Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1983, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1983, Blaðsíða 36
36 DV. FIMMTUDAGUR 24. NOVEMBER1983. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Vanessa Williams — ungfrú Amerika 1983. Blökkukona valin ungfrú Ameríka 1983 Hin tvítuga Vancssa Williams varö fyrsta blökkukonan til aö hljóta titilinn Ungfrú Amerika. Fyrir vikiö hlaut hún aö launum ( um hálf a milljón íslenskra króna. Vanessa stundar nám viö Syra- cuse-háskóla. Þaö var fyrst áriö 1951 sem blökkustúlkum var leyft aö taka þátt i keppninni um ungfrú Ameríku. Einar Sveinn Þórðarson. Hann hefur verið við ballettnám í Bandarikjunum. Æft fyrir frumsýninguna i kvöld. DV-myndir Bjarnleifur. Islenski dansflokkurinn frumsýnir í Þjóöleikhúsinu í kvöld þrjá nýja ís- lenska balletta. Tilefniö er tíu ára af- mæli dansflokksins. Sýningar veröa þrjár talsins. Önnur sýning verður á laugardag og sú þriöja næstkomandi þriöjudag. Höfundar ballettanna eru Nanna Olafsdóttir, Ingibjörg Bjömsdóttir og. dansflokkurinn. Dansarar eru Asdís Magnúsdóttir, Ásta Henriksdóttir, Auöur Bjamadóttir, Birgitta Heide, Helga Bemhard, Ingibjörg Pálsdóttir, Helena Jóhannsdóttir, Katrin Hall, Olafía Bjarnleifsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Einar Sveinn Þóröarson, Jóhannes Pálsson og Örn Guðmundsson. Einar Sveinn hefur undanfarin ár veriö við ballettnám í Bandaríkjunum og veriö þar fastráðinn dansari. Hann dansar sem gestur á sýningunni. Þess má einnig geta aö Auöur Bjarnadóttir hefur ekki dansað hér- lendis síðastliðin fimm ár. ÞRÍR ÍSLENSKIR DANSAR FRUMSVNDIR Terri Carr og Robert Wagner leika einnig í myndinni. Játvarður áttundi hneykslaði marga þegar hann afsalaði sér konungdómi til að geta verið með fráskilinni, bandarískri konu, Wallis Simpson. Þarna sjást þau saman. Barbara Parkins og John Standing fara með aðalhlutverkin. Þau eru talin nokkuð lík Játvarði og frú Simpson. í Þaö vakti á sínum tíma ekki litla at- hygli þegar Játvaröur áttundi Eng- landskonungur afsalaöi sér krúnunni til að ganga aö eiga fráskilda, banda- ríska konu, Wallis Simpson, áriö 1936. Nú hefur Clive Donner gert kvik- mynd um þessa rómantísku ástarsögu. I aöalhlutverkum eru John Standing og Barbara Parkins. Einnig fara meö hlutverk í myndinni þau Terri Carr, Horst Shellenberg og Robert Wagner. SAGA JÁTVARPAR OG FRÚ SIMPSON FILMUÐ Garöar ogAnne Marie reisa upp lands- menn „Platan okkar seldist í þrefalt fleiri eintökum en viðurkennd met- söluplata síöastliðins árs. Platan okkar var ekki viðurkennd vegna þess aö hún var ekki seld í hljóm- plötuverslunum,” sagöi Garðar Sigurgeirsson í samtali viö DV. Hann var aö ræöa um hljóm- plötuna „Kristur, konungur minn” sem hann ásamt eiginkonu sinni, Anne Marie Antonsen, og Ágústu Ingimarsdóttur söng inn á í fyrra. Sú hljómplata hefur selst í um fimmtán þúsund eintökum. Engin önnur kristileg hljómplata hefur selst í svo stóru upplagi hérlendis. Og af öllum íslenskum hljómplötum er þaö aöeins Vísnaplata Gunnars Þóröarsonar sem náð hefui' meiri sölu. Þau Garðar og Anne Marie eru nú komin meö aöra plötu á markað, ,,Þú reistir mig upp”. Ágústa Ingimars- dóttir gat ekki veriö meö þeim aö þessu sinni þar sem hún hefur gifst

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.