Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1984, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1984, Side 15
DV. FIMMTUDAGUR19. JULÍ1984. 15 Menning Menning Menning Listahátíð á tíunda árí Tónlist Sumartónleikar (Skálholti 15. júlf. Flytjondur: Camilla Söderborg, Ólöf Sosseljo Óakarsdóttir og Snorri öm Snorrason. Efnisskrá: J.V. Eyck: Preludium ofte voorspel, Amorilii mia bella; G.B. Riccio: tvœr canzonur; J. Dowland: Pipers Pavane, Fantasy; F. Moncini: Sónoto nr. IV ( a-moll; P. Philidor: Cinquióme Suitte ( g-moll; R. Bollord: Volta, Bollot; A. Corelli: Sónoto nr. IV op. V í F-dúr. Sumartónleikar í Skálholti hófust um helgina í þrettándu viku sumars eina feröina enn. Barok og renaissancemúsík hefur jafnan verið gert hátt undir höfði á þessari vönduðu sumartónlistarhátíð en sjaldan sem nú. Fyrstu tónleikar sumarsins voru í höndum meðlima Musica Antiqua sem eru í þann veg- inn aö halda til Svíþjóðar og Austurríkis í tónleikaferð. Ekki þarf að kynna sérstaklega Musica Antiqua, þann merka félags- skap. Þeim er fyrir aö þakka að hér úti á Islandi virðumst við ætla að sleppa við þann hvimleiða lið vakningarinnar um notkun uppruna- hljóðfæra, fúskið. Um allar jarðir hafa sprottið upp við hlið alvarlega þenkjandi kunnáttumanna hinir og þessir loddarar með misvönduð heimagerö hljóðfæri, hafandi það sem afsökun fyrir þvi að spila falskt og illa að þeir séu trúbadorar með upprunhljóðfæri í höndum. En vegna þess að hér hafa hæfir kunnáttumenn ráðið mestu um þróun mála þá eru skrefin sem hér hafa verið stigin (þó stutt og fá séu) engin feilspor. Fleira merkilegt en Gullfoss og Geysir Musica Antiqua er aö sönnu ekki fjölmennur félagsskapur en fjöl- breytni í verkefnavali er mikil. Megineinkenni á leik þeirra eru létt- leiki, öryggi, stílvissa og vel samfléttaöur flúrleikur. Fyrst tekur hlustandinn eftir snilldarleik Camillu Söderberg á blokkflautur, blæbrigðarikum tóni hennar og færni. En þótt blokkflautan sé óneitanlega í leiöandi hlutverki er hlutur hinna ekki síður frambærilegur. Snorri öm tók hin þekktu stykki Dowlands skemmtilegum tökum. Þau fá á sig annan og enn þekkilegri blæ leikin á Eyjólfur Melsted lútu en í gítarútsetningum, þótt vel hljómi sem slík. Olöf Sesselja sækir sig sífellt sem gömbuleikari og að ósekju mætti gamban vera meira í forgrunni í starfi félagsskaparins en verið héfur hingað til. Sumartónleikar í Skálholti eru tónlistarhátíö á tiunda ári. Hátiö sem athygli hefur vakið að veröleikum. 1 ár er heldur minni Bach en áður eða kannski dreifist hann bara jafnar á hátíöina alla. Sérsamið íslenskt verk er ekki flutt og þykir mér miður ef sá góði siöur leggst niður. Einnig þykir mér það furöu sæta að enginn skuli sjá sér hag í aö standa fyrir ferðum á hátíöina því aðilar í ferðaiðnaði, sem styrkja fyrirtækið, hafa á sínum vegum fjölda ferðamanna sem eiga þess ekki kost aö komast í jafngóð kynni við íslenska hámenningu og íslenska náttúru. En væntanlega verða menn svo framsýnir að sjá fyrir slikum hlutum þegar tíu ára júbil verður á næstu vertíð. því þessi einstaka tónlistarhátíð er ekki síður merkileg en Gullfoss, Geysir og allthitt. -EM. BILEIGANDI GOÐUR Tilboð sem þú getur ekki hafnað Bíltæki hinna kröf uhörðu er Verð frá Kr. 4.680,- ___öll tækin með LW — MW — FM stereo MAC AUDIO hátalarar í hæsta gæðaflokki. - 40 gerðir. Verð frá kr. 1.280,- settið Isetning á staðnum. SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN Síðumúla 2 — sími 39090. GLÆSILEGT ÚRVAL HUSGAGNA \ TVEIMUR HÆÐUM RAFTÆKI - RAFLJOS k og rafbúnaður. Raftækjadeild II. hæð á markaðsverði 9 OPIÐ í KVÖLDTILKL. 7 ^ í ÖLLUM DEILDUM annað kvöld til kl. 22.00, lokað laugardaga í! Glœsilegt úrval leðursófasetta í leðurdeild, 3ju hœð. HITAVEITA SUÐURNESJA vill ráða til starfa TVO VÉLVIRKJA í varmaorkuverið í Svartsengi. Laun samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Suöur- nesjabyggöa. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist til Hitaveitu Suðurnesja Brekkustíg 36, Njarðvík, eigi síðar en 25. júlí nk. JL-PORTIÐ NÆG BÍLASTÆÐI Munið okkar hagstæðu greiðsluskilmála JL-GRILLIÐ Grillréttir allan daginn Jll /A A ▲ A A A Jón Loftsson hf. HnTTi'r ^ zi nuo - .JUiJUOJÍjf., EunaCARP Hringbraut 121 Simi 10600 SUMAR- &HAUST HSKAN i k-...„***!&? cno » u a(S telnau' Spod ICI Glæsibæ sími 82922 Rvík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.