Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1984, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1984, Qupperneq 6
6 DV! MIÐVIKUDÁGtíRÍ. FEBRÚÁR1984. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur ! í YSA HROGN LIFUR I tilraunaeldhúsinu reynum viö aö koma með mataruppskriftir í takt viö árstímann. Síöast var þaö þorramatur og nú sjóöum viö ýsu, hrogn og lifur. Bendum líka á ýmis tilbrigði í fram- reiðslu hrogna og lifrar. Við reynum aö velja sem f jölbreytt- astar uppskríftir í tilraunaeldhúsinu, blanda bæöi saman því gamla og góöa og einhverju nýju. Hvaö þetta gamla og góöa snertir finnst mörgum það vera matreiðsla sem allir kunna. En reyndin er önnur eftir viðbrögöum les- endaaðdæma. I tilraunaeldhúsi DV starfa þrír „sérfræðingar” og tekiö er til hendinni einusinniíviku. Allar ábendingar frá lesendum eru vel þegnar. Ef þið hafið eitthvaö sérstakt á óskalista er sjálfsagt að koma þeim óskum á framfæri. Og þá er þaö ýsan... Soðin ýsa, hrogn og lifur Skerið hausinn af ýsunni. 1. Skolið innan úr ýsunni meö köldu vatni, f jarlægið sundmaga og svörtu himnuna. Skafið blóð úr hryggnum. 2. Skafið slím utan af fiskinum, skoliö hann meö köldu vatni. Látiö ekki renna mikiö á hann svo hann kremj- ist ekki. 3. Skeríö eöa klippið sporðinn af og einnig uggana, ef vill. 4. Skeriö ýsuna niöur í sneiðar, ca 3 cm. Hafið beittan hníf svo fisk- stykkin kremjist ekki. 5. Raöiö stykkjunum í pottaseyði, hlið viö hliö í pokann og stráiö saiti á þau. Tæmiö loftiö úr pokanum og lokiðhonum. 6. Setjið pokann í sjóðandi vatn og sjóöiö í ca 20 mínútur, slökkvið á heliunni og látiö pottinn standa áfram á hellunni í 5—10 mínútur. 1. Heil ýsa, hrogn og lifur. Soðin hrogn 1. Skolið hrognin úr köldu vatni. 2. Leggiö hrognin í pottaseyði og strá- iðsaltiáþau. 3. Lokiö pokanum og stingiö nokkur lítil göt á hann. 4. Setjiö pokann í sjóöandi vatn. Sjóðiö í 30—40 mínútur, eftir stærð hrogn- anna. Setjiö hrognin í pottinn 10—20 mínútum áöur en fiskurinn og lifrin eru sett í hann. Veljið frekar víðan pott. Soðin lifur 1. Skolið lifrina úr köldu vatni. 2. Þerrið hana og leggið í pottaseyöi. 3. Takið loftiö úr pokanum og lokið honum. Setjiö í sjóðandi vatnið í pottinum á sama tíma og fiskinn. Athugiö aö það lengir suöutímann aö nota pottaseyöi. Ef viö notum ekki pottaseyöi breytum viö aðeins um aö- ferö. Þá látum viö fiskstykkin í sjóö- andi salt vatn og örlítiö edik út í vatn- iö, sjóöum fiskinn viö vægan hita í tæp- lega eina mínútu. Þá er potturinn tek- inn af heliunni og fiskurinn látinn liggja í soöinu í 8—10 mínútur. Froöan veidd ofan af áður en fiskurinn er færöur upp á fat. Við getum eftir sem áður notaö sama pottinn tii aö sjóða í hrognin, lifrína og fiskstykkin. En þar sem hrognin þurfa lengri suöu en fiskurinn og lifrin eru þau látin fyrst í pottinn. Þá er hrognun- um pakkað inn í álpappír eða smjör- pappír, salti stráö á þau áöur en þeim er pakkað inn. Suöutími hrognanna fer eftir stærð þeirra og er frá 15—45 mín- ; útur. I stað pottaseyðis getum viö soðið lifrina í álpappír. Suðutími ca 15 mín- útur. Þá eru hrognin sett fyrst í pott- 2. Ýsan hausuö. 3. Sundmagi og svarta himnan hreinsuð burt. inn, síðan lifrin og síðast fiskstykkin, sem þurfa skemmsta suöu. Á hvorn háttinn sem við sjóðum þennan holla og næringarríka mat berum viö hann fram meö soðnum kartöflum. Ágætt að bera fram einnig rúgbrauðssneiöar og smjör. Svo er önnur tillaga, ef þið hafið aöeins hrognin á boröum, að bera þau fram meö soðnum kartöflum, bræddu smjöri, hráu gulrófnasalati og sítrónu- sneiðum. Hrogn getum viö líka notað sem álegg á brauö. Eftir suöu tökum 4. Uggarnir klipptir af (og sporðurinn). S. Ýsan skorin í ca 3 cm þykka bita. 6. Fiskstykkjunum raðað hlið við hlið ípottaseyði. 7. Fiskurinn saltaður. Pokinn lofttæmdur og honum lokað. 8. Lifrin sett i pottaseyði og pokinn lofttæmdur, honum lokað. Athugið að hrognin eru líka sett í poka en þá eru lítil göt stungin á hann. r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.