Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1984, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1984, Síða 1
DAGBLAÐIЗVÍSIR 55. TBL. — 74. & 10. ÁRG. — MÁNUDAGUR 5. MARS 1984. „Erum ekki eins rík og við höfum haidiö, ” segir fjármálaráðherra: Háttíþriggja milliarda gat „Þetta er ekki nýtt vandamál nema aö hluta til en þaö hefur skýrst og vaxið talsvert síðustu mánuði, meðal annars vegna þess að það eru ekki allir tilbúnir til þess aö horfast í augu viö staðreyndir,” segir Aibert Guðmundsson fjármálaráöherra. Á fimmtudaginn mun hann gera grein fýrir stööu ríkissjóðs eftir nýja endurskoöun. Gat milli tekna og gjalda í f járlögunum er nú orðið tals- vert á annan milljarð króna. Ráöherrann kvaðst ekki enn hafa nákvæmari tölu en á milli manna í kerfinu hefur verið fleygt tölum allt að 1,8 milljörðum. Halli á afkomu ríkissjóðs í fyrra varð yfir 1,2 millj- arðar sem er nú skuld við Seðlabank- ann. Þótt hluti af hallatölunum blandist saman virðist gat í afkomu ríkissjóðs samanborið við fjárlög í fyrra og nú vera hátt í þrír millj- arðar króna. Þetta er há tala þegar þess er gætt að fjárlögin eru upp á um 18 milljaröa króna. „Vandamálið er vissulega stórt,” segir fjármálaráðherra. „Með nýjum starfsháttum og stöðugri — íafkomu ríkissjoðs samanborið við fjárlög f fyrra og nú endurskoöun kemur það nú strax í ljós og ég vil að almenningur geri sér þetta ljóst nú þegar. Við erum ekki eins rík og við höfum haldiö. Aður hefur vanda af þessum toga verið velt á undan sér í blindni og hann síð- an leystur seint og síðar meir með fjáraukalögum og nýjum sköttum. Þá leið vil ég ekki fara.” -HERB. BoÚa, bolla, bolla. Það fer vísast ekki framhjá neinum að í dag er bolludagurinn. Um allt land mun fólk raða í sig bollum, rétt eins og því sé borgað fyrir það. Þær Ragna Blöndal og Sigurbjörg Magnúsdóttir í Nýja kökuhúsinu við Hringbraut voru brosmUdar með bollurnar i morgun en þeir verða ófáir boUubakkarnir sem þær fá að bera í dag ef að líkum lætur. DV-mynd S. Bergþórshvols- prestakall: LITLAR HORFUR A SÁTTUM — meðan presturinn biðurengan fyrirgefningar Sóknamefndirnar í Bergþórshvols- prestakalli mættu ásamt séra Páli Pálssyni sóknarpresti og séra Sváfni Sveinbjarnarsyni prófasti á sáttafund hjá biskupi síðastliðinn föstudag. Eins og DV hefur skýrt frá hefur séra Páll átt í útistööum við Eggert Haukdal og stuðningsmenn hans, sem eftir sögulegan safnaðarfund fyrir hálfum mánuði mynda nú meirihluta sóknarnefndar Vestur-Landeyja. Nýi sóknamefndarformaðurinn, Tómas Kristinsson í Miðkoti, var spurður hvort friðarhugur væri i mönnum eftir fundinn á biskupsstofu: „Jú. Þaö er friöarhugur í mönnum því að við vomm ekki vön ófriði hér áður. En presturinn hafði ekki neitt fram að færa á fundinum, bauð ekkert fram, bað engan fyrirgefningar á framkomu sinni við sóknarböm sín, á kærum og blaðaskrifum eða annarri framkomu sinni. Á meðan em litlar horfur á sáttum í söfnuðinum,” sagði Tómas. -KMU. Grindavíkurskákmótið: Spenna færist íleikinn Hart er barist á alþjóðlega skák- mótinu í Festi í Grindavík, aðeins einni skák í 5. umferð lauk með jafntefli. Jón L. og Christiansen sömdu um jafntefli er skákin átti að fara í bið, eftir nokkr- ar sviptingar í Caro-Kann vörn. Onnur úrslit í 5. umferö urðu þau að Knezevic vann Jóhann, McCambridge vann Elvar, Helgi vann Hauk og Gutmann vann Lombardy. Skák Björgvins og Ingvarsfóríbið. 13. umferð, sem tefld var á föstudag, gerði Elvar sér lítiö fyrir og lagði Gut- man að velli, Helgi vann McCambridge, Jón L. vann Hauk, Ingvar tapaði fyrir Christiansen eftir að sá síðarnefndi fórnaði drottningunni og Jóhann vann Björgvin. Jafntefli sömdu Knezevic og Lombardy. Ingvar missti af vinningsleik gegn Jóni L. í 4. umferö og tapaði og Haukur vann Björgvin. öðram skákum úr um- ferðinni lauk með jafntefli. Jóhann og Helgi sömdu og fengu sér sundsprett í Bláa lóninu og skákum McCambridge við Knezevic, Christiansen við Gutman, og Lombardy við Elvar lauk á sama veg. Eftir 5 umferðir eru Jón L., Christiansen og McCambridge efstir með 3 1/2 v., Helgi, Knezevic og Gut- man hafa 3 vinninga og 2 1/2 v. hafa Elvar og Lombardy. Sjötta umferð hefst i dag kl. 16. -JLÁ. Dagur íslendinganna sja bls. 4 Atómstööin frumsýnd — sjá bls. 2 og gagnrýni bls. 43 Úrsiit f eðlisfræðikeppni — sjá baksíðu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.