Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1984, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1984, Blaðsíða 29
29 DV. LAUGARDAGUR 7. APRIL1984. ísarn hf.: Vörubflar og dýrasti bfll landsins Isam, umboösaðili Scania i Svíþjóö, verður meö þrjá bíla ó Auto 84. Inni í ÁG-húsinu verður vörubDl af geröinni T 112H 6X4 og á útisvæði verður vöru - bíll af gerðinni P112 M 6x4, sem er vörubíll sérlega byggður til lang- flutninga á slæmum vegum, því hann er meö fjórum sjálfstæðum fjöðrum á afturöxlunum. Þá verður þar áætlunarbíll byggður á K112 undir- vagn, s jálf skiptur með 305 hestafla vél. Hann er með sætum fyrir 58 farþega, hallandi sætum, loftkælingu og bestu útfærslu sem fáanleg er í bíia af þess- ari gerð. Yfirbyggingin er frá Kutt- er yfirbyggingaverksmiðjunum í Finnlandi af svonefndri „Continental” gerö. Þetta er án efa dýrasti bíll á Islandi að sögn Ágústs Hafberg, for- stjóra Isam. Svona bíll mun kosta um fimm milljónir króna. T 112 H 6x4 bíllinn, sem sýndur er á Atuo 84, er meðal stærstu vörubíla frá Scania. Hann ber sjö tonn á framöxul og 20 á afturöxlana tvo. Drif er á báðum afturöxlunum. Hann er átta metra langur, en annars er erfitt að taia um stærðir á vörubílum því þeir eru yfirleitt hafðir að óskum kaupend- anna hverjusinni. Vörubílar hafa tekiö miklum stakka- skiptum síðustu ár. Sérstaklega á þetta við um aðbúnað bilstjóranna. Húsin og stjómtæki öll hafa verið bætt svo mjög að í dag er í raun betri aðbúnaður ökumanna í vörubílum en í mörgum fólksbílnum. Sænsku vöm- bílaverksmiðjumar Volvo og Scania hafa þótt standa mjög framarlega í því að gera aðbúnaö bílstjóranna sem bestan. • • • • Scania vöruflutningabUl. A myndinni er bUl af 112 E, sem er sterkasta gerð vörubQa í þessum flokki frá Scania. Scania T112 H 6 X 4 Frambyggður vörubíll. Burðargeta: sjö tonn á framöxul/20 tonn á tvöfalda afturöxla. Lengd 8 m. Vél: DSC11 fjór- gengis disil, með forþjöppu og millikæli. 333 hestöfl DIN (225kW) við 2000 sn. á min. Togkraftur 142 kg p.m. við 1250 sn. Olíueyðsla á kWstund 194 gr, miðað við 1500 sn. 4,20 mmillihjóla (getur vcrið310 til460). Girskipting 10 gira al- samhæfð þrepaskipting. Drif á báðum afturhásingum, hægt að Iæsa öUum drifum. NYRBILL , BYGGÐURA TRADSTUM GRUNN OG FYRIR AÐEINS 315.000 KRONUR PEUGEO 205-ÁRG.1984 6 ára ryðvarnarábyrgð • ef gamli bíllinn þinn er í góðu ásigkomulagi tökum við hann upp í nýjan Peugeot • peugeothos hágæða- bíll fyrir hagstætt verð • Frönsk vísi • Góð greiðslukjör HAFRAFELL Vagnhöfða 7 S 85-2-11 Við erum ódýrari! Póstsendum um land allt HqGG Smiðjuvegi 14, sími 77152

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.