Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1984, Qupperneq 9
ÖV: MÁNUDAGÚR 5. ÍVÍÁRS1984.
Útlönd
Útlönd
Verkamannaflokk-
urinn stærri en
íhaldsflokkurinn
BEINT FLUG I SOLINA
Verkamannaflokkurinn breski nýtur
nú í fyrsta sinn eftir Falklandseyja- ÍSllllgÉl
styrjöldina meiri vinsælda heldur en
Ihaldsflokkur Margrétar Thatcher.
Þetta kom fram í skoöanakönnun er
Sunday Times birti um helgina. Sam-
kvæmt henni nýtur Verkamanna-
flokkurinn nú stuðnings 41 prósents
kjósenda, Ihaldsflokkurinn 38 prósenta
og bandalag frjálslyndra og jafnaöar-
manna 18prósenta.
Falklandseyjastyrjöldin jók mjög á
vinsældir stjórnar Thatcher og vann
Ihaldsflokkurinn enda mikinn kosn-
ingasigur í júnimánuði síðastliönum.
En samkvæmt þessari skoðanakönn-
un hefur dregið mjög úr vinsældum
Thatcher. Margir telja hana vera úr
öllum tengslum viö almenna kjós-
endur. Vinsældir Verkamannaflokks-
ins eiga ekki síst rætur sínar að rekja
til Neil Kinnocks, hins nýja leiðtoga
Neil Kinnock, hinn vinsæli leiðtogi
Verkamannaflokksins.
fíokksins, sem leysti Michael Foot af
hólmi í október síöastliönum.
Höldum áf ram friðar-
tilraunum í Líbanon
— segir Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna
„Bandaríkin munu halda áfram
friðarumieitunum sinum í Líbanon,”
sagði George Shultz, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, í blaða-
vlðtali i gær. Hann sagði þó að eins
og málum væri komið nú væri
skynsamlegast að flýta sér hægt og
sjá til hvernig mál þróuðust. „Síðan
munum við sjó hvernig við
bregðumst við,” sagði Shultz.
ÞUSUND FALLNIR
í ÓEIRÐUM í
NORÐUR NÍGERÍU
Taliö er að allt aö eitt þúsund manns
hafi látist í trúarbragöaóeirðum
undanfarna daga í borginni Yola í
norðurhluta Nígeríu.
Dagblöð í Nígeríu skýrðu frá því í
gær að 500 lík hefðu verið flutt frá
sjúkrahúsinu í Yola og verið grafin í
fjöldagröf.
Hersveitir skárust í leikinn á föstu-
dag í þeim tilgangi að bæla niður
óeirðir múslimskra bókstafstrúar-
manna sem beittu nýjum og full-
komnum vopnum í átökunum.
Þetta er í þriðja skiptið á síðastliðn-
um þremur árrnn sem kemur til meiri-
háttar trúarbragðaóeirða í Nígeríu.
Það voru áhangendur trúarleiðtogans
Muhammad Marwa Maitatsine sem
hófu óeirðirnar nú en hann var myrtur
í óeirðum fyrir þremur árum. I þeim
átökum sem þá urðu er talið að fjögur
þúsund manns hafi látiö lífið.
Tékkóslóvakía:
Nýir f lóttamenn
f vestur-þýska
sendiráðinu
Vestur-þýska blaðið Bild am Sonn-
tag skýrði frá því í gær að 24 f jórir
Austur-Þjóðverjar hefðu farið að
dæmi ættingja Willi Stoph, forsætis-
ráðherra Austur-Þýskalands, og
leitað hælis í vestur-þýska sendiráð-
inu í Pragh og beðið um að fá að flytj-
ast til Vestur-Þýskalands.
Ingrid Berg, frænka forsætisráð-
herrans, og fjölskylda hennar dvöldu
í v-þýska sendiráðinu í Pragh í sex
daga nýverið áður en þau sneru heim
til A-Þýskalands aftur. Talið var að
þau hefðu fengið loforð um aö flytj-
ast úr landi innan skamms.
V-þýsk stjórnvöld hafa bannað
fréttaflutning af málum þessum og
segja að hann muni aðeins spilla
fyrir tilraunum v-þýskra yfirvalda
til aö auðvelda fólki aö flytjast frá A-
Þýskalandi eftir löglegum leiðum.
,FERÐA
AÆTLUN
1984
FERÐAMIÐSTÖÐIN kynnirferða-
áætlun 1984 til BENIDORM, Costa
Blanca strandarinnar á Suðausturströnd Spánar.
Eins og áður er aðeins flogið leiguflug í góða veðrið.
GÓD GISTING Á HÓTELUM EÐA ÍBÚDUM
Gististaðir eru allir fyrsta flokks: (búðir með 1-2 svefnherbergjum,
Studíó-íbúðir eða hótel með fæði. BENIDORM ferðirnar eru 2ja-3ja
vikna og brottfarardagar eru: 18. apríl (2ja vikna páskaferð), 2. maí,
23. maí, 20. júní, 11. júií, 1. ágúst, 22. ágúst, 12. sept. og 3. október.
Dæmi: Hjón með 2 börn, 2jatil 11 ára í páskaferð, samtals kr. 61.100,
- eða kr. 15.400,- pr. farþega.
Verð fyrir hjón í stúdíógistingu kr. 20.300,- pr. mann.
FM-FERÐALÁNIN
Staðfestingargjald við pöntun kr. 2.500. Síðan mánaðarlegar greiöslur
allt frá kr. 1.000 í 3-6 mánuði fyrir brottför og lánar þá Ferðamiðstöðin
allt að sömu upphæð í jafn langan tíma, sem greiðist með mánaðar
legum afborgunum eftir heimkomu. Verðhækkanir sem verða á
sparnaðartímanum af völdum gegnisbreytinga ná ekki til
þess hluta heildarverðsins sem greitt hefir verið.
Dæmi: 4 mánaðarlegar greiðslur fyrir brottför kr. 2.000,
— samtals kr. 8.000, -, lánar þá Ferðamiðstöðin þér
allt að sömu fjárhæð kr. 8.000, -, er greiðast til baka
með jöfnum mánaðarlegum greiðslum, eftir heim-
komu á jafnlöngum tíma.
FM greiðslukjör
Staðfestingargjald kr. 2.500, - við pöntun u.þ.b.
helmingur af heildarverði greiðist 30 dögum fyrir
brottför og eftirstöðvar með jöfnum afborgunum á
3 mánuðum eftir heimkomu.
50% afsl. á innanlandsflugi.
Staðgr. afsl. 5%.
Þeir, sem hafa dvaliðáBENIDORM ströndinni hrósaveðrinu, verðlaginu,
matnum, skemmtistöðunum, skoðunarferðunum og traustri þjónustu
FERÐAMIÐSTÖÐVARINNAR.
Verðlisti fyrirliggjandi
BEINT FLUG
í SÓLINA
OG SJÓINN
Ifjjj FERDA..
H MIDSTODIN
AÐALSTRÆTI 9 S. 28133