Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1984, Síða 4
4
DV. MANUDAGUR 5. MARS 1984.
Bridgehátíð 1984:
LAUGARDAGURINN
DAGUR ÍSLANDS
VAR
Það mætti segja aö laugardagur-
inn hafi veriö dagur Islands á
Bridgehátíö 1984 því er tvær umferö-
ir voru eftir af tvímenningskeppn-
inni, þá komu aöeins tvö pör til
greina sem sigurvegarar, Guðlaugur
og Orn, eða Guðmundur og Þórarinn.
Bæöi pörin gáfu aöeins eftir í síö-
ustu umferöunum en Guölaugur og
örn, sem höfðu 34 stiga forskot fyrir
síðustu umferö, sigruöu meö 2 stiga
mun. Glæsileg frammistaöa hjá
þeim félögum og ekki er frammi-
staöan lakari hjá Guömundi og Þór-
ami sem uröu í öðru sæti annaö árið í
röö.
Frá Bridgehátíð 1984. örn Amþórs-
son og Guðlaugur R. Jóhannsson að
spila við Hrólf Hjaltason (fyrir
Annars var gangur mótsins sá aö
fyrstu umferðirnar leiddu Höröur
Arnþórsson og Jón Hjaltason en í 10.
umferö tóku sænsku bridgemeistar-
amir Gullberg og Göthe forystuna.
Var staöa efstu para þá þessi:
1. Tommy Gullberg-Hans Göthe 106
2. Guftm. Péturss.-Sigtryggur Sigurðss. 104
3. Aftalsteinn Jörgens.-Runólfur Pálss. 102
Svíamir héldu síðan forystunni allt
miöbik mótsins en í 35. umferð höfðu
Guölaugur og öm náö efsta sætinu
og staðan var þessi:
1. Guftl. R. Jóhannss.-Örn Arnþórss 298
2. Tommy Gullberg-Hans Göthe 278
3. Guftm.P. Arnars.-Þórarinn Sigþ. 211
Guðmundur og Þórarinn skoruðu
síöan látlaust næstu sex umferöir og
Stefán Guðjohnsen
miðju) og Jónas P. Erlingsson sem
snýr baki í ljósmyndarann, Bjamleif
Bjarnleifsson. Meðal áhugasamra
eftir 41. umferð af 43 var staöan
þessi:
1. Þórarinn Sigþ.-Guftm. P. Arnars. 302
2. Guftl. R. Jóhannss.-örn Arnþórss. 298
3. Tommy Gullberg-Hans Göthe 228
4. Alan Sontag-Steve Sion 208
5. Göran Petterson-Leif Svenzon 199
I næstsíðustu umferö áttu Þórar-
inn og Guömundur aö spila viö
Bandaríkjamennina Molson og Cok-
in, en Guölaugur og Öm viö Vilhjálm
og Þórð frá Selfossi.
Bandaríkjamennirnir gjörsigruðu
Þórarin og Guömund á meöan Guö-
laugur og Örn lögöu Selfyssingana.
Þeir höföu því 34 stiga forskot fyrir
síðustu umferö.
I síöustu umferöinni spiluðu Guð-
mundur og Þórarinn viö Vilhjálm og
Þórö og unnu meö 14 stiga mun á
meðan Guðlaugur og Öm töpuöu fyr-
ir Jóni Páli Sigurjónssyni og Sigfúsi
Arnasyni meö 18 stiga mun. Þaö
geröu aðeins 32 stig í mismun milli
paranna og sigur Guðlaugs og Arnar
var staðreynd.
Röö og stig tíu efstu para var
áhorfenda eru Hjalti Elíasson, Gunn-
ar Þorkelsson og Óli Már Guð-
mundsson.
þannig en þau hlutu öll dollaraverö-
laun:
1. Guftl. R. Jóh.-Örn Arnþórss. 289
2. Guðm. P. Amars.-Þórarinn Sigþórss. 287
3. Tommy Gullberg-Hans Göthe 238
4. Alan Sontag-Steve Sion 222
5. Aftalstemu Jörgcnsen-RunólfurPálss. 199
6. GöranPetters.-Leif Svenzon 187
7. Tony Forrester-Guss Calderwood 184
8. Hrólfur Hjaltas-Jónas P. Erlingss 152
9. Hörður Biöndal-Jón Baldurss. 140
10. Stefán Guftjohnsen-Þórir Sigurftss. 138
Uppgjör tveggja efstu paranna
var í 16. umferö mótsins og sigruöu
Guölaugur og öm meö 4 stiga mun.
Guðlaugur og örn tóku hagstæða
fórn í eftirfarandi spili og má segja
aö þaö hafi verið sigurspilið:
Vestur gefur/a-v á hættu
VkSti k Norðuk A G876 7? G9862 O DG6 * G Ausrui:
* KD10953 A A4
Í7KD5 Á1073
0 107 0 Á94
+ D5 * 10972
Sl'IIDI! A 2 4 ; K8532 * AK8643
Meö Guölaug og örn n-s, en Guð-
mund og Þórarin a-v gengu sagnir á
þessa leið:
Vestur Norður Austur Suður
1S pass 1G pass
2S pass 3G 4L
pass pass 4S 4G
dobl 5L dobl pass
pass 5T dobl pass
pass pass
Vandamál Guömundar í útspilinu
stóö einungis um þaö hvort hann ætti
aö spila litlu trompi út, trompás og
meira trompi. Eins og spilið er
skiptir ekki máli hvort hann gerir en
hann valdi aö spila litlu.
Urspilið var einfalt. Guölaugur drap
heima, tók tvo hæstu í laufi og tromp-
aði lauf. Gaf síöan einn slag á tromp
og einn á hvern hinna litanna, tveir
niöur og 300 til a-v í staö 620.
Örfá pör tóku fórnina sem samt
virðist blasa viö á hagstæöum hætt-
um.
I gær hófst síðan sveitakeppni 32
sveita eftir Monradfyrirkomulagi og
veröur nánar sagt frá henni í blaöinu
á morgun.
Mótinu lýkur seint í kvöld meö
verðlaunaafhendingu.
Samningar
samþykktir
á Eskifirði
Félagsfundur í Verkalýösfélaginu
Árvakri á Eskifiröi var haldinn á
sunnudag og var þar f jallaö um samn-
ingana og þeir bornir undir atkvæði. A
fundinum voru 12 félagsmenn af 260
sem aöiid eiga aö félaginu og féllu at-
kvæði þannig að 6 samþykktu samn-
ingana, 1 var á móti og 5 sátu hjá.
Samþykkt samninganna mun hafa
veriö bundin munnlegu samkomulagi
við atvinnurekendur á staönum um
að fuliorðinskaup yröi miðað við 16 ára
aldur. Formaður Árvakurs, Hrafnkell
A. Jónsson, vildi ekki staöfesta eöa
neita því að slíkt samkomuiag hefði
verið gert en sagöist vænta þess aö at-
vinnurekendur litu á þetta mál meö
velvilja.
Þá var á félagsfundinum samþykkt
áskorun til ríkisstjórnarinnar um að
bæta hag elli- og örorkulífeyrisþega.
Emil Thorarensen Eskifirði
Imbrudag-
ar Fjöl-
brauta
Garðaskóla
Imbrudagar Fjölbrauta Garðaskóla
hefjast í dag, mánudag. Skólinn verður
opinn fjögur kvöld vikunnar, á mánu-
dagskvöldiö leikur „Jazzbandið”. A
þriöjudagskvöld veröur svo árshátíö
nemenda haldin í húsakynnum Oðins
og Þórs. Valgeir Guöjónsson stuömaö-
ur meö meiru veröur á staönum á
fimmtudagskvöld, veröur þá einnig
létt jazzkynning. „Gómar á vegum
Tannlæknafélagsins” og Hvítasunnu-
popphljómsveitin þeyta ljúfum tónum
um salarkynni skólans á föstudags-
kvöld.
Hápunktur vikunnar verður frum-
sýning óperettunar „Lagsþvæla” eftir
Þór Jónsson, forseta nemendafélags-
ins, í félagsmiöstööinni Garðalundi,
Garöaskóla viö Vífilsstaðaveg laugar-
dagskvöldið 10. marskl. 0.00.
Að lokum má geta þess að þriðju-
daginn 6. mars munu nemendur reyna
við heimsmet sem felst í því að troöa
eins mörgum persónum og hægt er inn
íWartburg.
MS
í dag mælir Dagfari í dag mælir Dagfari í dag mælir Dagfari
Harmur kveðinn að þingflokki
í þann mund sem Norðurlanda-
ráðsfundur stóð sem hæst úti í Stokk-
hóimi og Olafur G. Einarsson haföi
fundið kjól á konu sína, bárust þau
tíðindi heiman frá Islandi að Albert
f jármálaráðherra og Guðmundur joð
hefðu farið í snjósleðaferð upp í
Hveradali og gert vináttusamning
fyrir Dagsbrún. Virðulegum þing-
fulltrúum svelgdist á og simalínur
urðu rauðglóandi, jafnt frá Stokk-
hólmi sem Stykkishólmi þar sem for-
maður Sjálfstæöisflokksins hafði
flutt skammarræðu um Dagsbrún og
lofrullu um stjórnina eins og sönnun
blaðafulltrúa sæmir.
Islenska heimspressan fór af stað
einn ganginn enn í bamslegri
kampakæti sinni yfir þeirri ósvifni
Alberts að gera vini sinum greiða.
Enn á ný æptu menn um allan bæ að
Albert hefði leikið síðasta afleik og
ætti ekkert annað ógert en að segja
af sér. Virðist það vera orðið mesta
áhugamál i fjölmiðlum og hinna
pólitísku siðameistara að koma
Albert úr fjármálaráðuneytinu og er
hann jafnvei ofsóttur í fríhöfninni í
Keflavík í spuraingakeppni blaða-
manna hvort hann hætti eða hætti
ekki.
Hefði maður þó haldiö að fjöl-
miðlar ættu það sameiginlegt hags-
munamái að Albert sæti sem lengst i
ráðherrasól, slíkur fréttamatur sem
hann hefur verið. Maðurinn hefur
ekki mátt ropa á almannafæri, hvaö
þá að gæla við tikina sina, öðruvísi
en að það sá blaðamál um viða
veröld.
Hitt er annað að það kemur engum
á óvart þótt sleðaferð og samkomu-
lag Aiberts og jakans hafi þótt
nokkur tiðindi fyrir Norður-
landaráðsmenn sem í tilbreytingar-
leysinu höfðu það sér helst til
dundurs að kaupa kjóia á konur
sinar, þá loksins ætlast var til að þeir
létu sjá sig á fundunum.
íslendingar eru aftur á móti
sammála um að islenska sendinefnd-
in hafi þar ekki annað þarfara að
gera, og þakkar raunar fyrir, meðan
nefndarmenn kaupa kjóla á konur
sínar en ekki einhverjar aðrar.
Það breytir aftur á móti ekki því
að það var Albert líkt að gauka að
vini sínum og verkamanni,
Guðmundi joð, einni milljón upp á
eigin spýtur meðan heil sendinefnd
eyddi sömu upphæð með ærinni fyrir-
höfn og miklum timburmönnum úti í
Stokkhólmi. Albert hefur áður reynst
margra manna maki.
Litlir karlar reiðast auðvitað ein-
hver ósköp þegar senunni er stoliö
frá þeim. Sérstaklega telst það
dauðasynd í þeirra augum þegar
eitthvað er gert af viti. Það er ekki
venja i islenskum stjórnmálum.
En Albert er heldur ekki neinn
venjulegur stjórnmálamaður. Hann
er meira að segja svo óvanaiegur að
hann kemst upp með hvaða vitleysu
sem er án þess að nokkur maður segi
orð en er á hinn bóginn skammaður
opinberlega þegar skynsemin ræöur.
Þannig hefur þingflokkur sjálf-
stæðismanna sameinaðist í harma-
gráti yfir því að Albert gerði það sem
Ragnar Arnalds mannaði sig aldrei
upp í og leiðrétti kjör Dagsbrúnar-
verkamanna hjá ríkinu. Verða það
að teljast nokkuð sorgleg tiðindi
þegar heilir þingflokkar harma
viðleitni ráðamanna til að eyða mis-
rétti í þjóðfélaginu, ekki sist þegar
þingflokksformaðurinn ætti að vera í
góðu skapi eftir velheppnaða inn-
kaupaferð til Stokkhólms.
Sem betur fer var ekki annað að
heyra nú um helgina en flokkurinn
hefði tekið gleði sina á nýjan leik
eftir harmasamþykktina þvi að bæði
var Albert ljúfur sem lamb og
flokkurinn stóð einhuga i harmi
sfnum. Hvorutveggja teist óvanalegt
á þeim bæ. Segið svo að vináttu-
samningurinn hafi ekki gert sitt
gagn.
Dagfari.