Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1984, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1984, Qupperneq 13
DV; MÁNÚDÁGUR 5. MARS1984. 13 HVER A SÖKINA — ef ekki sá sem upphaf inu veldur? Kjallarinn Ég ætlaöi ekki aö fara aö ræöa kaup Flensborgarskóla á ritvinnslu- vél opinberlega og skrif í fréttastíl voru ekki þess eðlis aö ástæða væri til. Hins vegar breytir þaö talsveröu þegar kennari í skólanum fer að skrifa um máliö því aö þá er hætt við aö fólk álíti að hiö rétta komi í ljós. Það er sannarlega leitt til þess aö vita þegar friðelskandi fólk og sem ekki má vamm sitt vita lætur hafa sig í þaö aö skrifa um mál, sem er því svo ókunnugt aö sannleikurinn kemur ekki allur fram eöa skolast verulega til. Þetta hefur hent Ken- evu Kunz kennara í Flensborgar- skóla í skrifum sínum í DV 27. febr. sl. um kaup ritvinnsluvélarinnar. Slík staöreyndabrenglun getur valdiö misskilningi og jafnvel kveikt ófriöarbál. Skólinn réð tækjakaupum 1983 Áriö 1983 var f járveiting til Flens- borgarskóla til tækjakaupa kr. 350.000. Skóiinn fór fram á 1050.000 krónur fyrir áriö 1984 en fékk kr. 545.000 viö afgreiðslu fjárhags- áætlunar, en það er sú upphæö sem Fræösluráð mælti meö. Að ritvinnsluvél var ekki keypt á árinu 1983 var mál skólans. Hann markaöi liöinn til tækjakaupa og réö alfarið hvaö keypt var. Aö nemendur skólans, sem vinna á bókasafni, hafi lítiö aö gera vegna þess að vélin fékkst ekki greidd, eru fréttir fyrir Fræösluráö og hefði átt aö láta ráðiö vita um þaö í tæka tíö svo aö ekki hefði verið mælt meö fjárútlátum við bæjarstjóm í því efni. Hafi skóla- meistari vitað um slíkt og duliö þaö fyrir fræösluráði er það ámælisvert. Erindi um aukafjárveitingu Erindi um aukafjárveitingu m.a. vegna vélakaupanna barst Fræðslu- ráöi 4. okt. 1983 og var tekið fyrir í Fræðsluráði 12. okt. Ég fór þess á leit að málið fengi að bíöa afgreiöslu f járhagsáætlunar, sem þá þegar var í undirbúningi. Ekki eingöngu vegna þess aö ég teldi með öllu vonlaust um aö jákvæð afgreiðsla fengist, heldur vegna þess aö ég taldi nauösynlegt aö reyna aö halda geröar áætlanir svo aö Fræðsluráö nyti fyllsta trausts bæjarstjórnar sem mark- tækur og ábyrgur aöili. Um þetta voru fræösluráðsmenn sammála. Þótt fram kæmi aö vélin þyrfti aö hafa forgang á árinu 1984, gaf enginn fræðsluráðsmanna loforð þar um. Hins vera kom skýrt fram aö frá fjárhagsáætlun yröi að ganga. Veitt heimild til pöntunar á eðlisfræðitækjum En á fyrrnefndum fundi Fræðslu- ráös geröist fleira og villir þaö mönnum sýn aö ekki sé frá því skýrt. Skólameistari óskaöi eftir því aö mega panta eðlisfræðitæki fyrir næsta ár fyrir 100—150.000 kr. þar sem reynslan væri sú aö afgreiöslu- frestur gæti veriö 6—9 mánuöir. Fræðsluráö mælti meö því viö bæjar- ráö aö veitt yrði heimild til þess aö panta tæki fyrir um 100 þús. kr. Bæjarráö varð viö þessari beiöni og heimilaði pöntun fyrir 80—100 þús. kr. með 6—° mánaöa afgreiöslu- fresti, þ.e. aö þau kæmu til greiðslu í maí/júní 1984. Reikningur í desember 1983 Eðlisfræöitækin voru pöntuö 9. nóv. 1983. Reikningur aö upphæð 82 þús. kr. barst strax 23. desember og viðbótarreikningur seint í janúar og voru þá tæki komin fyrir 104 þús. kr. og ætla má aö þaö sem ókomið er af pöntuninni sé um 30 —40 þús. kr, Er þá hvorttveggja aö pantað var fyrir miklu hærri upphæð en leyft var og aö ekki var farið eftir þeim greiöslu- tíma, sem viö var miöaö. Enn skal þess getið aö fræðslu- stjóri sendi bréf til forstöðumanna skólanna 2. jan. 1984, þar sem beðið var um aö gæta varfærni í útgjöldum á meðan fjárhagsáætlun heföi ekki verið afgreidd og hann yrði látinn vita um öll meiri háttar kaup svo að hægt væri aö tryggja eðlilega greiöslu. „Smávægileg mistök" Þrátt fyrir þetta bréf og þrátt fyrir þaö aö greiðslukrafa fyrir eölis- fræöitæki haföi borist mörgum mánuöum fyrr en leyfi bæjarráös PÁLL V. DANÍELSSON, FORM. FRÆÐSLURÁÐS HAFNARFJARÐAR miðaðist viö, var ritvinnsluvél keypt 6. janúar fyrir nær 60 þús. kr. og þaö án þess aö hafa samráö við Fræðslu- skrifstofuna umkaupin. E.t.v. hafa þaö verið „smávægileg mistök” hjá skólanum aö stofna til annarra tækjakaupa en ritvinnslu- vélarinnar strax í ársbyrjun og þaö hærri upphæöar en leyfð var, en þau kaup eru staöreynd og hefðu þaö ekki aðeins veriö nauösyrúegt, heldur og eölileg samskipti, aö skólameistari heföi rætt um máliö í heild viöbæjar- stjóra. Því miður fórst þaö fyrir enda þótt bæði ég og fræöslustjóri legöu áherslu á að slíkar viöræöur færu fram og hvöttu skólameistara til þess aö hafa sjálfur samband viö bæjarstjóra. Hafi ritvinnsluvélin átt aö hafa forgang í sambandi viö áhaldakaup af hálfu skólans, heföi hann þurft aö gæta þess aö stofna ekki til stórra út- gjalda á þeim lið áöur, þar sem óhjá- kvæmilega verður að dreifa út- gjöldunumáárið. Friður betri en ófriður Bæjarstjóri taldi sig ekki geta greitt vélina og endursendi reikning- inn. En þrátt'fyrir mistök skólans, ekki aðeins ein mistök sé málið skoöað í heild, reyndi Fræðsluráð aö leysa úr þessum vanda. Máliö var rætt á fundi Fræðsluráðs 15. febr. Viö bæjarstjóra var rætt 17. febr. og gaf hann ekkert loforð um lausn, þótt hann vildi aö ég kannaöi hugmynd um aö Bókasafn Hafnarfjarðar geröist meöeigandi vélarinnar. Var bókasafnsstjórn því hlynnt. Hins vegar leysti þaö ekki máliö. Það var aldrei hægt aö „telja” að viðunandi lausn fengist fyrir skólann í þessu efni, hvað sem menn gátu gertsérvonirum. Þaö, að ég baö um aö fenginn yröi lengri frestur til þess aö skila vélinni, var vegna þess aö ég vildi fá nokkurra daga kyrrö á meðan máliö væri í athugun. Niðurstaðan er kunn. Vélin var ekki leyst út. Vika var til afgreiðslu fjárhagsáætlunar. Þann tíma var ekki hægt aö bíða. Skólinn tók máliö í sínar hendur á ósmekklegan hátt, aö mínu mati, en hann telur sig sjálfsagt einfæran um aö leysa málið og beita þeim aðferðum, sem hann telur sér sæma. Vonandi bíöur hann ekki hnekki af. En sú leið, sem skólinn hefur valiö, var hvorki með vitund eða vilja Fræðsluráðs, því að ráöiö hefur veriö einhuga um aö reyna að leysa hvern vanda, sem upp kemur í góðri sam- vinnu og á friösamlegan hátt. • „Hafi ritvinnsluvélin átt að hafa forgang í sambandi við áhaldakaup af hálfu skól- ans, hefði hann þurft að gæta þess að stofna ekki til stórra útgjalda á þeim lið áður þar sem óhjákvæmilega verður að dreifa útgjöldunum á árið.” ATVINNA NÝRRAR ALDAR „Hverjar eru þessar nýju greinar? Sú þeirra, amm bmat ar þakkt, er ör- tölvutæknin." Bismarch sagöi aö framtíðin væri þeirrar þjóöar sem ætti bestu skól- ana. Það hefur aldrei veriö sannara en nú. Stórkostlegar breytingar ganga yfir Vesturlönd. Nú er hafin þriöja iðnbyltingin. Sú fyrsta einkenndist af tilkomu vélaraflsins, gufuvélarinn- ar. Sú næsta einkenndist af stóriðju- rekstri, t.d. í málm- og efnaiðnaöi, eins og við þekkjum dæmi um frá Straumsvík og Grundartanga. En hver eru einkennismerki þriðju iðnbyltingarinnar? Það eru nýtæknigreinarnar svokölluðu. Þær þarfnast ekki ódýrs mannaf la eins og verksmiðjur fyrstu iönbyltingarinn- ar. Þær þarfnast ekki orku og fjár- magns í líkingu viö verksmiðjur ann- arrar iönbyltingarinnar. En þessar nýju greinar þarfnast hugvits og þekkingar framar öllu ööru. Þar kemur til kasta skólanna. Hverjar eru þessar nýju greinar? Sú þeirra, sem best er þekkt, er örtölvutæknin. Hún hefur bylt efna- hagslífi, atvinnuháttum og mun hafa veruleg áhrif á þjóðfélagsgerð. Undirstaða þessarar tækni er hug- kvæmni. Einstaklingar geta aflað sér lífsviðurværis í ódýriun, litlum, sjálfstæöum einingum. Onnur grein þriöju iðnbyltingar- innar er líftæknin. Þaö er talið aö líf- tæknin muni hafa meira efnahags- legt gildi en örtölvutæknin hvaö varðar framleiöslu, atvinnu og af- komu. Á Vesturlöndum er stóriöjan aö veröa stefna gærdagsins.Annarri iönbyltingunni er aö ljúka þar. Orku- frekja, umhverfisspjöll og atvinnu- hættir stóriðjunnar valda því aö Vesturlönd hafna henni í auknum mæli svo hún hrekst til þriöja heims- ins. Hvað er líftækni? Líftæknin byggist á því aö sam- eina kunnáttu í líffræði og verkfræöi til að virkja framleiðsluaöferðir náttúrunnar til nýrra verkefna. Þannig má vinna meltingarhvata úr innyflum þorska og gefa þeim þau nýju verkefni áð mýkja nautshúöir eða verka síld. Meö aöferðum líftækninnar er líka hægt aö láta gerla framleiöa hormón fyrir sykursýkissjúklinga úr ódýr- um, algengum hráefnum. En hvaö er merkilegt við þetta? Eru þetta ekki bara venjuleg dæmi um framfarir í líffræöi, líkar þeim sem viö höfum öll orðið vitni að á undanförnum árum, sbr. hjarta- flutninga og heilaskurölækningar? Svarið er nei. Líftækni felur í sér stórkostlega möguleika til að fela örverum og efnakljúfum náttúrunnar fram- leiðslu á því sem heiminn vanhagar mest um. Þar má nefna breytingu á einföld- um, ódýrum efnum, eins og grasi og lýsi, yfir í dýrmæt fæðuefni, lyf eöa eldsneyti. Meö því aö breyta örverum, þ.e. sveppum og bakteríum, á viðeigandi hátt getum viö notað þær til aö fram- leiöa efni á sama hátt og kýr fram- leiða mjólk. Munurinn er sá aö örveruaöferðin er margfalt ódýrari og afkastameiri en kúabúskapurinn Kjallarinn GUÐMUNDUR EIN ARSSON ALÞINGISMAÐUR Í BANDALAGI JAFNAÐARMANNA og framleiðslan langtum fjölbreytt- ari en mjólk, kjöt og húðir. Tímaritið Economist telur að iíf- tækni verði jafneinkennandi fyrir atvinnulíf 21. aldarinnar og stóriöju efna- og málmiðnarins cinkennir öldina sem er að líða. Hverjir eru kostir líftækninnar? Meöal kosta þessarar nýju tækni eru þeir aö hún mengar ekki umhverfi sitt, hún þarfnast lítillar orku og hún notar náttúrleg hráefni sem endur- nýjast og ganga inn í lífkeðjurnar. Einn dýrmætasti kostur líftækn- innar er e.t.v. sá aö meö afkasta- miklum aöferöum hennar er hugsan- legt aö lina hungur og þjáningu í þriðja heiminum. Þaö eru verkefni sem núverandi atvinnuhættir hafa ekki valdiö. Hvað er gert á íslandi? Líftæknin er sú atvinnugreinin sem spáö er mestum vexti á Vestur- löndum. Fjármagn streymir aö henni og möguleikamir virðast óþrjótandi. Þetta verður líklega höfuö- atvinnugrein 21. aldar, aldar sem er aöeins rúm 15 ár í burtu. Böm, sem fæð- ast í dag, munu veröa atvinnurekendur og launþegar þess tima. En hvaö gerum við í málefnum framtíðarinnar? Það er heldur lítið. Viö erum á kafi í gömlu iðnbyltingunni og erum að skuldbreyta í landbúnaöi og sjávarútvegi eina ferðina enn svo milljónahundruöum skiptir. Byltingarmenn stóriöjudrauma okkar eru á ferðalögum um allan heim til aö laöa hingað atvinnuhætti gærdagsins. Þeir eru einni byltingu á eftir. Ef viö ætlum okkur hlut í framtíö- inni verðum viö aö kaupa hlutabréf straxídag. Við gerum þaö meö því aö segja námsfólki okkar frá möguleikunum og hugmyndum okkar um lífshætti morgundagsins. Við genun þaö meö því aö styrkja rannsóknir á íslenskum möguleikum líftækninnar. Þar myndi stórkost- lega muna um fjárstyrk þótt ekki væri meira en sem nemur feröa- styrkjum og dagpeningum stóriðju- nefndarinnar. Viö skulum þurrka móöuna af framrúðunni áður en 21. öldin rennur upp. Ef viö horfum einungis í baksýnisspegilinn gætum við orðið umheiminum nokkurs konar Árbæjarsafn í atvinnuháttum. A „Á Vesturlöndum er stóriðjan að verða ^ stefna gærdagsins. Annarri iðnbylting- unni er að ljúka þar. Orkufrekja, umhverfis- spjöll og atvinnuhættir stóriðjunnar valda því, að Vesturlönd hafna henni í auknum mæli svo að hún hrekst til þriðja heimsins.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.