Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1984, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1984, Qupperneq 1
Gísli á Uppsölum kominn með f rystikistu: „Betra en skemmt, úldiö og mengað” Gísli á Uppsölum er búinn að fá sér frystikistu. Við brugðum okkur í heimsókn til hans fyrir skömmu og hann sýndi okkur ánœgður matarforðann í kistunni. Gísli, sem hefur flesta sína daga nœrst á vel geymdum mat, sagði að það vœri gott að eiga kost á nýmetinu. „Það er betra en skemmt, úldið og mengað, ” segir hann. Við birtum myndir af Gísla og viðtal við hann í blaðinu í dag. -ÞJH/DV-mynd GVA. — sjá nánar á bls. 36-37 Dómur yfir Baly fálkaeggjaþjófi í dag: Búast má við þung- um dómi — hinn frægi fuglaþjóf ur Ciecelsky neitaði að mæta fyrir rétti í gær Líklegt er talið, að dómur verði kveðinn upp yfir Mirœlav Peter Baly, fálkaeggjaþjófinum, i réttinum í Daun Eifel í dag. Heimildir DV herma að hann hljóti þungan dóm, ekki síst fyrir það að „fálkaklíkan” í Þýskalandi hefur snúið baki við honum og reynir því allt til aö sverta hann. Er ástæðan talin sú umfjöQun sem flótti Miroslav frá Islandi oÚi í f jölmiðlum. Réttarhöldunum frá í síöustu viku var framhaldið í gær og standa enn yfir. Ciecelsky, þeim fræga fálkaþjófi, var gert að mæta fyrir réttinum í gær, en mætti ekki. Neitaði hann að koma og mun verða sektaður fyrir það, en samkvæmt þýskum lögum er ekki hægt að sækja vitni með lögregluvaldi. Enn neitar Miroslav staðfastlega að segja fyrir hvern hann vinnur. Allar líkur benda þó til þess að það sé Ciecelsky sjálfur. -kþ. Walter Mondale og eiginkona hans, Joan, fagna sigri í for- kosningum Demókrataflokksins í Bandaríkjunum klukkan 5.30 í nótt. Mondale sigraði með yfirburðum og hlaut 2191 atkvœði á flokksþinginu í San Francisco. DV-símamynd: Þórir Guðmundsson, San Francisco

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.