Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1984, Qupperneq 34
34
DV. FIMMTUDAGUR19. JULl 1984.
Fulltrúi
Kaupfélag Hvammsfjarðar, Búðardal, óskar eftir að ráða full-
trúa kaupfélagsstjóra.
Starfssvið:
Staðgengill kaupfélagsstjóra, skrifstofustjóm, yfirumsjón
bókhalds, umboðsmaður Samvinnutrygginga, umsjón inn-
lánsdeildar.
Leitað er að manni með haldgóða viöskiptamenntun, æskilegt
er aö viökomandi geti hafið störf sem fyrst.
Allar nánari upplýsingar veitir kaupfélagsstjóri í síma 93-
4180.
KAUPFÉLAG HVAMMSFJARÐAR,
Búðardal.
Launagjaldkeri
Kaupfélag Hvammsfjarðar, Búöardal, óskar eftir að ráða
launagjaldkera. Starf launagjaldkera er að sjá um allan
launaútreikning í tölvu fyrirtækisins og frágang launa í bók-
haldi.
Leitað er að aðila með haldgóða viðskiptamenntun, æskilegt
er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Allar nánari upplýsingar veitir kaupfélagsstjóri í síma 93-
4180.
KAUPFÉLAG HVAMMSFJARÐAR,
Búðardal.
Skrifstofustarf
Kaupfélag Hvammsfjarðar, Búðardal, óskar eftir að ráða
starfskraft til almennra skrifstofustarfa. Starfið er einkum
fólgið í símavörslu, merkingu fylgiskjala fyrir tölvubókhald
og skjalavörslu.
Leitað er aðila með haldgóða viðskiptamenntun, æskilegt er
að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Allar nánari upplýsingar veitir kaupfélagsstjóri í síma 93-
4180.
KAUPFÉLAG HVAMMSFJARÐAR,
Búðardal.
PANTANIR
SÍMI13010
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
KLAPPARSTÍG 29.
Ástfís við gosbrunninn.
DV-mynd GVA.
Fallegur garður á Suðureyri:
NOTAR FJÁRHÚS-
VATNIÐ í GOSBRUNN
„ Já, það vex nógur arfi hér á Suður-
eyri sem annars staðar,” sagði Ásdís
Friðbertsdóttir, þar sem hún kraup við
einn blómareitinn í garðinum sínum og
reytti illgresið. Og garðurinn ber
sannarlega merki ræktarsemi hús-
freyjunnar þvi þarna vaxa grósku-
miklar skrautjurtir og trjárunnar. 1
garðinum miðjum er lítill gosbrunnur
sem við fengum strax augastað á.
„Þú ættir kannski ekkert að vera að
segja frá gosbrunninum því að hann
fékk ég fyrir löngu eftir krókaleiðum
frá Noregi. Þegar ég var i þeim
hugrenningum að setja hér gosbrunn í
garöinn þá fengust ekki slíkir hér á
landi,”sagðiÁsdís.
Hún sagði að áður fyrr hefði verið
hlaða og fjárhús í garðinum, en nú hef
ég breytt því. Það hafði veriö lagt vatn
hérna til þess að þrífa fjárhúsin en nú
nota ég vatnið í gosbrunninn. Það er
ekkiverra.”
— Það vantar sjálfsagt ekki vætuna
á gróðurinn hér á landi?
„Nei, það gerir það ekki. Hér hefur
verið mun betra veður en í fynra en
þrátt fyrir mikið sólskin þá tekst
bóndarósinni minni ekki að blómstra.
Það gerði hún hins vegar í fyrra í meiri
úrkomu.”
Ásdís féllst á aö það færi mikil vinna
í að viðhalda garðinum. Hún væri samt
ekki sú eina sem legði slíka vinnu á sig.
Það væru víða fallegir garðar á Suður-
eyri. Við sögðum að ef þeir væru allir
jafngróskumiklir og hennar hlytu
blómálfar að vera á kreiki í bænum.
„Það gætu svo sem vel verið blóm-
álfar hér. Það er sjálfsagt meira í
kringum okkur en við berum skyn-
bragð á,” sagði Asdís Friöbertsdóttir,
Suöureyri við Súgandaf jörð.
-ÞJH.
Fótboltastrákar undir 16 ára:
Norðurlandameistara
mót á Norðurlandi
Njótum lands-níðum ei:
ÍSAL leggur
fram 200
þúsund krónur
Norðurlandameistaramót drengja
í knattspymu verður haldið á
Norðurlandi dagana 22.-29. júlí
næstkomandi. Þetta eru drengir
fæddir eftir 1. ágúst 1968, það er að
segja undir 16 ára aldri. Þeir verða
um 150 talsins.
Leikið verður á þremur stöðum,
Akureyri, Húsavík og Sauðárkróki.
Mótið verður sett á íþróttavellinum á
Akureyri kl. 16.30 mánudaginn 23.
júlí og fyrsti leikurinn verður milli
Islands og Svíþjóðar. Sex landslið
taka þátt og eru Færeyingar nú með í
fyrsta skipti.
Mót sem þetta fer fram annað
hvert ár og var síðast 1982 í Finn-
landi þar sem Danmörk vann
meistaratitilinn. Islendingar hafa
aldrei náð að sigra.
Knattspymusamband Islands
stendur fyrir Norðurlandameistara-
mótinu og hefur fengið til þess á
þriðja hundrað þúsund króna styrk
úr norrænum sjóðum. Heildarkostn-
aður verður liðlega ein milljón
króna.
-JBH/Akureyri.
Framkvæmdastjórn ISAL hefur
ákveðið að verja allt að 200 þúsund
krónum til að fegra verksmiðjuna við
veginn en þetta mun vera gert í tengsl-
um við „Átak 84” sem Ferðamálaráð
hefur beitt sér fyrir til að hvetja til
bættrar umgengni við landiö og auk-
inna ferðalaga innanlands.
Fyrir féð er ætlunin að sá beggja
vegna girðingar og snyrta í kringum
byggingu austur af álverinu. Þá er ráð-
g«;rt að ganga frá bflastæði við „Kapell-
una” og ennfremur ráðgerir verk-
smiðjan að mála daggeyma næsta
sumar. -FRI.