Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1984, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1984, Blaðsíða 40
40 DV. MANUDAGUR 5. MARS1984. Andlát | Tilkynningar Emilía Jónasdóttir leikkona er látin. Hún fæddist 19. maí 1901 á Þingeyri viö Dýrafjörö. Foreldrar hennar voru Jónas Jónasson og Ingibjörg Bergs- dóttir. Leikferill Emilíu hófst snemma, lék hún fyrst hjá Leikfélagi Reykja- víkur en réöst til Þjóðleikhússins viö opnun þess. Utför hennar veröur gerö frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Sesilía Jósafatsdóttir, Austurbrún 6, Reykjavík, andaöist í Borgarspítalan- Félag áhugamanna um réttarsögu Fræðafundur í Félagi áhugamanna um réttarsögu veftur haldinn þriðjudaginn 6. mars 1984 kl. 20.30 í stofu 103 í Lögbergi, húsi Lagadeildar Háskólans. Fundarefni: Jón Gislason flytur erindi er hann nefnir: „Htn fornu mörk — Elstu sjónar- mið landeigenda á íslandi. ” Að loknu framsöguerindi verða almennar umræður. Fundurinn er ölium opinn og eru félags- menn og aðrir áhugamenn um sagnfræðileg efni og staðfræði hvattir til að koma á fundlnn. Kvenfélag Háteigssóknar heldur fund þriðjudaginn 6. mars í Sjómanna- skólanum kl. 20.30. Spiluð verður félagsvist. Mætið vel og takiö með ykkur gesti. Kvenfélag Langholtssóknar Afmælisfundur veröur þriöjudaginn 6. mars kl. 20.30 í Safnaöarheimilinu. Venjuleg fundarstörf, skemmtiatriöi, kaffiveitingar. Féíagar, takiö meö ykkur gesti. Kvenfélag Breiðholts heldur fund í Breiðholtsskóla 5. mars kl. 20.30. Gestur fundarins verður Guðbjörg Andrés- dóttir hjúkrunarfræðingur. Mun hún fræða fundarmenn um orskir og forvara krabba- meins. um 2. mars. Theodóra Stefánsdóttir, Alftamýri 14, sem lést þann 25. febrúar, veröur jarö- sungin frá Bústaöakirkju mánu- daginn 5. mars kl. 13.30. Sigurbjörg Anna Einarsdóttir, Lauga- vegi 86, sem lést 27. febrúar verður jarösungin frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 6. mars kl. 13.30. Ingibjörg Gunnarsdóttir, Sandholti 28, Olafsvík, verður jarösungin frá Foss- vogskapellu þriðjudaginn 6. mars kl. 10.30. Anna Matthíasdóttir frá Grímsey, Kaplaskjólsvegi 65, verður jarösungin frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 6. mars kl. 13.30. Einar Pálsson verkstjóri, Baidursgötu 1, verður jarösunginn frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 7. mars kl. 15.00. Sörli Hjálmarsson, Hörgshliö 2, Reykjavík, andaöist í Landakots- spítala fimmtudaginn 1. mars sl. Jónína Sigríður Guðjónsdóttir, Vestur- bergi 78, andaöist í Landakotsspítala fimmtudaginn 1. mars. Margrét Úlafsdóttir, frá Isafirði, and- aðist aö Hrafnistu föstudaginn 2. mars. Sigfús Þorleifsson, fyrrverandi út- geröarmaður, Dvalarheimili aldraöra, Dalvík, andaöist 1. mars í Sjúkra- húsinu á Akureyri. Sigrún Þorsteinsdóttir Pudelski lést laugardaginn 25. febrúar í Remscheid, Þýskalandi. Otförin hefur fariö fram. Þorvaldur Markússon, Noröurbrún 1, veröur jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju þriðjudaginn 6. mars kl. 15.00. Fræðslufundur Næsti fræðslufundur Fuglavemdarfélags Islands verður í Norræna húsinu fimmtu- daginnð. mars 1984 kl. 20.30. Olafur Nielsen líffræðingur flytur erindi sem hann nefnir: Fræðsluerindi um lífshætti fálkans. Ollum heimill aðgangur. Stjórnin. Frá Kattavinafélaginu Að gefnu tilefni skal það tekið fram að Katta- vinafélagið er ekki aðili að Sambandi dýra- verndunarfélaga Islands og flóamarkaöur sá sem starfræktur er í Hafnarstræti er félaginu gjörsamlega óviðkomandi. Um afnám verðlagsákvæða á matvöru o.fl. Frá 1. mars féll niður hámarksálagning í heildsölu og smásölu á nokkmm vöru- flokkum. Af þessu tilefni vekur Verðlags- stofnun athygU á 23. og 21. grein verðlags- og samkeppnislaga nr. 56/1978. 23. grein hljóðar svo: „Oheimilt er að ákveða, samþykkja eða semja um ófrávíkjanlegt iágmarksverð (brúttóverð) eöa álagningu er gilda skuli við endursölu á næsta sölustigi.” Samkvæmt þessu ákvæði er innflytjendum, heildsölum og framleiðendum óheimilt að ákveða bindandi smásöluverð og/eða smá- söiuálagningu. 21. grein hljóöar svo: ,/Jamningar, samþykktir og annað samráð milli fyrirtækja um verð og álagningu er óheimilt þegar verðlagning er frjáls.” Samkvæmt þessu ákvæði er hvers konar samráð um verð og álagningu bannað þegar verðlagning er frjáls, þar á meðal sameiginlegir verðlistar fyrirtækja og félaga eða samtaka þeirra. Þá hefur Verðlagsstofnun ákveðið að innflytjendur vöruflokka, sem ekki eru háöir imiv MISSTU EKKI VIKU ÚR LÍFI ÞÍNU ÁSKRIFTARSIMINN ER 27022 Um helgina Um helgina Af bændum og hardsnúnum hetjum Litla húsiö á sléttunni er sá möndull helgarinnar sem þjóölífið snýst um — rannsóknamenn eru búnir að sýna fram á aö obbi íslensku þjóöarinnar lætur sig hafa þaö aö fylgjast meö daglegu lífi Ingallsfjölskyldunnar og enginn annar þáttur ríkisfjölmiðl- anna nýtur slíkra óhem ju vinsælda. En í gær komst upp um strákinn Tuma! Karl Ingalls beitti sér fyrir stofnun samvinnufélags í sveitinni og þó aö hinir snauöu hafi brosað gleitt og hyllt sinn nýkjörna foringja þá vita Islendingar af biturri raun aö þarna hafa góðir drengir fitjaö upp á ævintýri sem enginn sér fyrir endann á, hvaösemveröur. Og varla haföi Karl, þessi frómi piltur, tekiö við stjómartaumum í kaupfélaginu er hann lyfti hinum sæta bikar spillingarinnar og fékk sér dágóöan slurk — ekki dugöi honum aö fara einn á búnaöarþingiö í Milwaukee, heldur haföi hann með sér konu sína og það á kostnað félagsmanna. Þetta var heldur róstusamt búnaöarþing og svallsamt. Sam- vinnubændumir mikluðust óspart af eignum sínum en þeir sem betur máttu sóttu allfast aö annarra manna konum og ekki var aö sjá aö vínföngin skorti. En þessir bændur mega þó eiga þaö aö þeir borguöu sjálfir sína reikninga, allir nema veslings Amí Cupps, sem hokrar víst á 60 hektara örreytiskoti og varö aö fá 100 dali að láni hjá hinum illa Dillon til þess aö sleppa hjá skuldum. I sjónvarpsfréttum í gærkvöldi var greint frá ööru búnaðarþingi og ekki óveglegra. Þar var ekki litla húsiö á sléttunni lagt undir heldur bænda- höllin rismikla vestur á Melum og þó aö siösemin hafi vafalaust veriö þar skárri en hjá þeim í Milwaukee, þá ber reikningurinn meö sér að ekki hafa bændur lifaö viö sult og seym þann tíma sem þingið stóö yfir — einn milljón króna og er þó eigi full- reynt hvort allt sé taliö. Þaö er auðvitað ekkert um þaö aö segja aö bændur og aðrir hagsmuna- flokkar samfélagsins komi saman á veitingastöðum til þess aö skrafa, drekka og fara meö stökur en þeir eiga að greiða sín drykkjarföng sjálfir. I fréttum sjónvarps kom þaö fram, sem hörmulegt má teljast, aö fólkið vestur á melum og aðrir grunlausir Islendingar em látnir borga þessa samkundu og nutu þó ekki góös af þeim kræsingum sem fram vom reiddar og svona ráöslag meö almannafé er ekkert annað en hrá- blautur sjóvettlingur framan í þaö fólk á Islandi sem varla á til hnífs og skeiöar nú um stundir og verður aö þola hvers kyns skerðingar á sínum högum. Einhverjir fulltrúa bænda á þessu búnaöarþingi munu hafa imprað á þessum málum og spurt hvort kannski væri réttast aö veislugestir stæöu sjálfir straum af sinni gleöi — hafi þessir menn þökk fyrir sínar til- lögur en hinir skömm sem undan vikust og þeir voru fleiri. Kvikmyndin á föstudagskvöldið var afleit; hún fjallaði um þess liátt- ar lausungarfólk í stórborgum sem elskar fyrst og spyr síöan. Dustin Hoffmann er glúrinn leikari og verö- skuldar betri hlutverk en þetta. Laugardagsmyndin fjallaði um sjö harðsnúnar hetjur og göfuga baráttu þeirra gegn ofríkismönnum sem meö engu móti fengust til þess aö greiöa sína reikninga sjálfir. Og þeirri baráttu lauk meö sigri réttlætisins eins og endranær. Baldur Hermannsson. ákvæðum um hámarksálagningu, skuli frá 1. mars 1984 senda Verðlagsstofnun sams konar verðútreikninga og þeir hafa til þessa gert. Verðútreikningar yfir þessa vöruflokka skulu þó aöeins sendir stofnuninni í einriti, án fylgi- skjala. Jafnframt verðútreikningum skulu innflytj- endur gera Verðlagsstofnun sérstaka grein fyrir breytingum á verðmyndun ofangreindra vöruflokka, s.s. breytingu á álagningu, afslætti o.fl. Athugasemd frá kennarafélögum Vélskóla íslands og Stýrimannaskólans í Reykjavík. I sjónvarpsþætti þriðjudaginn 21. febrúar sl. um undanþágumál vélstjóra og skipstjórn- armanna komu fram hjá fulltrúum útvegs- manna og samgönguráöuneytis, þeim Jónasi Haraldssyni og Kristni Gunnarssyni, svo úrelt og iítilsvirðandi viðhorf til sjómanna- menntunar að kennarafélög viðkomandi skóla sjá sig knúin til að mótmæla þeim sjónarmiðum sem komu fram hjá umræddum mönnum. 1 lokaorðum Jónasar Haraldssonar kom fram sú dioðun hans að vélstjóranámið mættí afgreiða á tveimur vikum og fulltrúi sam- gönguráðuneytis rifjaði upp þá gömlu góðu tima þegar skipstjórnarmenn skruppu í skól- ann að haustinu og tóku skirteinið með sér á vetrarvertíðina. Þar sem umræddir menn með þessi úreltu viöhorf til sjómannamenntunarinnar eru þeir sömu sem veita réttindalausum mönnum undanþágur til skip- og vélstjómar er ekki von á góðu í undanþáguvandanum. I upphafi umrædds sjónvarpsþáttar var gefið sýnishorn af þeim flókna og dýra tækja- búnaöi sem brú togarans Ottós Þorlákssonar er búin og var þó alveg sleppt aö sýna tækja- kost vélarúmsins. Við kennarar, í Vélskóla og Stýrimanna- skóla, viljum skora á þessa menn sem gegna þessum ábyrgðarmiklu störfum í undanþágu- nefnd að þeir kynni sér tækjabúnað þeirra skipa sem þeir eru að veita mönnum undan- þágu til að starfa við og erum við kennarar umræddra skóla reiðubúnir til aðstoðar, þannig að vitneskja þessara manna verði svolítiö meira í takt við tímann. Danskeppni unglinga í Tónabæ Félagsmiðstöðvarnar í Reykjavík efna til Is- landsmeistarakeppni í freestyle dönsum dag- ana 15. og 16. mars í Tónabæ, þriðja árið í röð. , Freestyle" eða frjáls aðferð eins og heitið hefur verið íslenskað felur í sér að þátttak- endum er frjálst að dansa hvaða dansstíl sem er, t.d. jassdans, diskódans eða „break- dance". Verður þetta Islandsmeistarakeppni unglinga ’84 í frjálsum dönsum. Allir unglingar á aldrinum 13—17 ára hvað- anæva af landinu hafa rétt til þátttöku. Keppt verður í einstaklings- og hópdansi (hópur er minnst 3 einstaklingar). Unglingar sem hyggja á þátttöku geta fengið að æfa sig í félagsmiðstöðvunum fimm og er bent á að panta tíma sem allra fyrst þar sem búist er viðmikilli aösókn. Fyrirkomulag keppninnar: Undankeppni er 15. mars kl. 20 í Tónabæ. Urslitakeppnin er 16. mars kl. 20 í Tónabæ. Innritun fer fram í öllum félagsmiðstöðvum frá 5. mars. Þátt- tökutilkynningar þurfa að hafa borist í Tóna- bæ fyrir 12. mars. Tímapantanir og skrásetn- ingar: Tónabær, 35935. Fellahellir, 73550. Bústaðir, 35119. Þróttheimar, 39640. Ársel, 78944. Þátttökugjald er ekkert. Tónabær. Kvenfélag Lágafellssóknar heldur fund í Hlégarði mánudaginn 5. mars kl. 20.30. Fundarefni: rætt um fíkniefnamál ogfl.,kaffiveitingar. Stjórnin. Aðalfundur Kvenstúdentafé- lags íslands og Félags íslenskra háskólakvenna var hald- inn 18. febrúar sl. í veitingahúsinu Torfunni. Fráfarandi formaður, Arndís Bjömsdóttir, flutti skýrslu um starfsemi félagsins á síðasta ári og fráfarandi gjaldkeri, Inga Dóra Gúst- afsdóttir, gerði grein fyrir reikningum félags- ins sem samþykktir voru athugasemdalaust. Fyrir lá að kjósa þrjár konur í stjóm Félags ísl. háskólakvenna og eina til vara sem jafn- framt yröu þá stjórnarkonur í Kvenstúdenta- félaginu. Formaður var kosinn Þórey Guðmunds- dóttir, varaformaður Amdís Björnsdóttir, meðstjórnandi Geirlaug Þorvaldsdóttir og til vara Erla Þórðardóttir. 1 stjórn Kvenstúdentafélags Islands voru kosnar, auk þeirra er áöur er getið; Guðlaug Konráðsdóttir, Hildur Bjarnadóttir, Sigríður Guðmundsdóttir, Ragnheiður Agústsdóttir og til vara Erla Þórðardóttir og Bergþóra Krist- Erlendsdóttir, I kvenréttindanefnd vom kosnar: Inga Dóra Gústafsdóttir, Ragnheiður Ágústsdóttir og Bergljót Ingólfsdóttir. Endurskoöendur vom kosnir Inga Dóra Gústafsdóttir og Ema ERlendsdóttir. Hildur Eyþórsdóttir var kjörin til að s já um spjaldskrá félagsins og fulltrúi félagsins hjá Unicef er áfram Erla Elín Hansdóttir og til vara Brynhildur Kjartansdóttir. Akveðið er að halda hádegisverðarfund í marsmánuði og verður hann auglýstur síðar svo og efni það sem tekið verður til meðferðar á fundinum. Skipadeild Sambandsins Hull/Goole: Gautaborg: Jan .6/3 Francop 28/2 Jan .19/3 Francop . 13/3 Jan .2/4 Francop 27/3 Jan .16/4 Francop 10/4 Rotterdam: Kaupmannahöfn Jan .7/3 Francop 29/2 Jan .20/3 Francop 14/3 Jan .3/4 Francop 28/3 Jan .17/4 Francop 11/4 Antwerpen: Svendborg: Jan .8/3 Francop .1/3 Jan .21/3 Francop 15/3 Jan ..4/4 Francop 29/3 Jan .18/4 Francop 12/4 Hamburg: Aarhus: Jan . .9/3 Francop .2/3 Jan .23/3 Francop. 16/3 Jan .6/4 Francop .30/3 Jan .20/4 Francop .13/4 Helsinki/Turku: Falkenberg: Arnarfell .27/2 Helgafell .14/3 Hvassafell ..5/3 MælifeU .20/3 Hvassafell .26/3 Larvik: Gloucester, Mass.: Francop .27/2 Jökulfell .13/3 Francop .12/3 Skaftafell .27/3 Francop .26/3 Francop ..9/4 Halifax, Canada Skaftafell .28/2 Skaftafell .28/3 Bella Tapað -fundið Karlmannsúr og giftingarhringur töpuðust Karlmannsúr og giftingarhringur töpuðust á leið frá Hlemmi í Slðumúla eða í leið 2 29. febrúar. Upplýsingar í símum 19469 og 39040. Árshátíðir Árshátíð Félags einstæðra foreldra veröur haldin í Þórskaffi föstudaginn 9. mars 1984. Borðhald hefst kl. 20.00, miðaverð kr. 560. Hafið samband við Stellu á skrifstof- unni í síma 11822, allra síðustu forvöð að til- kynna þátttöku er þriðjudaginn 6. mars 1984. Siglingar Aætlun Akraborgar Frá Akranesi Frá Reykjavík Kl. 8.30 Kl. 11.30 6K1. 14.30 Kl. 17.30 Kl. 10.00 Kl. 13.00 Kl. 16.00 Kl. 19.00 Við höfum ekki tíma til að skoða allt safnið ef þú ert alltaf að kíkja aftur og aftur á það sama.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.