Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1984, Blaðsíða 10
10
DV. LAUGARDAGUR 9. JUNI1984.
Listahátíð um helgina
Listahátíð um helgina
Listahátíð um helgina
Ashkenazy-
feðgar í
Laugardalshöll
FílharmóníuWjómsveitin frá Ashkenazy, heldur tónleika í kvöld og'
Lundúnum, undir stjóm Vladimir annaö kvöld í Laugardalshöll og hefj-
Vladimir Ashkenazy, á innfelldu myndinni er sonurinn, Vovka.
astbáðirtónleikamirkl. 20.30.
Á efnisskrá tónleikanna í kvöld er
Gæsamömmusvítan eftir Ravel, píanó-
konsert Mozarts, K456 og fimmta
sinfónía Sibeliusar. Leikur Ashkenazy
sjálfur einleik í Mozart píanókon-
sertinum.
Á síðari tónleikunum verða á efnis-
skránni svítan Við aö heyra fyrsta
gauk vorsins, eftir Delius, píanókon-
sert nr. 1. eftir Tchaikowski og fjóröa
sinfónían eftir Tchaikowski. Einleikari
á píanó verður Vovka Ashkenazy,
sonur stjórnandans.
Fílharmóníuhljómsveitin lék fyrst
opinberlega í London, í október 1945,
undir stjóm sir Thomas Beecham.
Hljómsveitin vann sér fljótt mikla
virðingu meðal tónlistamnnenda og
komst í tölu bestu hljómsveita heims
og laðaði að sér fjölda frægra stjóm-
enda. Hljómsveitin hefur spilað inn á
fleiri hljómplötur en flestar aðrar
hljómsveitir og ferðast einnig meira en
títt er um sinfóníuhljómsveitir.
Vladimir Ashkenazy þarf vart að
kynna fyrir Islendingum svo tengdur
sem hann er Islandi. Hann hefur verið
talinn meðal bestu píanóleikara heims,
allt frá 1962 er hann vann fyrstu verð-
laun á annarri Tchaikowski sam-
keppninni í Moskvu. Ashkenazy er einn
mest eftirsótti píanisti í heimi um þess-,
ar mundir, en hefur jafnframt píanó-
leiknum snúið sér æ meir að hljóm-
sveitarstjórn á síðari árum með
góðum árangri.
Vovka Ashkenazy fæddist í Moskvu
1961 og er elsti sonur Þórunnar og
Vladimir Ashkenazy. Hann hóf píanó-
nám ungur að aldri og lauk burtfarar-
prófi frá Royal Northem College of
Music í júní 1983. Á undanfömum 4
árum hefur hann náö glæsilegum
árangri sem einleikari og komið víða
fram.
Í Blómaborg er ávallt á boðstólum mjög gott úrval af pottaplöntum, afskornum blómum og einnig grænmeti í úr-
vali á besta fáaniega verði. Gjafavörur í miklu úrvali, vorum að taka upp yfir 30 gerðir af vestur-þýskum kristals-
vörum (Bæheimskristall). Mjög gott úrval af leikföngum.
ís, gosdrykkir, hamborgarar, samlokur og pylsur. Opið alla daga vikunnar.
OPIÐ ALLA HVÍTASUNNUHELGINA
Netanela.
NETANELAI
NORRÆNA HÚSINU
Þjóðlagasöngkonan Netanela, sem
búsett er í Svíþjóð, en ættuð frá Uzbek-
istan í Austurlöndum f jær, heldur tón-
leika í Norræna húsinu á sunnudag kl.
15.00 og þriðjudag kl. 20.30. Á efnis-
skránni eru þjóðvísur og ballöður víða
að úr heiminum og syngur Netanela á
ensku, sænsku, frönsku, portúgölsku,
einnig syngur hún þjóðvísur frá Af-
ríku, Tíbet, Nepal og fleiri löndum.
Einnig flytur hún jass og blúslög. Hún
kynnir sjálf efnisskrána á sænsku.
Netanela hefur komiö fram í ótal
löndum og hefur tekiö þátt í tónlistar-
hátíðum og sungið í sjónvarp og út-
varp. Meðal annars hefur hún ferðast
um með píanóleikaranum og söngvar-
anum Memphis Slim. Hún hefur
gjarna notaö tækifærið á ferðum sínum
og safnað framandi hljóðfærum og
kynnt sér tónlist landsins sem hún
ferðast um og endumýjað þannig laga-
valið.
Dans-skúlptúr.
Úr sýningu
Mellem-rum
I Kramarhúsinu við Bergstaðastræti
verðursýndurdans-skúlptúr kl. 20.30 í
kvöld. Það er Mellem-rum flokkurinn
semsýnir.
A sýningunni verða þrír dansar.
Tveir þeirra eru til orðnir við sam-
vinnu dansarans og dansahöfundailns
Jytte Kjöbeck og myndhöggvarans
Willy Orskow og eru þeir fluttir við
nýja tónlist eftir Karóh'nu Eiríksdóttur
og Hans Abrahamsen. Þriðji dansinn
er eftir Ralph Grant, en hann valdi
sjálfur tónlist og sviðssetningu. Einnig
dansarDaninn Henrik Boy Christesen.