Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1984, Qupperneq 8
8
DV. MANUDAGUR 5. MARS 1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Kafbátaleitin við Karlskrona heldur áfram:
SKOTH) Á FROSKMENN
í KAFBÁTALEITINNI
Sænski herinn heldur stööugt
áfram leit sinni að óþeHctum kaftáti
og froskmönnum úr honum í skerja-
garðinum úti fyrir Karlskrona.
Til nýrra tíðinda dró í gærmorgun
er sænskir hermenn skutu á frosk-
menn sem reyndu að komast undan í
skjóli myrkurs og framhjá sænskum
vörðum á eyjunni Almö. En frosk-
mennirnir hurf u sporlaust.
Svíar eru þess nú fuilvissir aö þeim
hafi tekist að króa inni dvergkafbát
úti fyrir Karlskrona og aðeins geti
verið spurning um tíma hvenær hann
finnist.
Almö er innan þess svæöis sem
sænski herinn girti af fyrir þremur
vikum vegna gruns um aö kafbátur
héldi sig innan þess svæöis. Síöan er
talið að herinn hafi fengið örugga
vitneskju oftar en einu sinni um aö
kafbáturinn sé þarna innikróaður.
„Við höfum vísbendingar um að
við eigum í höggi við marga óboöna
gesti,” sagði talsmaður hersins í gær
en vildi ekki tjá sig frekar um málið.
Sænski herinn hafði í gærmorgun
skýrt frá því að kafbátur héldi sig
fyrir utan kafbátagirðinguna og
hefði djúpsprengjum verið varpað
þar til að hrekja hann í burtu.
Heimildir innan hersins skýröu frá
því að talið væri að þar væri um að
ræða „móðurskip” dvergkafbátsins
sem talinn er vera innan
girðingarinnar og væri „móður-
skipið” sennilega að skipuleggja
flótta þess sem héldi sig innan
girðingarinnar.
Eins og flestum er í fersku minni
strandaöi sovéskur kafbátur í
skerjagarðinum við Karlskrona 1981.
Sovétmenn sögðu þá að um hefði
verið að kenna mistökum við stjórn
bátsins. Voru Svíar lítt trúaðir á þá
skýringu og hafa síðan alltaf annað
slagið talið sig fá öruggar
vísbendingar um aö óþekktir kafbát-
ar haldi sig innan sænskrar
landhelgi.
tbúar Karlskrona fylgjast með er
fjarstýrð neðansjávarmyndavél
sænska hersins leitar að sporum eftir
dvergkafbát inni í Karlskronahöfn.
§g |
Farið f ram á rannsókn Sameinuðu þjóðanna:
Iranir segja að Irakar
noti eiturgas í stríði
Iran hefur fariö fram á það við
Sameinuðu þjóðirnar að þær rannsaki
sem í beiðninni er kallað „notkun Iraks
á eiturvopnum” í Persaflóastríðinu og
sagði auk þess aö búast mætti viö
harönandi bardögum á hinum olíu-
auðugu Majnoon eyjum í suöur Irak.
Það var Ali Akbar Velayati, ut-
anríkisráðherra Irans, sem sendi
beiöni til Sameinuöu þjóðanna þar sem
«
traskir skriðdrekar á vígstöðvunum.
Nú eru trakar sakaðir um að nota
annað en hin hefðbundnu vopn í
styrjöldinni við tran. Farið er fram á
að Sameinuðu þjóðirnar rannsaki það
mál.
hann fór fram á að Sameinuðu þjóð-
imar sendu sérfræðinga sína á vett-
vang til aö rannsaka notkun Iraks á
eiturvopnum í írönskum borgum og
bæjum aö því er íranska fréttastofan
Irna skýrði frá í gærkvöldi.
Austurrískur læknir skýröi frá því í
gær að tíu íranskir hermenn sem komu
frá suðurvígstöðvunum í Persaflóa-
stríðinu til Vínar síðastliðinn föstudag
til meöferðar væru sennilega sýktir af
eiturgasi.
Irakar hafa staðfastlega neitað því
að þeir noti eiturgas í stríöinu við Iran.
Talsmaður breska utanríkisráðuneyt-
isins neitaði síðastliöinn föstudag og
ásökunum um að Bretar heföu sent
Irökum eiturvopn. Hann sagði að Bret-
ar væru hlutlausir í styrjöld Iraks og
Irans.
Nýr
sigur
hjá
Gary
Hart
Gary Hart vann nýjan sigur í
baráttu sinni fyrir því að verða
útnefndur forsetaframbjóðandi Demó-
krataflokksins í forkosningunum í
Maineígærkvöldi.
Þegar 67 prósent atkvæða höföu
veriö talin í morgun hafði Hart hlotiö
50,5 prósent atkvæða en höfuðkeppi-
nautur hans, Walter Mondale, haföi
hlotið 43,5 prósent. Ljóst þykir nú að
baráttan komi einungis til með aö
standa á milli þessara frambjóðenda.
Hart, sem er öldungadeildarþing-
maður frá Colorado, hefur komið
gífurlega á óvart. Fyrir aðeins hálfum
mánuði var hann talinn nær vonlaus í
þessari baráttu en skjótt skipast veöur
í lofti og nú telja stjómmálaskýrendur
að Mondale megi alvarlega vara sig.
Kohl
ræðir
við
Reagan
ídag
Helmut Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands, mun í dag hitta Reagan
Bandaríkjaforseta aö máli. Kohl lýsti
því yfir í sjónvarpsviðtali í gær að
hann óskaöi eftir því aö Reagan myndi
fljótlega hitta Konstantin Tsjernenko,
hinn nýja leiðtoga Sovétmanna, að
máli mjög fljótlega.
Kohl sagði ennfremur að hann
vonaðist til að afvopnunarviðræður
stórveldanna gætu hafist fyrir forseta-
kosningarnar í Bandaríkjunum sem
verða í nóvembermánuði næstkom-
andi.,
„Eg er hlynntur því að nota þau
tækifæri sem bjóðast og við ættum ekki
að bíöa þar til eftir kosningar,” sagði
Kohl.
Heimildir úr röðum stjómarerind-
reka greindu að Kohl myndi sennilega
óska eftir því viö Reagan á fundi
þeirra í dag að viöræðum stórveldanna
um fækkun kjamorkueldflauga í
Evrópu yrði haldið áfram hið fyrsta.
Glemp
ber
tilbaka
gagnrýni
á
Walesa
Josef Glemp, kardínáli og yfirmaður
rómversk-kaþólsku kirkjunnar í Pól-
landi, sagði á laugardag að illkvittinn
blaðamaöur bæri ábyrgð á frétt þar
sem haft var eftir Glemp að Lech
Walesa hefði misst tökin á Einingu,
hinni óháöu en ólöglegu pólsku verka-
lýðshreyfingu.
Glemp sagði í gær að hann hefði
aldrei gagnrýnt Walesa opinberlega.
„Eg hef samband við Walesa. Hann
ver enn réttindi verkamanna en hann
er í erfiðri aðstööu vegna þess að hann
getur ekki þróað verkalýðsbaráttu
sína.”
Glemp kardínáli er nú á ferð um
Rómönsku Ameríku og áðumefnd
ummæli voru höfð eftir honum í brasi-
líska dagblaöinu 0 Estado de Sao
Paulo.
Walesa sagði í gær aö hann liti á
Glemp sem æðsta siðræna yfirvald
sitt. „Eg veit að tilgangur hans er
góður,” sagði Walesa.