Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1984, Blaðsíða 3
DV. MIÐVIKUDAGUR1. FEBRUAR1984.
3
Verulegar skipulagsbreyt-
ingar í menntamálaráöuneyti
Fyrirhugaðar eru allverulegar
skipulagsbreytingar í menntamála-
ráðuneytinu að því er Ragnhildur
Helgadóttir ráðherra tjáði DV í gær.
„Er hér um að ræða breytingar sem
eiga að leiða til auðveldari verka-
skiptingar og greiðari stjórnunar og
efla samráö milli deilda sem fást við
skyld verkefni,” sagði ráðherra.
„Eins og skipulagið er nú er það
mjög þungt í vöfum. Deildir eru
margar og smáar og er ætlunin að
sameina 12 deildir ráðuneytisins sem
eru tiltölulega sjálfstæðar stjórn-
sýslueiningar í þrjár skrifstofur. Hér
verða því þrír deildarstjórar yfir
skrifstofum með eitt eða fleiri
verkefni hver. Afram verður um
verkaskiptingu að ræða en boö-
leiðum fækkaö. Skrifstofurnar lúta
ráðuneytisstjóra,” sagði ráðherra
m.a.
Ennfremur tjáði Ragnhildur
Helgadóttir DV að þessi ákvörðun
lægi fyrir og framkvæmdir yrðu eftir
þvi sem ytri aðstæöur leyfðu.
Ragnhildur Helgadóttir mennta-
málaráðherra.
Sagði ráðherra að námsefnagerðin
flyttist úr skólarannsóknadeild yfir í
Námsgagnastofnun. I ráðuneytinu
yrðu námsstjóm, vinna að náms-
skrám og þróun skólamála áfram.
Rannsóknaverkefni flytjast yfir til
Rannsóknastofnunar uppeldismála
sem starfar í tengslum við Kennara-
háskóla Islands og Háskólann.
Þær þrjár skrifstofur sem taka við
af deildunum verða fjármálaskrif-
■stofa, skólamálaskrifstofa sem fer
með öll skólamál upp að háskóla-
stigi, og síðast skrifstofa fyrir há-
skóla- og vísindamál, almenn menn-
ingarmál, listir, söfn, íþróttir og
æskulýðsmál.
Skipulagsbreytingar þessar eru
hannaöar af Gunnari Guðmundssyni
rekstrarverkfræðingi sem hefur unn-
ið aö þeim í samráði við ráðuneytis-
stjóra og deildarstjóra í ráðuneytun-
um að því er menntamálaráðherra
sagði.
-HÞ.
Engin ákvörðun um
kísilmálmverksmiðju
— verksmiðjan á að vera í eigu erlendra aðila,
segir Sðnaðarráðherra
Engin endanleg áform eru uppi um
framkvæmdir viö Kisilmálmverk-
smiðjuna á Reyðarfirði, en gert er
ráð fyrir að tillaga þess efnis komi
fram á yfirstandandi þingi, að því er
Sverrir Hermannsson iönaðar-
ráðherra upplýsti á Alþingi í gær.
Sverrir sagði að verið væri að
vinna að forhönnun verksmiðjunnar
og endurskoðun kostnaðaráætlunar
og yrði því verki lokið í þessum mán-
uöi. I október síðastliðnum var stofn-
kostnaður áætlaður 65 milljónir
Bandaríkjadala. Byggingartimi
verksmiöjunnar, frá því að jarövegs-
framkvæmdir hef jast og þar til fyrri
ofn hennar er gangsettur, er um tvö
oghálftár.
Veröákvæði samnings sem gerður
hefur verið við þýska fyrirtækið
Mannesman Demag falla úr gildi ef
ekki hefur veriö ákveðið að hefja
hönnun og framleiöslu vélbúnaðar-
ins f jrir 1. janúar 1986.
Samstarfsnefnd stóriðjunefndar
og Kísilmálmvinnslunnar hf. hafa
gefið út kynningarrit um Kísilmálm-
vinnsluna sem sent hefur verið 14
aðilum í Evrópu, 5 í Japan og 14 í
Kanada og Bandaríkjunum.
Kynningarviðræður um eignaraðild
hafa átt sér stað við nokkra aðila og
þessa dagana er veriö að hafa
samband við þá aöila sem kynning-
arritið var sent til og óska eftir
viöræðum viðþá.
SverrirHermannsson sagði í sam-
tali við DV að hann væri þeirrar
skoðunar að erlent fyrirtæki ætti að
eiga alla verksmiðjuna, en viðræður
við erlenda aðila væru þó ekki komn-
ar svo langt að ljóst væri hvort þeir
vildu eiga hlut í verksmiðjunni eða í
heild. ,,Samstarfsflokkur okkar í
ríkisstjóm er þó þeirrar skoðunar að
við eigum aö eiga hlut í .verk-
smiöjunni. En ég tel réttara að aðal-
áhættan verði á annarra hendi því að
viö höfum lítil áhrif á þessum mark-
aði,” sagðiSverrir Hermannsson.
Sverrir sagði ennfremur aö þótt
verð á kísilmálmi hefði hækkað
nokkuð vantaöi þó enn um 200 doll-
ara hærra verð á hvert tonn til að
endar næðu saman.
-ÓEF.
Þannig leit annað fiskverkunarhúsa Birgis Jónssonar út eftir að brimið hafði brotið það. Leifarnar hafa nú
veríð jafnaðar við jörðu. ■ r ■ r B. a
Sjavargangunnn a Akranesi:
TJON Á FASTEIGNUM
8 MILUÓNIR KRÓNA
Tjón á fasteignum í sjávarganginum
á Akranesi þann 5. janúar síðastliðinn
nam um átta milljónum króna, sam-
kvæmt upplýsingum sem DV fékk frá
Asgeiri Olafssyni hjá Viölaga-
tryggingu Islands.
Flestar fasteignir sem urðu fyrir
skemmdum hafa verið metnar. Enn
er verið að meta tjón á lausafé svo sem
sjávarafuröum og tækjum.
„Uppbygging er ekki hafin ennþá.
Eg býst viö að menn séu aö bíða eftir
því að sjá hvað þeir fá bætt,” sagöi
Daníel Arnason, bæjartæknifræöingur
á Akranesi.
„Menn eru að átta sig á tjóninu.
Alveg fram á þennan dag hafa verið að
koma í ljós skemmdir, til dæmis á raf-
kerf um véla,’ ’ sagði Daníel.
Birgir Jónsson, en fiskverkunarhús
hans fóru mjög illa, sagði að hjá
honum hefði skreið sem ekki eyði-
lagðist alveg verið endurunnin að und-
anfömu. Hann sagöi að starfsfólki
hefði fækkað. Hann kvað slæmt veður
hafa tafið endurreisn.
Bifvélavirkjar á bifreiðaverkstæði
Guðjóns og Olafs hafa fengið annaö
húsnæði fyrir starfsemi sína til bráða-
birgða. Þá hafa hús Haralds Böðvars-
sonar verið lagfærð. I kringum oliu-
geyminn, sem grófst undan, hefur
veggurveriðsteyptur. -KMU.