Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1984, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1984, Síða 32
32 DV. MIÐVIKUDAGUR1. FEBRUAR1984 DV. MIÐVKUDAGUR1. FEBRUAR1984. 33 Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Snöggur snúningur Kettir eru snöggir í snúningum. Þurfa ekki nema rétt rúmlega hálían annan metra til að snúa sér úr rangstöðu í réttstöðu — í lausu lofti. Flesta ketti munar ekki mikið um að falla ofan af annarrí hœð á húsi. Aftur á móti eiga þeir það til að brákast ef þeir detta ofan af þriðju hæð og f jórða hæðin getur verið banvæn. Það getur verið kalt í Boston þar sem þessi mynd var tekin af samræðum tveggja manna. Kannski hafa þeir verið að taia um veðrið. AIDS Tveir bandarískir læknar sem rann- sakað hafa sjúkdóminn AIDS, áunna ónæmisbæklun eins og það er nefnt á íslensku, og aðallega leggst á kyn- hverfa menn, segjast óttast faraldur í Bandaríkjunum áður en langt um líður. Hafa læknarnir rannsakað 6.500 kynhverfinga í Los Angeles og byggja skoöun sína á niðurstöðum þeirra rannsókna. AIDS lýsir sér í því að sjúklingurinn tapar mótstöðuafli sínu gegn sjúk- dómum hversu smávægilegir sem þeir eru og þrátt fyrir miklar rannsóknir standa læknar enn ráðþrota gagnvart fyrirbærinu. Vita h'tið sem ekkert um tilurð sjúkdómsins né hvernig hann dreifist. Ýmislegt bendir til að kyn- Ekkert skegg íRússlandi Málgagn sovésku verkalýðs- hreyfingarinnar, Trud, hvetur nú félagsmenn sína til að raka af sér skeggiö og vitna í vísindamenn sovésku læknaakademíunnar: „Sýklar og veirur safnast í yfirvaraskegg jafnt sem alskegg og þaðan sogast þær ofan í lungun með ófyrirsjáanlegum afleið- ingum,” segir í blaðinu. Rússnesku ortodoxprestarnir eru ekki á því að gefa upp aldagamla hefð og láta raka af sér þykkt alskegg sitt en af þeim frátöldum eru vart nema nokkrir afleguhippar með alskegg í Sovétríkjunum. Eins og kunnugt er af myndum er enginn meðhmur Æðsta- ráðsinsmeðskegg. hverfir menn sem lifa frjálsu ástarlífi séu í mestri hættu en einnig koma löndin Haiti og Zaire við sögu. Athyglisvert þykir að nær því allir þeir 40 Belgar sem fengið hafa AIDS hafa átt mök við kynbræður sína frá Zaire. A sjúkrahúsum í Kinshasa, höfuöborg Zaire, liggja fjölmargir AIDS-sjúkl- ingar, bæöi konur og karlar. S&l Afráðið mun að söngvaramir Frank Sinatra og Juho Iglesias opni ólympíu- leikana í Los Angeles á sumri kom- anda með svo sem einu léttu lagi. Varla verður það Jói útherji. 7 börn á mínútu I Bandaríkjunum fæðast 7 böm á mínútu — a.m.k. var það þannig 1982. Mest var fjölgunin í Kalifomíufylki, 435.019 fæðingar. Á landsmælikvarða fjölgaöi Bandaríkjamönnum um 3,7 milljónir vegna alls þessa. Þeir leika knattspyrnu með sinu lagi i Bandarikjunum — eða lýgur myndavélin? Bandarísk knattspyma: Byssur og hjálmar Bandaríkjamenn kunna að skemmta fólki og eru reiðubúnir til að gera næstum hvað sem er th að ná því tak- marki sínu. Sagt er að Alþjóðaknatt- spyrnusambandið, FIFA, hafi nú vissar áhyggjur af nýjustu hug- myndum Bandaríkjamanna um breyt- ingar á hefðbundnum knattspymu- reglum. Leggja þeir til að knatt- spyrnudómarar leggi flautuna á hih- una og noti startbyssu í hennar stað og svo vilja þeir að markverðir verði látnir vera með hjálma. Þessum bandarísku hugmyndum er Ula tekið í Evrópu og mun Bretum renna kalt vatn mUh skinns og hömnds við tUhugsunina eina. Það eitt vakir fyrir Bandaríkjamönnum að auka aðsókn að knattspymuleikjum — gera leikina skemmtilegri og meira spenn- andi. Sviðsljósið Sviðsljósið Michael Jackson missti háriö í bruna — reykbomba í auglýsingamynd sprakk of nærri Það hefði þótt í frásögur færandi á sínum tíma ef Bítlamir hefðu misst hárið. Um síðustu helgi varð það slys viö töku auglýsingakvikmyndar í Los Angeles í Bandaríkjunum að reyk- bomba sem ætlað var aö springa tU skrauts sprakk of nærri söngvaranum Michael Jackson með þeim afleið- ingum að þaö kviknaöi í hári hans og var hann fluttur á sjúkrahús með annars stigs bruna. Jackson var ný- byrjaður að safna hári og varð eldur- inn því meiri en ella. Fjölmargir vom viðstaddir upptöku auglýsinga- myndarinnar sem gekk út á að Jack- son söng nýjan texta við lag sitt BUly Jean þar sem ákveöin gosdrykkja- tegund var dásömuö og þegar söngvar- inn stóö svo allt í einu í ljósum logum á miðju sviöinu var honum klappað lof í lófa. Héldu áhorfendur aö þetta væri hluti af sýningunni. Þrátt fyrir hár- missinn telja læknar að Jackson hafi sloppið vel frá þessu öllu saman, hárið nái fyrri lengd á 3—4 vikum og ekki þurfi að kveðja lýtalækna til. Michael Jackson, sem er 25 ára gamall og hefur selt nýjustu skífu sína, ThrUler, í 20 mUljónum eintaka, ráð- geröi heimsreisu með bræðrum sínum Tito, Marhn, Jermaine, Jackie og Randy seinna á þessu ári og vom tón- leikar fyrirhugaðir í flestum stór- borgum veraldar. Þeir bræður voru þekktir hér á árum áöur undir nafninu Jackson 5. Michael Jackson er meðhmur í sér- trúarsÖfnuðinum Vottar Jehóva og býr einn með móður sinni og fjölmörgum gæludýmm. I húsi þeirra er einnig danskur pulsuvagn. Michael Jackson: Hárið brann en vex á ný. Sviðsljósið Skyldi hann vera fuiiur? Skíéamenn á fullu - fullir? „Þaö er ekki rétt aö 40% af slysum sem verða á skiðafólki í austurrísk- um skíðabrekkum megi rekja til áfengisneyslu,” sagði talsmaður austurrisku stjómarinnar á frétta- mannafundi fýrir skömmu. Vísaði hann þar með á bug fullyrðingum dr. Richard Dirnhoffer sem lét að því liggja á alþjóðlegri skíðaráðstefnu fyrir skömmu að nær því helmingur allra áfalla skiöamanna í Austurriki væri Bakkusi konungi að kenna. „Þetta er uppspuni og ekkert annað,” sagði talsmaður stjómar- innar, „slysin verða vegna þess að skíðafólk vanmetur eigin getu áður en lagt er í erfiðar brekkur. ” Á siðasta ári slösuðust 35.000 skíða- menn í Austurríki og það sem af er þessu ári hafa 20 látist. Magadans- mæríkassa Louise Frevert heitir hún maga- dansmærin sem skemmtir í Þórskaffi þessa dagana. Hún er dönsk, þó ótrú- legt megi virðast miðað við hreyfing- arnar, og hefur sér til aðstoðar þrjá danska dansara. Hún kann líka að dansa gangster- dans í James Bond stíl og kórónar svo sköpunarverkið með því að láta aðstoðarmenn sína pakka sér ofan í kassa — magakassa? Svefn- herbergið hættulegast Svefnherbergið er hættulegasta herbergi heimihsins. Svo segja vísindamenn. Algengustu slys í heimahúsum felast í því að fólk detti, verði fyrir eitmn, kafni eða þá að það kvikni í. Langmestur hluti þessara slysa á sér einmitt stað í svefnherbergjum. INGOLFUR GUÐBRANDSSON sést hér stjórna félögum í Pólyfónkómum í veitingahúsinu Broadway fyrir skömmu. Þar kynnti Ingólfur m.a. FRI- klúbbinn sem starfar á vegum ferðaskrifstofunnar Utsýnar og hefur það að markmiði að auðvelda Otsýnarfarþegiun sumarleyfisferðir með hagstæðum lánum hérlendis og afslætti hjá fyrirtækjunum, bæði hér á landi og erlendis. „Markmiðið með stofnun FRI-klúbbsins er að gera sumarleyfið bæði ódýrara og ánægjulegra,” sagði Ingólfur í Broadway fyrir troðfullu húsi. -DV-myndEÓ. PRÓFESSOR HiGGiNS sem nú dvelur á Akureyri ásamt Elísu sinni varð 41 árs fyrir skömmu. Þ.e.a.s. Arnar Jónsson sem leikur Higgíns iMy Fair Lady hjá Leikfóiagi Akureyrar. Eftir 40. sýningu á söngleiknum, en þann dag varð Arnar 41, bauð forstjóri Sjallans aðstandendum sýningarinnar i náttverð i Mánasal sínum og við það tækifœri var þessi mynd tekin af afmæiisbarninu og leikhússtjóra Akureyringa, Signýju Pálsdóttur. DV-mynd JBH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.