Byrjaðiað
tefla 5 ára”
— „skákrabb” við Hannes Hlífar Stefánsson,
Norðurlandameistara í skák í flokki tíu ára og yngri
Skákáhugamenn segja gjarnan um
hann ,,aö annaö eins efni hafi ekki
komiö fram í skákinni hérlendis í ára-
raöir”. Og af mörgum þeirra er hann
oft kallaöur „undrabamiö í Breiöholt-
inu”.
Nafn hans er hins vegar Hannes
Hlífar Stefánsson og hann er 11 ára aö
aldri. I febrúar síðastliðnum, þá 10
ára, varð hann Noröurlandameistari í
skák í flokki 10 ára og yngri.
Viö Dægradvalarmenn heimsóttum
hann fyrir skömmu upp í Breiðholt og
röbbuðum viö lítillega viö hann um
skákina.
„Ég byrjaöi aö tefla 5 ára er bræöur
mínir kenndu mér mannganginn,”
svaraöi Hannes spumingu okkar um
það hvenær hann heföi byrjað í tafl-
mennskunni.
„Og ég tefli mjög oft viö bræður
mína ennþá,” bætti hann við.
Þrátt fyrir aö Hannes geti státaö af
velgengni í taflmennskunni þá er hann
ákaflega lítillátur og hógvær, kannski
örlítiöfeiminn.
Norðurlandamótið, sem Hannes
sigraöi á í sínum flokki, var haldiö í
Turku í Finnlandi. Þeir voru tveir frá
Islandi í flokki Hannesar, hinn var
ÞrösturÁrnason.
Og svo skemmtilega vildi til aö
Þröstur krækti í annað sætiö, einum
vinningi á eftir Hannesi.
Þess má geta aö tíu piltar tóku þátt í
þessu móti frá Islandi og vegnaði þeim
öllum ágætlega. Keppt var í fimm
flokkum.
Viö spyrjum Hannes hvernig hann
æfisig.
„Eg er í Taflfélagi Reykjavíkur og
fer á æfingar þar. Þá hef ég gert
svolitið aö því aö skoöa skákir ýmissa
stórmeistara og lesa skákbækur, sér-
staklega byrjanabækur.”
— Oghvaöabyrjunnotarþúoftast?
„Italska leikinn, hef stúderaö hann
mest.”
Uppáhalds skákmeistari Hannesar
er Sovétmaöurinn Kasparov sem
þessa dagana er aö tefla við Kortsnoj í
London. ,,Eg held aö Kasparov sé sá
besti þó Karpov sé heimsmeistari. ”
En svona að lokum, Hannes, hvort
finnst þér hraöskák eða skákir sem „Hraöskákinerskemmtilegri.”
taka langan tíma skemmtilegri? -JGH.
Ingvar Agnarsson, formaður Fólags nýalssinna.
I