Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1984, Blaðsíða 11
I, my P 1 T/fTTv nnifninqtOITf T \m
DV. LAUGARDAGUR 9. JUNl 1984.
Listahátíð um helgina
Samsett strengja-
sveit í Bústaðakirkju
Strengjasveit undir stjóm Mark
Reedman heldur tónleika í Bústaða-
kirkju mánudaginn annan í hvíta-
sunnu kl. 20.30. Á efnisskránni verða
Brandenborgarkonsert nr. 3 eftir
J.S. Bach, Kammersinfónía eftir
Shostakovich og Metamorphosen eftir
Strauss.
Nýja strengjasveitin var stofnuð í
Reykjavík 1980 af ungum atvinnuhljóð-
færaleikurum. Sveitin hefur engan
fastan stjórnanda en hefur fengið til
liðs við sig ýmsa stjómendur, t.d. tékk-
neska fiðluleikarann og stjórnandann
Josef Vlach.
Stjórnandi Nýju strengjasveitarinn-
ar að þessu sinni er Mark Reedman,
stofnandi og stjórnandi Strengjasveit-
ar Tónlistarskólans í Reykjavík. Hann
hlaut tónlistarmenntun bæði í Banda-
ríkjunum og Bretlandi og hefur starfað
við ýmsar meiri háttar hljómsveitir í
báðum iöndunum. Strengjasveit'Tón-
listarskólans er hvað áþreifanlegastur
árangur af starfi Reedmans hér á
landi og hefur sveitin haldiö fjölda tón-
Hvaðan
komum við?
í dag kl. 15.00 flytur Borgar
Garðarsson leikari einleik eftir Árna
Björnsson þjóðháttafræðing og heitir
leikurinn „Hvaðan komum við?” Fer
flutningurinn fram í Árbæ og er eink-
um ætlaður unglingum.
Efnið í leiknum er svipmyndir úr
daglegu sveitalífi fyrir 1—2 öldum. I
upphafi er sagt frá ljósfærum í þá tíð,
en síðan spinnst frásögnin áfram af
sjálfu sér, því að eitt er nauðsynlegt til
útskýringar ööm. Þannig þarf aö segja
lauslega frá húsakynnum, öflun eldi-
viðar, matseld, hirðingu kvikfjár, af-
urðum og nýtingu, ullarþvotti, tóvinnu,
hreinlæti, kvöldvökum, húslestrum,
svefnháttum og þar fram eftir götun-
um, þar til hringurinn iokast. Frásögn-
in er krydduð með stuttum sögum, vís-
um og þulum.
Textinn er ekki rígskorðaður frá orði
til orðs, heldur hefur leikarinn visst
frelsi til að lýsa efnisatriðum með því
orðalagi sem honum f er best í munni.
Borgar Garðarsson.
„Hvaðan komum við?” verður flutt
tvívegis í dag, kl. 15.00 og 17.00, og tví-
vegis á sunnudag á sama tíma.
Mark Reedman.
leika hér og erlendis og hvívetna vakið
mikla hrifningu.
I strengjasveitinni sem framkemur
á tónleikunum í Bústaðarkirkju eru
meölimir strengjasveitar Tónlistar-
skólans og Nýju strengjasveitarinnar.
Nuance er nýtt efni, sem fegrar
þinn eðlilega háralit.
Mildur freyðitónn sem virkar eins óg
hárnæring eftir hárþvott.
Það er svo auðvelt að fríska háralit-
inn upp og gefa honum djúpan lýs-
andi glans með Nuance.
Hánð fær fyllingu og silkiáferð.
Veldu nýtt Nuance þegar þú vilt og
snúðu tilþíns eigin háralitar.
Nuance býður 12 nýja tóna og gljáa
fri L'ORÉAlí
Ihsjónvarp
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT:
Akurvík h.f. Jón Fr. Einarsson Póllinn hf.
Glerárgötu 20, 600 Akureyri 415 Bolungavík 400 ísafjörður
Bókav. Þórarins Stefánssonar Húsið Valberg
650 Húsavik 340 Stykkishólmur 625 Ólafsfjörður
Brimnes Rafsjá Þórður Hjálmsson
900 Vestmannaeyjar 550 Sauðárkrókur 300 Akranes
Fell Hljómval Rafbúð Jónasar Þórs
700 Egilsstaðir 230 Keflavík 450 Patreksfjörður
Gestur Fanndal Mosfell
580 Siglufjörður 850 Hella
MEÐ ALVÖRU HLJÓMGÆÐUM
Sérstökum VIDEO inngangi og
sjálfvirkum stöðvaleitara
@ 20" in liner myndlampa ® Synthezer tuner
@32 stöðva minni @2 Way innbyggðum hátölurum
@2x6.5 vatta stereomagnara @ balansstilli
@ aðskilinn bassa- og diskant tónveljari
@tengi fyrir hljómtæki og heyrnartæki
VERÐ KR.
23 ■929 stgr.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suöurlandsbraut 16 Sími 91 35200