Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1984, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1984, Síða 15
W „Hver kannast ekki við þau viðhorf að hækkun á lágu laununum leiði til aukinn- ar dýrtíðar.” eða: hversu lengi þjóöin lifir á tómum grjónagraut? dýrtíð. Það hefir um langa hríð verið nokkurs konar trúarsannfæring að hækkun á lægstu launum sé megindýr- tíðarorsökin í íslensku þjóðfélagi. Hins vegar er sjaldan í sömu andránni minnst á glórulausar fjárfestingar- ákvarðanir margra íslenskra stjóm- málamanna. Það hefir löngum þótt auðveldara að hengja bakara fyrir smið enda hæfir slíkt ágætlega mis- vitrum stjórnmálamönnum islenskum. Á þessum tímum grjónavellings og kjaraskerðinga gengur margt á aftur- fótunum. Ekki hefir langvinn deila við álfurstana vegna rafmagnssölu til þeirra veriö leidd til lykta né sparn- aöarstefna ráöamanna náð til æðstu stjómar islenska ríkisins. Þar verður bruðlstefnan áfram allsráðandi enda flest í anda stjómarstefnunnar hjá Lúðvíkunum á Frakklandi. Rikis- stjórnin ákveður t.d. glórulaust byggingarævintýri suður á Miðnes- heiði sem er bæði ótímabært og allt of stórt fyrirtæki. A sama tíma er stofnað til afþreyingarútvarps eftir fyrirmynd amerísks hermannaútvarps. Hins veg- ar kemur sparnaðarstefnan fram í því að lægstu laun verða töluvert áfram undir eðlilegum mörkum þess að geta þraukaö í nútima þjóðfélagi. Þá hafa verið áætlanir uppi um aö taka upp sérstakan sjúklingaskatt sem stuðlar að miklu ójafnrétti meðal borgaranna. Og nýjasta nýtt í afrekaskrá íslenskra ráðamanna er sú óhæfa aö kaup skuli hækka um sömu prósentutölu gegnum alla launaflokka. Þannig mun ráðherra fá nálægt 1/2 mánaðarlaun verkamanns í veröbætur á mánuöi meðan verkamaöurinn fær um 1.700 kr. miðað við lægstu taxta. Verkalýðshreyfingu mis- tekist I grein þessari hefir verið tæpt á launamálum almennt. Fróðlegt er„að skyggnast og skoða gáttir allar” betur svo numin séu nokkur orð úr Háva- málum. Verkalýðshreyfingin á Islandi hefir að töluverðu leyti mistekist það hlutverk sem skjólstæðingar hennar hafa trúað henni fyrir. Orsakir þess eru að sjálfsögöu f jölmargar og kemur margt við þá sögu. Á það hefir verið margbent að verkalýðsforystan hefir ekki náð að endumýjast á eölilegan hátt, verkalýðsfélögin mörg hver eru rekin eins og hver önnur prívatfyrir- tæki og hagsmunir þeirra sem við st jórnvölinn eru fara ekki alltaf saman við hagsmuni fjöldans. Dæmi eru um að verkalýðsfélög séu notuð af stjórn- endum sínum eins og hvert annað tæki til að komast til aukinna áhrifa og valda. Mun það bíða að sinni að segja þá sögu enda veröur það bæði saga niðurlægingar og harma íslenskrar alþýðu á 20. öld. ÁSKRIFENDA ÞJÚNUSTA AFGREIÐSLA Þverholti 11 - Sími 27022 ASKRIFENDUR ERU VINSAMLEGAST BEÐNIR AÐ HAFA SAMBAND VIÐ AFGREIÐSLUNA EF BLAÐIÐ BERST EKKI. appkz computer Stórkoslieg verðkekkun! Nú geta allir fengið sér alvöru tölvu Nú hafa veriö felldir niöur tollar og söluskattur af tölvubúnaöi. Þetta gerir islendingum kleift aö tölvuvæöast í samræmi viö kröfur nútímans. Nú átt þú næsta leik! Nú getum viö boöiö þér vinsælustu alvöru einkatölvu í heimi, Apple / / e, en hún hefur nú selst í 1.500.000 eintökum. Meira en 20.000 forrit eru fáanleg á Apple / / e, en það er mun meira en nokkur önnur tölva getur státaö af. Mörg íslensk forrit eru fáanleg á vélina, t.d. fjárhagsbókhald, viöskiptamannabókhald, lagerbókhald, launabókhald, tollvörugeymsluforrit, veröútreikn- ingar o.fl. Mundu þaö, aö án forrita er tölva eins og bensínlaus bíll. Á Apple / / e er staölaö íslenskt lyklaborö, og hentar hún því einkar vel til ritvinnslu. Notendaminni vélarinnar er 64K, en þaö er stækkanlegt í 128K og ætti þaö að vera nægilegt fyrir flesta. Apple tölvur eru notaðar hjá skólum, bönkum, opinberum stofnunum, einkafyrirtækjum, skipafélögum, flugfélögum, verk- fræöistofum, læknastofum, rannsóknarstofum, lögfræöistof- um, endurskoöendum, vélsmiöjum, fataframleiöendum, ráö- gjafarfyrirtækjum, verktökum, útgáfufyrirtækjum, prentsmiöj- um og þannig mætti lengi telja. Fjölmargir einstaklingar nota Apple, svo sem kennarar, rithöfundar, vísindamenn, forritarar, rafeindavirkjar, radioamatörar, stjórnendur fyrirtækja og stofn- ana, læknar, verkfræöingar, þýöendur og blaöamenn, og eru þá aöeins tekin örfá dæmi. Tilboð: Kr. 63.990,-) nú aðeins kr. 49.990,- Útborgun kr. 10.000,- og eftirstöðvar á 10 mánuðum! Skipholti 19, sími 29800.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.