Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1984, Qupperneq 28
28
DV. MÁNUDAGUR 30. APRlL 1984.
I íþróttir í íþróttir í íþróttir íþróttir
Markaregn Dýrlinganna
í sólinni í Southampton
—Sheff. Wed. og Chelsea á ný í fyrstu deildina
Það voru leikmenn Southampton
sem stálu senunni á laugardaginn með
ótrúlegum stórsigri gegn Coventry
City á „Hie Dell”, heimavelli sínum, og
eru algerlega óstöðvandi um þessar
mundir. Það gerðist lika einnig að tvö
gamalfræg lið, Chelsea og Sheffield
Wednesday, tryggðu sæti sín í 1. deild á
næsta keppnistímabili. Á toppnum er
staðan óbreytt, það munar enn
tveimur stigum á Liverpool og
Manchester United eftir að þau náðu
aðeins jafnteflum i Ieikjum sinum
gegn Ipswich og West Ham, og Notts
County er komið með annan fótinn í 2.
deild eftir tap gegn Aston Villa.
Við hefjum yfirferð okkar um knatt-
spymuvellina á Englandi á „The
Dell” í Southampton þar sem heima-
menn fóru algerum hamförum gegn
lánlausu liöi Coventry. Það var
David Armstrong sem skoraði fyrsta
markið í leiknum á upphafsmínút-
unum og Danny Wallace bætti ööru
marki við fyrir leikhlé. Staöan 2—0 í
hálfleik. I síöari hálfleik urðu yfir-
burðir heimamanna algerir og stóð
ekki steinn yfir steini hjá gestunum og
mörkin hlóðust upp. Steve Moran
skoraöi þriðja og f jórða markið. Frank
Worthington skoraöi það fimmta,
Wallace sjötta og sjöunda og fullkomn-
aði þar með þrennu sína. En Steve
Moran vildi ekki verða minni maður en
Wallace og bætti sjöunda og áttunda
markinu viö og gerði því einnig „Hat-
Trick” í leiknum. Eins og markatalan
gefur til ky nna var aðeins eitt lið á vell-
inum og er Coventry eftir þessa hroða-
legu útreið nú komið á hættusvæðiö við
botn deildarinnar.
ÚRSLIT
Urslit í leikjunum á Englandi um
helgina.
1. deild
Arsenal-Leicester 2—1
Aston Villa-Notts. Co. 3—1
Liverpool-Ipswich 2—2
Luton-Watford 1—2
Man. Utd.-West Ham 0-0
Norwich-Everton 1—1
Nottm. For.-Stoke 0—0
QPR-Tottenham 2—1
Southampton-Coventry 8—2
Sunderland-Birmingham 2—1
Wolves-WBA 0—0
2. deild
Brighton-Barnsley 1—0
Cambridge-Newcastle 1—0
Carlisle-Grimsby 1—1
Charlton-Shrewsbury 2—4
Chelsea-Leeds 5—0
Derby-Man. City 1—0
Huddersfield-Cardiff 4-0
Oldham-Portsmouth 3—2
Sheff. Wed.-C. Palace 1—0
Swansea-Middlesbrough 2—1
3. deild
Bolton-Bournemouth 0—1
Bradford-Brentford 1—1
Bristol Rov.-Lincoln 3—1
Exeter-Preston 2—1
Newport-Oxford 1—1
Orient-Hull 3-1
Port Vaie-Burnley 2—3
Rotherham-Gillingham 3—0
Scunthorpe-Miliwall 0—1
Southend-Sheff. Utd. 0—1
Walsall-Wigan 3—0
Wimbledon-Plymouth 1—0
4. deild
Blackpool-Hereford 3—1
Chester-Doncaster 1—0
Chesterfield-Bristol C. 1—1
Coichester-Torquay 3—0
Crewe-Tranmere 3—0
Darlington-Halifax 3—2
Northampton-Wrexham 3—3
Reading-Bury 1—1
Rochdale-AIdershot 3—1
Stockport-Peterbro 4—1
York-Hartlepool 2—0
Man. Utd. varð að sætta sig
við jafntefli á heimavelli
Man. Utd. missti enn eitt tækifærið
til þess að komast upp að hliö Liver-
pool í baráttunni um enska meistara-
titilinn. United varð að sætta sig
markalaust jafntefli gegn West Ham á
Old Trafford. Heimamenn sóttu lát-
laust allan leikinn en tókst ekki aö
brjóta aftur sterka vörn West Ham.
Það var reyndar West Ham sem fékk
fyrsta marktækifæri leiksins strax á 3.
mínútu en þá komst Tony Cottee einn
innfyrir vöm Man. Utd. eftir sendingu
frá Geoff Pike, en hann skaut beint í
fangið á Gary Bailey. En síðan ekki
söguna meir. United gerði hverja orra-
hríöina að marki „Hammers” en tókst
ekki aö skora í fyrri hálfleiknum. I
síðari hálfleik hélt einstefnan áfram og
vamarmenn West Ham björguðu á
marklínu skoti frá Frank Stapleton og
Phil Parkes bjargaði á hreint ótrúleg-
an hátt þrumuskoti frá Remi Moses á
78. mínútu og á síðustu mínútunum
skaut Mike Duxbury naumlega fram
hjá en hann var kominn í sóknina og
geröu leikmenn United örvæntingafull-
ar tilraunir til þess aö knýja fram
sigur á lokamínútunum og voru nær
allir leikmenn liðanna í og við vítateig
West Ham þessar mínútur nema Gary
Bailey. Eins og fyrr sagði urðu heima-
menn því að sætta sig jafntefli þar sem
þeir áttu betra skiliö. Man. Utd. lék
enn án þeirra Bryan Robson og Arnold
Múhren.
Q.P.R. nú komið í þriðja
sæti
Velgengni Lundúnaliösins Q.P.R. er
geysileg um þessar mundir, þeir hafa
halað inn tuttugu stig í sjö leikjum,
aðeins tapað einu stigi í þeim, sem var
jafntefli gegn West Ham. Q.P.R. réð
öllum gangi leiksins gegn Tottenham á
Loftus Road og náði forystunni sann-
gjamt á 37. mínútu. Þá fengu þeir
dæmda vítaspyrnu sem fyrirliði
þeirra, Terry Fenwick, framkvæmdi.
En hinn ungi markvörður Spurs, Tony
Parks, gerði sér lítið fyrir og varði
spyrnunna með því að slá knöttinn í
horn, en það var því miður skamm-
góöur vermir. Þvi upp úr homspyrn-
unni, sem Simon Stainrod tók, skoraöi
Wayne Fereday fyrsta mark leiksins.
Staðan því 1—0 í hálfleik. Fljótlega í
s.h. bættu heimamenn öðru marki viö
og kom það einnig eftir homspyrnu frá
Simon Garner en nú var þaö John
Gregory sem skoraöi með skalla sem
Parks átti ekki möguleika að verja.
Steve Archibald tókst aö minnka mun-
inn fyrir Tottenham undir lokin eftir
mistök í vöm heimamanna.
Forest gekk erfiðlega gegn
Stoke
Þrátt fyrir það aö ráða öllum gangi
leiksins og hafa algera yfirburði tókst
leikmönnum Nottingham Forest ekki
aö sigra Stoke City þegar þeir komu i
heimsókn á City Ground. Þaö var um
einstefnu að ræða aö marki Stoke allan
leikinn en vöm þeirra var sterk og gaf
andstæðingum fá tækifæri. Steve
Hodge og Ian Bowyer fengu alger
dauðafæri undir lok leiksins sem þeir
misnotuðu. Þrátt fyrir alla þá yfir-
burði, sem Forest hafði, komst Stoke
næst því að skora eina mark leiksins.
Var það strax á 7. mínútu en þá brást
Mark Chamberlain bogalistin í algeru
dauöafæri eftir að Alan Hudson hafði
splundrað vöm Forest. Stoke gefur því
ekkert eftir í baráttunni um að halda
sætisinuíl.deild.
Notts County með annan
fótinn í 2. deild
Notts County er nú á góðri leið meö
því að fylgja Ulfunum niöur í 2. deild
eftir að þeir töpuöu leik sínum gegn
Aston Villa á Villa Park. Þeir byrjuöu
þó vel í leiknum og náöu forvstunni á
Eric Gates — tvö mörk á Anfield.
15. minútu meö marki blökkumannsins
snjalla, John Chidozie, en rétt fyrir
leikhlé tókst öðrum blökkumanni,
Mark Walters, að jafna metin fyrir
Aston Villa, staöan því 1—1 í hálfleik.
Fljótlega í byrjun síðari hálfleiks náðu
heimamenn forystunni með marki
gömlu kempunnar, Peter Withe, og
skoraði hann með glæsilegum skalla
eftir aukaspyrnu Denis Mortimer.
Aston Villa gulltryggði síðan sigurinn
með ööru marki Mark Walters á loka-
mínútunum.
Botnslagur á
Roker Park
Það var m jög mikilvægur leikur sem
fram fór á Roker Park í Sunderland
þegar heimamenn mættu Birmingham
City. Bæði þessi lið eru alveg við botn
deildarinnar og stigin því mikilvæg.
Sunderland sigraöi í leiknum, 2—1, og
komu öll mörkin úr vítaspymum.
Leighton James skoraöi fyrsta
markið í f.h. og hann skoraði síðan
aftur í byrjun þess síðari en Billy
Wright minnkaði muninn um miöjan
s.h. Miðframherji Birmingham, Mick
Harford, var rekinn af leikvelli undir
lok leiksins. Gary Thompson, mið-
framherji W.B.A., var einnig rekinn af
leikvelli í leik gegn Ulfunum á The
Moleneux. Leikurinn var afspyrnu-
lélegur og markalaust jafntefli vel við
hæfi. Charlie Nicholas fékk einnig að
sjá rauða spjaldiö í leik Arsena! og
Leicester City á Highbury. Nicholas
fékk að sjá spjaldiö þegar staðan var
0—0. En þrátt fyrir það að vera einum
færri tókst leikmönnum Arsenal að
sigra í leiknum (2—1) og skoraöi Tony
Woodcock sigurmarkiö á lokamínút-
unum.
Áfall fyrir Watford
Þrátt fyrir það að Watford ynni
sætan sigur á Luton Town þegar liðin
mættust á Kenilworth Road urðu þeir
samt fyrir miklu áfalli því að fyrirliði
þeirra, Wilf Rostron, var rekinn af
leikvelli og þykir því sýnt að hann mun
ekki geta leikið með liöi sinu í úrslita-
leik ensku bikarkeppninnar á
Wembley þann 19. maí nk. þar sem
hann verður í leikbanni vegna þess-
arar brottvísunar. Það voru þeir Nigel
Callaghan og Maurice Johnston sem
skoruðu mörk Watford í (2—1) sigr-
Ipswich mjakast
af hættusvæðinu
—eftir jaf ntef li við Liverpool á Anf ield
Ipswich Town mjakast hægt og
hægt af mesta hættusvæðinu við botn 1.
deildar eftir mjög gott gengi að undan-
fömu. Hafa þeir nú ekki tapaö í síöustu
fimm leikjum sinum. Þeir náðu frá-
bærum úrslitum á laugardaginn þegar
þeir gerðu jafntefli við Liverpool (2—
2) ogþaðá Anfield.
Ipswich byrjaði mun betur í leikn-
um, en þreyta virtist sitja í leik-
mönnum Liverpool eftir erfiðan leik
gegn Dynamo Bukarest á miðviku-
daginn. Ipswich náði því nokkuö
sanngjamt forystunni á 22. mínútu. Þá
var Eric Gates brugðið rétt utan viö
vítateig Liverpool af Mark Lawrenson.
Mark Brennan tók aukaspyrnuna og
renndi knettinum til Eric Gates sem
skoraði meö þrumuskoti alveg neðst
í markið út við stöng og Grobbi átti ekki’
möguleika. Eftir þetta áfall fóru meist-
ararnir að láta meira til sín taka og
juku hraöann í leiknum og náðu undir-
tökunum. A 31. minútu jöfnuðu þeir
leikinn og var það bakvöröurinn, Alan
Kennedy, sem skoraði markið með
miklum þrumufleyg sem Paul Cooper
átti ekki möguleika að ver ja.
En aðeins sex mínútum síðar
náði Liverpool síðan forystunni eftir
að þeir Lee og Dalglish höföu leik-
ið vörn Ipswich grátt. Barst
knötturinn til Ian Rush sem skoraði
auðveldlega af stuttu færi. Staðan því
2—1 í hálfleik Liverpool í vil. En leik-
menn Ipswich neituðu að gefast upp og
komu ákveönir til leiks í s.h. og á 57.
mínútu jöfnuöu þeir. Atti Alan Sunder-
land, sem nú er lánsmaður frá Ar-
senal, allan heiðurinn að markinu, (
hann lék skemmtilega á Lawrenson og
renndi knettinum til Eric Gates sem
vippaði knettinum snyrtilega efst í
markhornið án þess að Grobbi kæmi
nokkrum vömum við. Eftir þetta
jöfnunarmark hjá Ipswich dofnaði
heldur yfir leiknum og fátt um afger-
andi marktækifæri. En á 78. mínútu
munaði aðeins hársbreidd að Steve
Nicol skallaði knöttinn í eigið mark
eftir homspyrnu. A síöustu fimm
mínútunum var Kenny Dalglish
tvívegis nálægt því að skora fyrir
Liverpool. I fyrra skiptið skaut hann
naumlega framhjá af markteig eftir aö
hafa leikið framhjá vamarmönnum
Ipswich. Og á næstsíöustu mínútu
leiksins skaut hann rétt yfir markiö
beint úr aukaspyrnu sem dæmd var á
Russel Osman fyrir að brjóta á
Dalglish. Leikmenn Ipswich fögnuöu
mjög í leikslok en heimamenn voru
aftur á móti frekar daufir í bragði yfir
því að missa dýrmæt stig í toppbar-
áttunni. Liðin sem léku á Anfield voru
þannig skipuö: Liverpool: Grobbelaar,
Kennedy, Neal, Lawrenson (Nicol),
Whelan, Hansen, Dalglish, Lee, Rush,
Johnstone og Wark. Ipswich: Cooper,
Brennan, Yallop, Zondervan, Osman,
Steggles, Putney, Sunderland,
D’Avrey, McCall og Gates.
Danny Wallace — þrenna gegn
Coventry.
inum, eitt í hvorum hálfleik. Það var
Andy Gray sem náði forystunni fyrir
Everton gegn Norwich City á Carrow
Road í fyrri hálfleik en John Deehan
jafnaði fyrir heimamenn í þeim síðari,
í leik sem litlu máli skipti fyrir liöin,
þau sigla bæði lygnan sjó um miðja
deild.
Sheff. Wed. og Chelsea í 1.
deild að nýju
Chelsea tryggði sæti sitt í fyrstu
deild aö nýju meö glæsilegum stór-
sigri gegn Leeds United (5—0) þegar
liðin mættust á Stamford Bridge í
Lundúnum. Það var Mickey Thomas
sem skoraði fyrsta markið og Kerry
Dixon skoraði næstu þrjú og síðasta
markið skoraði Paul Canoville. Shef-
field Wednesday sigraði Crystal
Palace (1—0) á heimavelli og skoraði
Mel Sterland sigurmarkið úr víta-
spymu.
STAÐAN
Liverpool
Man. Utd.
QPR
Southampton
Nottm. For.
Arsenal
West Ham
Tottenham
A. VUIa
Watford
Everton
Luton
Norwich
Leicester
Sundcrland
WBA
Coventry
Birmingham
Ipswich
Stoke
Notts Co.
Wolves
Sheff. Wéd.
Chelsea
Newcastle
Grimsby
Man. City
Blackburn
Carlisle
Charlton
Brighton
Shrcwsbury
Huddersfield
Leeds
Barnsley
Cardiff
Portsmouth
Fulham
Middlesbro
C. Palace
Oldham
Derby
Swansea
Cambridge
1. deUd
38 21 11
38 20 12
39 21 6
37 19 9
38 19 8
39 17 8
38 17 8
39 16 9
39 16 9
39 15 8
38 13 13
39 14 8
38 12 13
39 12 12
39 12 12
38 13 8
39 12 10
39 12 9
39 12 8
39 11 10
37 9 9
38 5 10
2. deUd
38 24 9
39 22 13
39 22 7
39 18 13
39 19 9
38 16 15
39 16 15
39 16 9
39 16 8
39 15 10
38 14 12
39 14 11
39 14 7
39 15 4
39 13 6
38 11 12
39 11 12
39 11 10
39 11 8
39 10 9
39 7 7
39 3 12
6 67—31 74
6 68—35 72
12 62—33 69
9 55—36 66
11 66-41 65
14 67—54 59
13 56—48 59
14 61-59 57
14 57—57 57
16 65-71 53
12 37—40 52
17 51—60 50
13 45-43 49
15 63-64 48
15 40-52 48
17 43—56 47
17 53—69 46
18 38—49 45
19 50—55 44
18 38—62 43
19 45—66 36
23 26—72 25
5 68-32 81
4 84—39 79
10 76—50 73
8 56-42 67
11 61—46 66
7 52—41 63
8 45-34 63
14 50—58 57
15 63—55 56
14 44—51 55
12 53-45 54
14 49—54 53
18 54—48 49
20 50-61 49
20 67-61 45
15 51—50 45
16 40—44 45
18 38—48 43
20 44—69 41
20 34—65 39
25 34—76 28
24 27-71 21