Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1984, Side 44

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1984, Side 44
44 DV. MANUDAGUR 5. MARS1984. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið LEIÐARLJÓS Veðjum, m m vmir Mikið óskaplega er hægt að: læra mikiö af útlendingum. Ef við hefðum ekki lært að lesa í' fornöld hefðu útlendingar örugg- lega verið til í að kenna okkur það fyrir lítið. Hér á síðunni til hiiðar er lítil og látlaus frétt, sem lætur ekki mikið yfir sér, en er þó alir- ar athygli verð. Sérstaklega vegna þess að hún er lærdómsrík. Ef hún er lesin með réttu hugar- fari og hugmyndin gripin á lofti gæti hún orðið tU þess að auöga menninguokkar. Fréttin fjaliar um veðmál i Englandi vegna væntanlegrar barnsfæðingar Díönu prinsessu. Islendingar ættu aö fara að veðja því að þaö er bæði skemmtUegt, spennandi og dýrt. Gallinn er bara sá að það er bannað að veðja á Islandi. Einu sinni var að vísu leyft að veðja á hesta á hvítasunnukappreiðum Fáks, meðan þær voru og hétu við Elliðaárnar, og Sigurður Olafsson hleypti Glettu á skeiö. Og síöar Hrolli syni hennar. Þá gengu jafnt börn sem ungl- ingar með Mackintoshtunnur í fanginu vegna þess að gróðinn úr Veðbankanum komst ekki fyrir í buxnavösunum og aUs ekki í reið- buxnavösum. Þetta var svo ein- falt. Það var bara veðjaö á ein- hvem hest og svo vann hann. Island er óplægður akur á veð- málasviðinu ef hvítasunnukapp- reiðamar eru undanskildar. Hér á Iandi eru ótal möguleikar í þessum efnum: Það er hægt að veöja um veðr- iö, áætlanir strætisvagna, þak- leka húsa, slitþol malbUcs, meðal- aldur þingmanna, hversu mörg- um tíaurum er hægt aö troða inn í tannkremstúpu, hvort HeUisheiði sé opin, hvort ísinn sé búin í Eden eöa hvort skuttogarinn Ogrí geti veitt lax. Einnig má veöja um hvort páskaroir séu í aprU eða október. Snúum bökum saman. Stofnum veðbanka! Þaö er góð tilbreyting frá bankaveðum. Þeir sem ekki vilja vera með geta haldið áfram að heita á Strandakirkju. Verður það strákur, stelpa eðatvíburar: KONUNGLEG VEÐ- MÁL í BRETLANDI Nú, þegar ljóst er að Díana, eiginkona Karls Bretaprins, á von á öðru barni sínu, stendur ekki á þegnum þeirra að veðja um hvort afkvæmið verði strákur, stelpa eða tvíburar. Veðmálastofur stórgræða þessa dagana, velta pundum eins og boltum og nú standa leikar þannig að 11 á móti 10 veðja á stelpu, 50 á móti 50 að strákur sé á leiðinni og 25 á móti einum að hér séu konunglegir tvíburar á ferð. Myndin hér að ofan sýnir verðandi móður á hlaupum um stræti Lundúna- borgar áður en hún giftist Karli og byrjaði að ala honum böm. Britt og Slim Jim Phantom, sem er 20 árum yngri en sú sænska: — Hann hefur kennt mér margt en ég honum fleira. Britt með börnin sin: Sú stærri heit- ir Viktoría og er dóttir Peter Sellers en sá litli heitir fílikólas og ber ætt- arnafnið Adler. Britt er ekkert beibí Britt Ekland, sænsk kynbomba, sem starfar í Bandarikjunum og fræg fyrir að hafa verið gift Peter Sellers, Rod Stewart og fleirum, er nú orðin 42 ára. Hún lætur það ekki á sig fá og heldur í æskuna meö því að hafa unglamb á heimili sínu, Jim McDonnel, 22 ára, sem er betur þekktur sem Slim Jim Phantom, trommuleikari hljomsveit- arinnarStray Cats. „Hann hef ur kennt mér margt, en ég honum fleira,” segir Britt og brosir sínu fræga, sænska brosi. Reyndar er Britt metsöluhöfundur og græddi stórfé á bók sinni Tme Britt (Hin sanna Britt) þar sem hún lét flest vaða og nú á að fylg ja velgengninni eft- ir með annarri bók: Sensual Beauty an How to Achieve it. Auk þess vinnur Britt að gerð mini-s jónvarpsþátta fyrir kapalkerfi Playboy tímaritsins. Nefn- ast þeir Erotic Images (Kynmyndir) og f jalla um ósköp venjulega húsmóð- ur, sem dundar sér við aö skrá niður kynóra sína, setur þá síðan á bók og verður milljónamæringur. Ávarpa átti dómara gyðingalúdósins, herra Eichmann, og hér sést sá eini og sanni Eichmann, Adolf Eichmann, i réttarhöldum i Jerúsalem 1961 þar sem hann var dæmdur fyrir striðsglæpi. GYÐINGALÚDÓ — sá vinnur sem fyrstur sendir 6 mill jónir gyðinga í gasklefana Lögreglan í Bonn í V-Þýskalandi hef- ur handtekið fyrrum yfirlögregluþjón vegna allsérkennilegs lúdóspils sem fannst heima hjá honum. Þaö var nokkurs konar gyðingalúdó, leikið á eins og um venjulegt lúdó væri að ræða, gyðingastjama í miöju og byrjunarreitirnir staðsettir á örmum hennar. Einn leikmanna var útnefndur dómari og hann mátti aldrei ávarpa nema herra Eichmann. Sá varö sigur- vegari sem fyrstur var búinn að senda 6 mill jónir Gy ðinga í gasklefana. Sá grunaði, sem er 35 ára og heitir Hans Gunther Frölich, neitar að vera höfundur spilsins þó að það hafi f undist inni í bakarofni heima hjá honum. „Þetta er athyglisvert spil,” var það eina sem lögreglan hafði upp úr hon- um. Britt Ekland hlustar á útvarp.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.