Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1984, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1984, Síða 30
30 DV. MIÐVIKUDAGUR1. FEBRUAR1984. SMÁAUGLÝSINGAÞJÓNUSTA VIDQETUN IETT ÞER SPORIN OG AUDVEIDAD ÞÉR FYRIRHÖFN • Afsöl og sölutilkynningar bifreiða • Húsaleigusamningar (löggiltir) • Tekið á móti skriflegum tilboðum Viö viljum vekja athygli á að þú getur látiö okkur sjá um að svarafyrir þig símanum. Við tökum á móti upplýsingum og þú getur síðanfarið yfir þær í góðu tómi virka daga kl. 9—22 OPIÐ: laugardaga 9—14 sunnudaga kl. 18—22 Tekið er á móti myndasmáauglýsingum og þjónustuauglýsingum virka daga kl. 9—17. SÍMINN ER 27022 ATHUGIÐ Ef smáauglýsing á að birtast í helgarblaði þarf hún að hafa borist fyrir kl. 17 föstudaga. SMÁAUGLÝSINGADEILD, ÞVERHOLT111# SÍMI 27022. r Selfoss: Oánægjameð hækkanir raf- magns og hita Hér á Selfossi er atvinnuleysi eins og hafa hækkaö mikið en hækkun hennar víöa annars staöar á landinu síöan alþingiskosningarnar fóru fram. Mikil óánægja er hjá fólki meö þessar miklu rafmagnshækkanir á Selfossi á síðast- liönum 14 mánuöum. Hjá Rafveitu Selfoss hefur almennur taxti hækkaö úr 2,20 krónum frá 1. nóvember 1982 í krónur 4,65 á kílóvatt- stundina. Þetta finnst fólki vera geysi- leg hækkun enda nemur hún 111,4%. Einnig finnst fólki á Selfossi hitaveitan Líkamsræktarkennsla: Megin- áherslan lögðá brjóst, lendar og mitti Megináherslan er lögö á brjóst, lendar og mitti í líkamsræktarkennslu sem Vaxtarræktin er aö hefja. Góð ráö veröa gefin um mataræöi og fleira sem tengist heilbrigöi líkamans. Slik kennsla mun nýnæmi á Islandi að sögn forráöamanna Vaxtarræktarinnar. Kennslan fer fram í hópum í tveim sölum, annars vegar tækjasal og hins vegar í leikfimisal og er um 25 mínútur aö ræöa í hvorum sal. -ÞóG. nemur 62%. Þar aö auki hefur hita- veitan nýlega sótt um að fá aö hækka taxta sína um 36% til viöbótar. Fólki finnst þetta mikið ranglæti og skilur ekki í þessum hækkunum þar sem kaup hefur lítið sem ekkert hækkað. Hér er snjór yfir öllu en hefur veriö besta veður og sól síðustu daga. -Regína/Selfossi. Vaxtarræktin rær aö því öllum árum að fegra kroppa íslendinga, nú með kennslu í líkamsrœkt. Röntgentæki bregðast — á Selfossi I gær var greint frá því í DV að fimmtán ára gamall piltur heföi slasast í árekstri á Selfossi sl. laugar- dag. Eftir áreksturinn var pilturinn fluttur á heilsugæslustöðina á Selfossi en síöan á slysadeildina í Reykjavík. Var drengurinn talinn lærbrotinn. Viö höfðum samband viö Guðmund B. Jóhannsson röntgenlækni á heilsu- gæslustööinni á Selfossi og spuröum hvers vegna drengurinn heföi veriö fluttur til Reykjavíkur vegna lær- brots? „Viö erum meö tveggja ára gömul röntgentæki hér sem hafa veriðbiluö. Reyndar voru viðgeröarmenn hér nýlega sem gerðu við tækin. En á laugardag kom í ljós aö framköllunar- vél var biluð,” sagöi Guðmundur. „Þetta er mjög bagalegt fyrir okkur þvi önnur aöstaða hér er mjög góö. Við þurftum til dæmis að bíöa i hálfan mánuö nú eftir áramótin áöur en viðgeröarmennirnir komu austur. Á sunnudag komu þeir strax og tóku framköllunarvélina. Viö búumst viö aö fá nýja vél í staðinn eöa aðra notaða. Það er slæmt þegar svona lykilatriði bregst en nú vonum við aö eitthvað róttækt verði gert til aö koma þessu í lag.” -ÞG. fíeirí Eyjaferöir Flugleiöir hafa ákveðiö að fjölga ferðum til Vestmannaeyja um þriöj- ung. Frá og meö 13. febrúar næstkom- andi veröa farnar tvær feröir á virkum dögum, aö morgni og síðdegis. A laugardagsmorgnum veröur ein ferö og sömuleiðis á sunnudögum. Flugleiðir bjóða upp á helgarferöir til Eyja með gistingu. Ennfremur upp á stutta skoðunarferð á laugardags- morgnum. -KMU. Harður árekstur í Kópavogi Rétt fyrir klukkan átta á sunnu- dagsmorgun varö harður árekstur á Hafnarfjaröarvegi í Kópavogi. Öku- maöur saltdreifingarbifreiðar frá Vegagerðinni stöðvaöi bifreiö sína og Mercedes Benz bifreiö sem á eftir kom lenti aftan á henni. Vegna hálku sem var á veginum náöi ökumaöur Mercedes Benz bifreiðarinnar ekki að stööva hana. Skemmdist Benz-bif- reiðin mjög mikið. Auk ökumanns var einn farþegi í bifreiðinni sem slasaöist ábaki. -ÞG. Mikill reykur í kjallaraíbúð Slökkviliöiö í Reykjavík var kallað út aðfaranótt laugardags vegna elds í kjallara húss viö Lyngbrekku í Kópa- vogi. Mikill reykur var í íbúöinni og fóru þrír reykkafarar inn í kjallarann sem reynchst mannlaus. Kjallara- íbúðin og önnur íbúö í húsinu voru loft- ræstar með blásurum en mikill reykur var í íbúðunum. Tveir voru fluttir á slysadeild vegna gruns um reykeitrun. -ÞG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.