Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1984, Side 45

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1984, Side 45
fiXo r r>«-3 t.a % 'T', t DV. MANUDAGUR 5. MARS1984. 45 Sviðsljósið * Sviðsljósið Sviðsljósið Þessar eru of ungar til að taka þátt i danskeppninni, enda alveg nóg að vera i ballett. Danskeppni —allt leyfilegt Félagsmiðstöðvarnar í Reykjavík efna til danskeppni dagana 15. og 16. mars og fer hún fram í Tónabæ. Ekki er keppt í neinum ákveðnum döns- um, heldur mega keppendur dansa allt það sem þeir helst vilja, ræla, polka, diskó og djæv svo að eitthvað sé nefnt. Allir unglingar á aldrinum 13—17 ára hafa rétt til þátttöku hvar sem þeir búa á landinu. Þeir sem þess óska geta fengið að æfa sig í félags- miöstöövunum en betra er að panta tíma því að búist er við mikiUi að- sókn. Þetta er í þriðja sinn sem dans- keppni af þessu tagi er haldin hér. María og Johnny Hann Sigurður Johnny, frægur söngvari hér á árum áður, er ekki að rokka Maríu Baldursdóttur í svefn þó að myndin sé tekin á rokkhátiðinni í Broadway. Hann varö bara svo hissa að hitta litlu stelpuna sem söng meö honum uppi á KeflavíkurflugveUi þeg- ar hún var aðeins 15 ára gömul. Annars er María Baldursdóttir búin að syngja opinberlega í ein 20 ár. Byrj- aði í gatnla Ungó i Keflavik með hljóm- svcitinni Skuggum, sem Gunnar Þórðarson stjórnaði með gitarnögl- inni, og við trommurnar sat sjálfur Rúnar Júliusson. Hann hafði siðar vit á þvi að færa sig yfir á bassann og gift- ast Maríu. Þau eru enn gift og syngja og spila eins og ekkert hafi í skorist. TIC TAC „Eitt hundrað Akumesingum líkar vel við tónlist hljómsveitarinnar Tic Tac og var mikið klappað og flautaö þegar hljómsveitin lék á heimaveUi fyrir skömmu og menn almennt ánægðir með að nú væri loks búið að merkja Akranes inn á rokkkortið,” segir i fréttatUkynningu sem barst yfir flóann. Liðsmenn Tic Tac eru alUr á aldrinum 18—19 ára og segjast leika gleðimásik sem endurspegU vel við- horf þeirra tU lífsins eða eins og segir í lagi þeirra Joy: Don’t hide behind that shyness, walking hand in hand with the waU / get out of your bunker, no one is going to hurt you. Bubbi Morthens segir aö Tic Tac hafi alveg meiriháttar sánd. Á myndinni sjást Bjami Olafsson söngvari og Olaf ur FriðrUísson gítar- leikari. LOKSINS: Einkalíf leiðtogans Þá hefur hulunni verið svipt af einkalífi Chernenkos, leiðtoga Sovét- ríkjanna. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum í Moskvu, sem ekki veröa nafngreindar hér, er Chernenko kvæntur önnu Dmitrievna, konu á sextugsaldri, sem er þekkt fyrir kvikmyndaleik í Rússlandi og ákaf- lega virk í sovésku Ustalífi. Þau eiga tvö börn, Vladimir Konstantínovich sem er deUdarstjóri í kvikmyndaveri ríkisins, Goskino, og dótturina Jelena Konstantinovna sem hefur háskólagráðu í marxískum fræðum og starfar á rannsóknarstofu í marx- lenínisma. Þá flýgur það fjöUum hærra aö. Chernenko eigi annan og eldri son frá fyrra hjónabandi, Albert Konst- antinovich og starfar sá á áróðurs- skrifstofu kommúnistaflokksins í TomskíSíberíu. Hann er sagður geta átt von á stöðuhækkun. Á leiðtoginn tvö böm eða þrjú? HEIMSLJÓS Banka- og bátaræn- ingjar Þeir voru ekki með neinn æs- | ing, bankaræningjarnir í Amster- dam, sem sluppu úr greipum lög-1 reglunnar í fyrri viku. Eins og lög i gera ráð fyrir birtust þeir í banka 1 einutn með niðurskomar hagla- byssur og báðu um peninga. Bankamönnunum þóttu þeir , óvenjulega rólegir og höfðu fyrir , bragðið nægan tíma tU að kalla á 1 lögreglu. Lögreglan mætti, um- kringdi húsið og skipaði ræningj- unum að koma út með hendur yf- ir höfði. En ræningjarair gerðu 1 sér lítið fyrir, stukku út um bak- dyrnar og beint upp í hraðbát j sem brunaði á braut. Það eru nefnUega síki í Amsterdam. Samkvæmt upplýsingum hol- i lensku lögreglunnar siuppu ræn- ingjarnir ekki á gondóla. 48prósent gengis- felling Jaime Lusinchi, forseti! Venesúela, kynnti fyrir skömmu I ráðstafanir ríkisstjórnar sinnar í | efnahagsmálum sem ætlað er að j skjóta styrkari stoðum undir rík- ið en verið hefur. Eitt helsta I vopnið er 48% gengisfelling. Allan rændur Voru það aðdáendur eða óbreyttir innbrotsþjófar? Spurn- 'ingin brennur á vörum fjöl- margra eftir að brotist var inn í sumarbústað knattspyrnusnUl- ingsins AUan Simonsen í V- Þýskaiandi og þaðan stoUð lit- sjónvarpstæki, útvarpi með 2 há- tölurum, einum tweed-jakka og tveim æfingagöUum. Ef aðdáandi var hér á ferð má búast við að sá hinn sami sitji nú i tweed-jakka yfir tvöföldum æfingagaUa, hlusti á útvarp og horfi á sjónvarp. Gaman! Ormarvið Hvítahúsið Það ætlaði aUt af göflunum að ganga er lifverðir Reagans Baiularíkjaforseta komu auga á slöngur i trjám garðsins við Hvita húsið. Ráðist var til atlögu við ófreskjurnar en þá kom í ljós að hér var um gúmmíslöngur að ræða, sem garðyrkjumaður for- ' setans hafði sett í trén tU að flæma starra frá. Starrarnb: eru vist að eyðUeggja trén sem voru gróður- sctt af Andrew Jackson, fyrrum Bandaríkjaforseta fyrir 150 ár- um. AIDSí Mið-Afríku Sjúkdómurinn Aids sem helst er tal- inn leggjast á kynhverfinga og eiturlyfjasjúklinga er útbreiddur í Mið-Afríkurikjunum Zaire, Tchad, Rwanda og Burundi að sögn belg- ískra vísindamanna. Athygli vekur að í þeim löndum eru sjúklingamir 'firleitt hvorki kynhverfir né háðir ituriyf jum. Er það einstakt. 3000 Bandaríkjamenn þjást nú af DS og eiga sér engar vonir um lata.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.