Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1984, Qupperneq 20
20
DV. MÁNUDAGUR 25. JUNI1984.
Nú er ástæða til að endurnýja
baðblöndunartækið og fá
hitastillf"7JU^^í staðinn
= HEÐINN =
______SELJAVEGl 2, SÍMI 24260
Þeir Halldór Ulfarsson og Hjörleifur Hilmarsson á fleygiferð á siðustu sérleiðinni i Dalarallinu. A þessari
sérleið, sem er Berserkjahraun i nágrenni Stykkishólms, tókst þeim að tryggja sér sigur eftir tvísýna
keppni. Mynd ÓG
DALARALL1984
SíÖumúla33
simar 81722 og 38125
- HALLDÓR ÚLFARSSON 0G HJÖRLEIFUR
HILMARSSON Á T0Y0TA C0R0LLA SIGRUÐU
Fyrsta rallkeppnin sem haldin er á
Snæfellsnesi var haldin dagana 15. og
16. júní síðastliðinn. Það var Dalarall
1984 sem Bifreiöaíþróttaklúbbur
Reykjavíkur og Bifreiðaíþróttaklúbb-
ur Olafsvíkur stóöu að í sameiningu.
Keppnin, sem hófst við Dalabúð í Búð-
ardal, átti upphaflega að vera 890 km
löng en þar sem Kaldidalur var ófær
styttist keppnisleiöin um 150 km. Var
því keppt á 23 sérleiðum sem alls voru
um200kmaðlengd.
Keppnin hófst síðdegis föstudaginn
15. júní og var í fyrri áfanga ekið um
Dali og yfir í Borgarf jörð þar sem ekn-
ar voru sérleiðir um Svartagil, Hest-
háis, Bæ og Bröttubrekku, sem nú var
ekin sem sérleiö í fyrsta sinn. Eftir
tveggja tíma hvíld í Búðardal var síð-
an ekiö út á Snæfelisnes þar sem leiöir
um Berserkjahraun, Kerlingarskarð
og Utnesveg voru eknar ásamt tveimur
styttri leiðum og voru þær allar eknar
tvisvar. Keppninni lauk við Dalabúð
umkl. 15 laugardaginn 16. júni.
15 bílar hófu keppnina og 8 komust í
mark. Aðallega voru það smærri bilan-
ir sem ollu því að keppendur heltust úr
lestinni en einn fór á kaf í á og fékk
vatn inn á vélina. Það voru þeir Oskar
F. Jónsson og Þorvaldur Jensson sem
óku Renault bíl þeim sem þeú- bræður
Omar og Jón Ragnarssynir óku áður.
Oskar, sem er nýbyrjaður í rallakstri,
hefur sýnt mikla leikni í akstri á
Renaultinum og var því miður að hann
fékk ekki tækifæri í Dalarallinu að
sýna betur hvað í honum býr.
Mikil barátta stóö um fyrstu þrjú
sætin í keppninni sem sést best á því að
einungis rúm mínúta skildi að fýrsta
og þriðja bíl og réðust úrsiitin ekki fyrr
en á síðustu sérleiðinni. Lengst af höfðu
Halldór Ulfarsson og Hjörleifur Hilm-
arsson forystuna en undir lokin voru
þeir bræður Omar og Jón fyrstir, en á
síðustu sérleiðinni ók Omar full utar-
lega í kantinn og sprengdi afturdekk á
Toyota bíl þeirra bræðra. Við það náðu
Halldór og Hjörleifur aftur forystunni.
Þeir Birgir Þór Bragason og Eiríkur
Friðriksson á Ford Escort voru álitnir
sigurstranglegastir í upphafi keppn-
rnnar en þeir urðu fyrir því óláni að
festa bílinn í á í upphafi keppninnar og
þeim tókst ekki að vinna sig ofar en í
þriðja sætið aö þessu sinni.
Urslit í Dalaralli 1984 urðu því sem
hérsegir:
1. Halldór Ulfarsson og Hjörleifur
Hilmarsson, Toyota Corolla, 16:11
mínútur í ref sistig.
2. Omar Ragnarsson og Jón Ragnars-
son, Toyota Corolla, 16:33 mínútur í
refsistig.
3. Birgir Þór Bragason og Eiríkur
Friðriksson, Ford Escort, 17:46 mínút-
urírefsistig.
4. Guðni Amarson og Haildór Sigdórs-
son,Saab99,19:05mínúturírefsistig.
5. Auöunn Þorsteinsson ogSteingrímur
Ingason, Ford Escort, 28:25 mínútur í
refsistig.
Kristján Halldórsson og Gunnlaug-
ur Björnsson urðu fyrir þvi óhappi
að velta BMW bíl sinum yst á Snæ-
fellsnesi.
6. Auðunn B. Olafsson og Haukur Sig-
urðarson, Opel Manta, 33:05 mínútur í
refsistig.
7. Kritján Halldórsson og Gunnlaugur
Bjömsson, BMW, 50:32 mínútur í
refsistig.
8. öm Ingólfsson (Dali) og Halldór
Arnarsson, Trabant, 50:52 mínútur í
refsistig.
I sveitakeppninni sigraði sveit Bíla-
ryðvarnar en allir þrir fyrstu bílarnir
voru í þeirri sveit. Þeir Auöunn B.
Olafsson og Haukur Sigurðarson hlutu
jafnframt viðurkenningu sem kepp-
endur sjálfir veita fyrir góðan íþrótta-
anda og Stokkfiskur hf. gefur til minn-
ingar um Hafstein Hauksson rallöku-
mann sem fórst í keppni erlendis á
þessu ári. Ólafur Guðmundsson.
K0NUR Á ÖLLUM ALDRI
ATHUGIÐ
Vinnum allt í sambandi viö hár meó vörum sem eru
viðurkenndar um allan heim.