Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1984, Page 31
DV. MIÐVIKUDAGUR1. PEBROAR1984.
31
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Meiri orkubót
Nýlega keypti Oskar Sigur-
pálsson, fyrrum lyftinga-
kappl og lögregluþjónn,
iíkamsrektarstofuna Orku-
bót á Grensásvegi. Seljand-
inn Svetnbjöm Guðjohnsen
brá sér siðan með Tomma í
Tomma-hamborgurum hf.
rakleitt til Bandaríkjanna.
Þeir eru ekkert frekar að
flýta sér heim aftur úr ieyfinu
og þar sem þeir hafa undan-
farið dvalið í ólympíuborg-
inni Los Angeles er eins víst
að þeir komi ekkert aftur fyrr
en að leikunum loknum i
sumar.
í ávöxtunum
Samkvæmt siðustu tain-
ingu hiliir undir að Tomma-
hamborgarar hf. seiji ham-
borgara númer 1.500.000. Ef
beitt er reikningskúnstum
þýðir þetta sem dæmi að hver
einasti íslendingur hafi getað
keypt rúmlega sex hamborg-
Tommi — æfír nú kastgrein-
ar kokksins i óiympíuborg-
inni.
ara hjá þessu eina fyrirtækl á
þeim fáu misserum sem það
hefur verið starfrækt. Ætla
má að McDonald bylti sér
yfir þessum tíðindum.
Annars er stofnandinn og
aðaleigandinn Tommi, Tóm-
as Tómasson, í orlofi eftir
átakið við að koma öllu á
laggirnar. Hann dvelur í góðn
yfirlæti vestur í Los Angeles
og hefur sér helst til dundurs
að iðka aivöru-likamsrækt.
Tommi er sem sagt að njóta
ávaxtanna af hamborgara-
ævintýrinu.
Heitt og
kah
Sú saga er sögð af Ómari
Ragnarssyni að hann
skemmti ekki á samkundum
þar sem fólki er boðið upp á
kaffieða ís.
Þar sem kaffi er á boðstól-
um flýtir fólk sér að hræra út
í það sykur og mjólk og sötra
það áður en það kólnar. Þar
sem ís býðst liggur fólki jafn-
vel enn meira á að slafra
hann i sig áður en hann
bráðnar.
Hvort tveggja veldur trufl-
un þegar skemmtikrafturinn
ætlar að láta til sín taka og
dregur athyglina frá honum.
Hins vegar er Omar það
kraftmikill kraftur, að fólk
Ómar — skammtir alls ekki
í sóöaiegum samkvæmum.
hefur tekiö að klappa með
bollana eða ísinn í höndunum.
Og ekki er til umræöu að
Ómar skemmti i sóðalegum
samkvæmum.
Kanna
Hagvangur hf. kemur víða
við í grúski um hitt og þetta.
Fátt er fyrirtækinu óviðkom-
andi, sem síst ber að lasta. Þó
ekki væri nema fyrir það, að
okkur þessum fáu hræöum
hér á skerinu hefnr tekist að
koma upp svo flóknu þjóð-
félagsleikriti, að meirihluti
okkar fær brátt vinnu viö að
reyna að skilja það.
Og nú ætia Hagvangsmenn
enn að skyggnast inn f leik-
húsið og kanna gildismat
þjóðarinnar. Rekast mátti á
umsókn þeirra um f járstuðn-
ing við verkefnið tU Kópa-
vogsbæjar í fundargerö
bæjarráös þar. Varla er
Kópavogsbúum þó einum
ætiað að borga slíka könnun,
enda er tU dæmis gUdismat
Kópavogsbúa og Hafnfirö-
inga sagtaUtannað.
*
Ástrikur
„Eg er elskur að þessu
landsvæði, Akureyri og
Eyjafirði, af sérstökum
ástæðum, því að sá Utli þroski
sem ég kann að hafa meðtek-
iö á lífsleiðinni var tekinn út
þar,” hefur mánudags Dagur
á Akureyri eftir Sverri Her-
mannssyni iðnaðarráðherra.
Yfiriýsingin tengist þeim
ásetningi ráöherrans að
koma upp álveri við Eyja-
fjörð. Hefur Dagur ennfrem-
ur eftir honum að Alcan-
hringurinn í Kanada sýni
málinu mikinn áhuga eins og
raunarfleiri.
Umsjón:
Herbert
Guðmundsson.
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
Laugarásbíó—Videodrome:
FRAMTÍÖARVIDEO
Heiti: Videodrome.
Leikstjóri og handritshöfundur: David Cronen-
berg.
Kvikmyndun: Mark Irwin.
Tónlist: Howard Shore.
Aðalleikendur: James Woods, Sonja Smits og
Deborah Harry.
David Cronenberg vakti fyrst á sér
verulega athygli með Scanners,
magnaðri hryllingsmynd um hugar-
orku og einstaklinga er voru gæddir
þeim hæfileika meira en nokkur
hefur gott af. Cronenberg notfæröi
sér tæknina við förðun, ásamt
brellum, á mjög svo áhrifamikinn
hátt.
Því var það með nokkrum spenn-
ingi sem ég fór að sjá nýjasta af-
kvæmi Cronenbergs, Videodrome.
En því miöur, þrátt fyrir góöa
hugmynd og nokkur minnisverð at-
riði, nær Videodrome ekki þeim
tökum á manni sem Scanners gerði.
Kemur þar einkum til að það er eins
og Cronenberg hafi ekki vitaö ná-
kvæmlega hvað hann átti að gera við
handrit sitt. Subbuskapurinn verður
yfirgnæfandi og þau atriði sem eiga
að virka mest sjokkerandi á áhorf-
andann í enda myndarinnar ná ekki
tilgangi sínum vegna ofnotkunar.
Efni myndarinnar er video-
væðingin og gerist myndin þegar f átt
er orðið um spennandi hluti í sjón-
varpinu. Allt efni er hluti daglegs lífs
neytandans og erfitt að finna upp á
einhver ju sem vekur spenning.
Max Renn (James Woods) er
stjómandi einnar lítillar sjónvarps-
stöövar sem hefur ekki gott orð á sér
og talin gera mikið úr öllum óþverra-
skap. En þetta nægir ekki Renn. Og
þegar hann kemst á snoðir um aö
veriö sé að sjónvarpa efni sem
byggist á pyntingum og nefnist
Videodrome og talið er vera gert í
Pittsburg vUl hann endUega komast í
samband við stjórnendur þáttanna,
en það reynist honum erfitt.
Eftir mdda leit kemst hann þó í
samband viö aðila sem standa aö
þátturoþessum sem ekki er enn farið
að senda á almennan markað og
kemur þá í ljós að þetta er enginn
venjulegur sjónvarpsþáttur, heldur
er sendur um leiö út geisU sem hefur
þau áhrif á áhorfendur að þeir sjá
hryUUegar ofsjónir sem hefur alvar-
legar afleiðingar á heUsu þeirra.
Max Renn ánetjast þessum geisla og
verður um leið auðvelt verkfæri í
höndum stjómanda þáttanna. Og
þrátt fyrir aö hann geri sér grein
fyrir ástandi sínu getur hann lítið að
gert, en hjálpin er nálægt eða
hvað. ..?
Videodrome byrjar mjög vel.
Videovæöing á háu stigi er efni sem
gera má sér mat úr og David
Cronenberg hefur full tök á efniviði
sínum í byrjun, en fljótlega verður
myndin nokkuö brokkgeng og um
leið og spumingunum fjölgar verður
fátt um svörin og mundi myndin fá á
sig blæ ósköp venjulegrar hryllings-
myndar af skárri geröinni, ef ekki
væri fyrir frábæran leik James
Woods í aöalhlutverkinu. Þessi ágæti
leUcari virðist vaxa með hverju hlut-
verki sem hann tekur sér fyrir
hendur og er sá leikari sem er að
verða einna mest spennandi að
fylgjast með. Meðleikarar Woods fá
lítil tækifæri, en þó er gaman að sjá
Deborah Harry, s'em þekktari er sem
söngkona í Blondie og kemst hún
ágætlega frá litlu en nokkuð áhrifa-
miklu hlutverki.
Þótt Videodrome nái ekki sömu
gæðum og Scanners þá held ég að
óþarfi sé að óttast um hæfileika
Cronenbergs. Hann sýnir á nokkrum
stöðum í myndinni hvers megnugur
hann er í gerð spennumynda. Hann
þarf aðeins að forðast endurtekningu
á sjokkerandi atriðiun sem hann
gerir að vísu mjög vel en verða lítt
spennandi til lengdar.
Hilmar Karlsson.
Max Renn (James Woods) ásamt tæknimanni reyna að hafa upp á Videodrome á öldum ljósvakans.
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum
í gerð Suðurlandsvegar, undir Eyjafjöllum.
Helstu magntölur eru:
Fylling og burðarlag 40000 rúmmetrar
Tvöföld klæðning 95000 fermetrar
Heildarlengd 15800 metrar
Verkinu skal að fullu lokið 1. september 1984. ,
tJtboðsgögn verða seld hjá aðalgjaldkera Vegagerðar ríkis-
ins, Borgartúni 5, Reykjavík, og Vegagerð ríkisins, Breiðu-
mýri 2, Selfossi, frá og meö miðvikudeginum 1. febrúar nk. og
kosta 1.000 kr. eintakið.
Fyrirspurnir ásamt óskum um upplýsingar og/eða breyt-
ingar skulu berast Vegagerð ríkisins skriflega eigi síðar en 22.
febrúar 1984.
Gera skal tilboð í samræmi við útboðsgögn og skila í lokuðu
umslagi merktu nafni útboös til Vegagerðar ríkisins, Borgar-
túni 7,105 Reykjavík, eða Vegagerðar ríkisins, Breiðumýri 2,
800 Selfossi, fyrir kl. 14.00 hinn 5. mars 1984 og kl. 14.15 sama
dag verða tilboðin opnuð á þessum stöðum að viðstöddum
þeim bjóðendum, sem þess óska.
Reykjavík í janúar 1984
Vegamálastjóri.
Tilboð
Ödýr Compact byrjenda-
skíði fyrir fuliorðna með
LOOK öryggisbindingum.
Stærðir: 170 - 180 - 190.
Verð m/bindingum aðeins
kr. 1.995,-
Ódýr unglinga tréskíði
m/LOOK öryggisbindingum.
Stærðir: 160 - 170 - 175.
Verð aðeins kr. 1.750,-
Póstsendum
Garmont skíðaskór.
Stærðir: 39-42, kr. 800,-
Utilíf
Glæsibæ — Sími 82922.
a
i
j