Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1984, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1984, Qupperneq 11
 11 Isafjörður: Bæjarstjóm styður ekki byggingu tónlistarhúss ,,Satt að segja þá sámar mér þessi afstaða bæjarstjórnar aö styöja ekki byggingu nýs tónlistar- skólahúss hér á Isafiröi,” sagöi Ámi Sigurðsson bæjarfulltrúi, en hann var einn flutningsmanna tillögu þess efnis. Bæjarráð lýsti því yfir á fundi í mai sl. aö bæjarfélagiö gæti ekki lagt fram fjármagn til byggingar tón- listarskólahúss „á næstu árum”. Á fundi bæjarstjómar hinn 28. júní sl. lagði Ámi ásamt öörum fram tillögu um að bæjarstjórnin myndi „styöja byggingu tónlistarskólahúss eftir nánari ákvörðunum síðar”, en þeirri tillögu var vísað til geröar fjárhags- áætlunar næsta árs. Eftir stendur því aö dómi Áma yfirlýsing bæjar- ráös. „Mér finnst aumkunarvert aö horfa á menn greiða atkvæði gegn þessari tillögu okkar og gegn sam- visku sinni í þeim tilgangi aö halda meirihlutanum í bæjarstjórninni,” sagöi Ámi. „Ég vil ekki vera svart- sýnn á aö byggingin rísi en þessar undirtektir auka ekki á bjartsýni fólks.” Um 170 nemendur stunda nú nám viö Tónlistarskóla Isafjarðar og hefur starfsemi skólans um 35 ára skeiö notiö virðingar landsmanna. Skólinn hefur hins vegar alla tíö búið við þröngan kost. Nú fer tónlistar- kennsla fram á 35 stöðum á Isafiröi, á heimilum kennara eöa í leiguhús- næöi. Búiö er að veita lóð til byggingar tónlistarskólahúss og geröar hafa verið teikningar af væntanlegu húsi. Áhugafólk um byggingarmál skólans hefur staðið fyrir öflugri fjáröflunar- starfsemi í vetur og tekist að safna um 2 milljónum króna sem er um 10% af áætluðum byggingarkostnaði. Greinilegt er því að tónlistarskólinn nýtur velvilja meöal bæjarbúa. Högni Þóröarson, formaöur Tón- listarfélags Isafjaröar, sagöi að sér heföi komiö afgreiösla bæjarstjómar á óvart. „Tónlistarskóli Isafjarðar hefur SLÆM BÍLVELTA ÁDRAGANUM Hann fór heldur illa sendibíllinn, sem ætlaöi upp í Húsafell um síðustu helgi. A Dragaveginum í Svinadal lenti hann út af með þeim afleiöingum sem sjást á myndinni. Geröist þetta við litlu brúna hjá Þómstöðum, en þar er mjög slæm beygja á veginum undir brekku. Rakst bíllinn á brúna og missti öku- maðurinn vald á honum. Meiðsli urðu ekki teljandi, en ökumaðurinn var einn íbílnum. Aö sögn Þórðar Sigurðssonar hjá lögreglunni í Borgarnesi uröu fjórir árekstrar þar í héraöi á sunnudaginn og flugvél nauðlenti uppi í Húsafelli. Sagöi hann umferðina um Borgarfjörð alveg gífurlega, enda heföi það komið fram í könnun fyrir nokkrum árum að um helmingur þjóðarinnar gisti þar í sumarbústöðum á hverju sumri. Hvatti hann ökumenn að sýna fyllstu aögæslu, sérstaklega með tilliti til þess að stutt er nú í mestu ferðahelgi ársins, verslunarmannahelgina. -G.T.K. DV-mynd GTK. Aukin útlán viðskiptabankanna: Hvernig á að bregðast við? Á ríkisstjórnarfundi, sem haldinn var á fimmtudag í fyrri viku, var ákveðiö að fela þremur aðilum, Seðla- bankanum og Þjóðhagsstofnun, í samráði við forsætisráðuneytið, að leggja fram tillögur um viðbrögð við auknum heildarútlánum viðskipta- bankanna á þessu ári. Fulltrúar aöil- anna þriggja eru Jón Sigurðsson, for- stjóri Þjóðhagsstofnunar, Jóhannes Nordal seölabankastjóri og Þórður Friðjónsson, efnahagsráðunautur ríkisstjórarinnar. Aukning á heildarútlánum viðskipta- bankanna hefur orðið mun meiri en á heildarinnlánum. Sex fyrstu mánuöi þessa árs jukust útlán um 18,0% en innlánuml4,7%. Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóðhags- stofnunar, sagði í samtali viö DV að hinir fyrmefndu hefðu hist og ræðst við og átt fundi meö ráðherrunum, en hér væri ekki um að ræða formlega nefnd. -pá. enga fasta tekjustofna þannig að við erum algjörlega háð því að ríkiö, bæjarfélagiö eða einstaklingar leggi okkur liö. Það eru engir möguleikar á byggingu Tónlistarskólahúss ef þessi'r aðilar leggja ekki fram fjár- magn,” sagði Högni. „Ég er hrein- lega undrandi á þessu því aö full- trúar allra flokka, sem sitja í bæjar- stjóm, hafa lýst yfir fullum stuðningi við byggingarmál Tónlistarskóla Isafjarðar annaðhvort á framboðs- fundum eða í blöðum. — Það hefur verið rætt um þaö að við fengjum inni í Húsmæöraskólanum hér eða í Menntaskólanum en við teljum af og frá að við getum eitthvað farið að ráðskast með húsnæði sem þegar er í nýtingu. Ég veit satt að segja ekki hvað verður úr framkvæmdum nú, en eins og er eru húsnæðismál skólans algjörlega óviöunandi,” sagði Högni Þórðarson að lokum. -ÞJH t ^nivrFFT.n JL ikJyC iIlLv JLJl JliJLJIJL^ 13 np mv hafa allir vinningsbilar i FORMULA 1 heimsmeistarakeppni kapp- akstursbila verið á KONI höggdeyfum! Eru til betri meðmæli? Kappakstur, rallýakstur og akstur almennt við hverskonar erfið skilyrði krefst ýtrasta samspil ökumanns og ökutækis. Góðir höggdeyfar skifta þar verulegu máli og geta skift sköpum um árangur. Síðastliðin 13 árhefur KONI sýnt og sannað ótviræða yfirburði á sínu sviði. Þú nýtur góðs af því enda eru KONI höggdeyfar sem framleiddir eru í bilinn þinn af sama gasða- flokki og tæknilega eins uppbyggðir og KONI höggdeyfar í FORMÚLA 1 kappakst- ursbílum. Hannaðir með öryggi i huga. Ábyrgð — viðgerðarþjónusta. FYRIR HEIMSMEISTARANN OG FYRIR ÞIG SiÖumúla29 Simi84450 IKONIKONIKONI 1959 'É ÁRA ÍM984 Veisla fyrir viðskiptavinina í tilefni af 25 ára afmæli verslunarinnar bjóðum við 25% AFSLÁTT AF 25 VÖRUTEGUNDUM í 25 DAGA KJÖRBÚCIN VERIÐ ÁVALLT VELKOMIN. oCougcVuíó m0á irhrnn 9 _ Cír«í ZCCTO X. Q9C7n Norðurbrún 2 - Sími 35570 & 82570 Söluturninn Norðurbrún 2 - Simi 82571,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.