Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1984, Blaðsíða 18
s«•*■«?
18
DV. MANUDAGUR 30. APRIL1984.
V
Einstefna hefur verið tekin upp á Vesturgötu, milli Ananausta og Seljavegar. A þeim kafla er nú aðeins
strætisvögnum heimilt að aka iausturátt. Þetta er gert til að draga úr umferð um þrönga Vesturgötuna.
DV-mynd S.
TVÆR UMSÓKNIR UM
VÍNVEITINGALEYFI
Borgarráð hefur nú til umsagnar
tvær umsóknir um almennt
vínveitingaleyfi en dómsmála-
ráöuneytiö tekur endanlega ákvörðun í
slíkum málum. Er hér um aö ræöa
vínveitingaleyfi fyrir veitingahús í
Skipholti 37 annars vegar og í svoköll-
uöu Hamarshúsi viö Tryggvagötu hins
vegar.
Aö sögn Gunnars Eydals, skrifstofu-
stjóra borgarstjóra, mun borgarráö
leita til áfengisvarnanefndar borg-
arinnar til aö fá álit varöandi umsögn
sína um þessar beiðnir. Annaöhvort
hafa viðkomandi aöilar þegar fengiö
veitingaleyfi eða sækja um slikt sam-
tímis, aö sögn Gunnars, en þaö er heil-
brigöiseftirlit borgarinnar sem veitir
þaö. Viö úthlutun veitingaleyfa lætur
heilbrigðiseftirlitiö gera úttekt á
viökomandi stööum og sendir síöan
umsögn til lögreglustjóra. Borgarráö
veitir einnig umsögn sína varöandi út-
hlutun veitingaleyfa en lögreglustjóri
tekur endanlega ákvörðun.
-HÞ.
Áhyggjur lækna
vegna sparnaðar
ráðstafana
Sameiginlegur fundur stjórna
læknaráöa Borgarspítala, Landa-
kotsspítala og Landspítala varar
nýlega við afleiöingum fyrirhugaöra
spamaöarráðstafana í rekstri þess-
ara spítala.
I yfirlýsingu frá formönnum
læknaráöa viðkomandi spítala segir
að á undanförnum árum hafi rekstr-
arfjárskortur haft í för meö sér
mikiö aöhald og spamaö á öllum
sviðum. Muni frekari niðurskurður
því óhjákvæmilega leiöa til sam-
dráttar í allri þjónustu við sjúklinga.
Þá lýsa stjórnir læknaráðanna
áhyggjum sínum yfir þeim víðtæku
lokunum á sjúkradeildum sem fyrir-
hugaðar eru í sumar. Lokanimar
svara til þess aö á 12 vikna tímabili
veröa yfir 100 sjúkrarúm tekin úr
notkun á lyfja-, handlæknis- og
bamadeildum þessara þriggja
spítala. Því sé ljóst að vart verður
hægt aö sinna nema bráðaþjónustu á
þessu tímabili, segir í yfirlýsingunni
og jafnframt að búast megi viö aö
lítiö sem ekkert verði hægt aö taka
inn af biðlistum spitalanna í sumar.
DV ræddi m.a. viö tvo yfirlækna á
Landspítala og innti þá eftir því
hvernig málum væri háttaö varðandi
tadd til lækninga og rannsókna og
endumýjun á þéim. Ásmundur
Brekkan, yfirlæknir á röntgendeild
Landspítalans, sagöi aö varöandi
tækjabúnaö í þeirri deild væri „um
algert neyöarástand aö ræöa”.
„Þetta er eina röntgendeildin í heim-
inum af þessari gerð sem ekki á
sónartæki sem er mjög mikilvægt
við rannsóknir,” sagöi Asmundur.
Sagöi hann aö meöalaldur geisla-
tækja á röntgendeild værí um 12 ár
en sum væru allt frá 1965, þótt slík
tæki ættu aö afskrifast á sjö til tiu
árum. „I tillögu, sem ég hef gert
varöandi fjárlög fyrir 1985, rnkna ég
meö aö viö þurfum 14 milljónir króna
fob-verð, en sú fáránlega regla gildir
aö þessi upphæö tvöfaldast vegna
tolla og skatta. Nauðsynleg endur-
nýjunarþörf liggur á bilinu 25 til 30
milljónir, þegar litiö er á
brúttótölu,” sagöi Ásmundur
Brekkan.
Þóröur Harðarson, yfirlæknir á
lyfjadeild Landspítalans, sagöi aö á
Landspítalanum væri andviröi
meiriháttar lækningatækja á bilinu
400 til 500 milljónir. Sagöi Þórður að
ef reiknaö væri meö tíu ára af-
skriftum á tækjum þyrfti 40 til 50
milljónir árlega í endurnýjun til að
halda í horfinu. Sagöi Þóröur að und-
anfarin ár hefði engri umtalsverðri
upphæð verið varið í tækjakaup
heldur hefði spítalinn reitt sig á alls
konar líknarfélög. „Viö fengum 15
milljónir i fjárveitingu á sl. árí til aö
kaupa hjartaþræöingartæki en slikt
dregur skammt i viðhaldsupphæð.
Samtök hjartasjúklinga gáfu
deildinni hjartasónartæki og tölvu,
þannig aö þessi deild er mun betur
sett en t.d. röntgendeild og rannsókn-
ardeild,” sagöi Þóröur Haröarson.
-HÞ
Ferdamátinn flug og bíll er feröamáti athafnafólksins. Fólks, sem vill fara
annað, ráöa sér sjálft, komast lengra, kynnast fleiru. Þú ert sjálf(ur)
skipuleggjarinn, fararstjórinn, leiösögumaðurinn og bílstjórinn.
Stærsti kostur ferðaáætlunarinnar er aö engu máli skiptir hvort hún
stenst eða ekkií
Flug og bíll er sérgrein Úrvals og þess vegna bjóðum við
auðvitað hagstæðustu verðin.
Verðin hér að neðan eru miðuð við 4 í bíl. Innifalið er bíll með
ótakmörkuðum akstri íeina viku, ábyrgðartrygging og söluskattur)
Kaupmannahöfn verð frá kr. 11.414.-
London verð frá kr. 10.523.-
Glasgow verð frá kr. 9.323.-
París verð frá kr. 11.886.-
Amsterdam verð frá kr. 10.882.-
Luxemborg verð frá kr. 9.240.-
Osló verð frá kr. 8.600.-
Stokkhólmur verð frá kr. 13.322,-
Frankfúrt verð frá kr. 11.611.-
Róm verð frá kr. 16.310.-
Ert þú ekki samferða í sumar?
Síminn er 26900.
FERÐASKRIFSTOMN ÚRVAL