Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1984, Blaðsíða 27
DV. MANUDAGUR 30. APRIL1984.
27
tíilL-Wír,
IMÝ* NÝ* NÝ
Jóhannes Hjálmarsson, kraftlyftingamaður frá Akureyri. Við getum ekki
verið þekkt fyrir að hann sitji heima þegar heimsmeistaramótið fer fram í
Astralíu.
Mjög slök
frammistaða
— hjá íslenska landsliðinu í körfuknattleik á EM
— Tap gegn Dönum, 76-80, og Portúgal, 59-65
„Þetta var jafn leikur og það
vantaði aðeins herslumuninn á að
okkur tækist að leggja „Baunana”
að velli,” sagði Sigurður Hjörleifs-
son, aðstoðarlandsliðsþjálfari í körfu-
knattleik, eftir að Danir höfðu sigrað
Islendinga í landsleik þjóöanna á EM
í Osló á laugardag. Danir skoruöu 80
stig en Islendingar 76.
Stig Islands: Kristján 21, Torfi 18,
Flosi 13, Jón Sig. 9, Valur 7, Sturla 2,
Jón Kr. 2, Garðar 2 og Jón Stein-
grímsson skoraði 2 stig.
Norðmenn unnu Portúgali að
loknum leik Islendinga og Dana með
aöeins tveggja stiga mun, 80—78.
Islenska landsliðiö var óheppiö að
tapa gegn Portúgölum í fram-
lengdum leik í leik liðanna í Evrópu-
keppninni á föstudagskvöld. Jafnt
var eftir ven julegan leiktíma, 56—56,
og lokatölur uröu 65—59.
Stig Islands í leiknum skoruöu
þessir leikmenn: Flosi 14, Torfi 11,
Kristján 8, Jón Sig. 7, Sturla 4, Jón
Kr. 4, Valur4. -SK.
„Ég er mjög sár
og leiður yf ir
þessu öllu saman”
— segir Jóhannes Hjálmarsson, einn besti kraftlyftingamaður heims íflokki
öldunga, en hann kemst ekki á HM vegna mikils kostnaðar—Jóhannes hefur
HAFIMARSTRÆT116 SIIVI112180
Það hlýtur að verða að teljast súrt í
meira lagi að verða emn besti íþrótta-
maður í sinni grein í heiminum en geta
ekki komist á heimsmeistaramót
vegna þess að það kostar svo mikið.
Svo er komið fyrir Jóhannesi •
Hjálmarssyni, kraftlyftingamanni frá
Akureyri. Hann varð heimsmeistari
öldunga 1981 og 1982 og á síðasta
heimsmeistaramóti hafnaði hann í
öðru sæti. Næsta heimsmeistaramót,
sem fram fer í haust, verður í Astralíu
og það þarf marga „rauða” til að geta
borgað fiugfar þangað og uppihald.
„Eg sé ekki neina leiö til lausnar á
þessu leiöinlega máli,” sagöi Jóhannes
Hjálmarsson í samtali við DV um
helgina, en hann er 53 ára gamall og
tvívegis orðið heimsmeistari
sigraði engu að síður í sínum þyngdar-
flokki á Islandsmótinu um helgina.
„Eg reikna með að ferðin til Astralíu
kosti um 90 þúsund og ég hef engin efni
á aö borga það. Það hefur heldur
enginn sýnt áhuga á því að styrkja mig
til fararinnar og það verður að segjast
eins ög er að mér finnst það helvíti súrt
að þurfa að sitja heima og mörgum
kunningjum mínum finnst það ekki
hægt. Þeir segja að það hafi enginn ís-
lenskur íþróttamaður komiö meö fleiri
verðlaunapeninga frá heimsmeistara-
móti en ég og það kann að vera rétt. Eg
reikna með að ef ég kæmist til Astralíu
myndi ég ná öðru sæti að minnsta kosti.
Eg er mjög sár og leiður yfir þessu öllu
saman. Maður er búinn að leggja
ómældan tíma í æfingar og svo þegar
maður hefur náö besta árangri í
heiminum hvað eftir annað þá er vart
hægt að sætta sig við að sitja heima
þegar heimsmeistaramótið verður í
fullum gangi í Astralíu,” sagði
Jóhannes.
Ættu nú allir, sem áhuga og getu
hafa, að leggjast á eitt og hreinlega
bjarga Jóhannesi til Astralíu. Þaö þarf
aö gerast í hvelli því að kappinn þarf
að æfa vel fyrir mótið sem byrjar í
september nk. og vita það sem fyrst
hvort hann kemst til Astralíu.
-SK.
Fullkomin samsetning
Ódýrara, sterkara og mun íallegra
SUMARTÍSKAN
•' GARNIKOMIN
Nýjar sendingar
afbóm ullargarni.
Nýjar uppskriftir.
FATAVERSLUN
Þéttigrip
Gerum verötilboö
Fúavariö í gegn
Sendum gegn póstkröíu.
TRESMIÐJAN MOSFELL H.F-
HAMRATÚN 1 MOSFELLSSVEIT SÍMI 6 66 06
verð frá kr. 51,00 50 g.
Slétt 100% bómull verð frá kr. 33,00 50 g.
Bómull/acryl verð frá kr. 41,00 50 g.
RÍÓ REIMAGARNK)
Ennfremur uUargarn og ullarblöndur ýmiss
konar, t.d. ull/silki, ull/acryl og möher
blöndur alls konar.
Já, listinn er næstum ótæmandi.
Sjón er sögu ríkari.
Póstsendum daglega.
HOF
INGÓLFSSTRÆT11 Simi 16764
íþróttir íþróttir íþróttir