Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1984, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1984, Síða 2
2 DV. FÖSTUDAGUR 26. OKTOBER1984. Skoðanakönnunin: Meirihluti studdi málstað BSRB — Mjög skiptar skoðanir um verkfallsvörsluna Mikill meirihluti landsmanna studdi málstað BSRB frekar en fjármála- ráðuneytisins samkvæmt skoðana- könnun, sem DV lét gera fyrir sig meö DV-aöferðum dagana 12,—14. þessa mánaöar eða fyrir 12—14 dögum. Þegar spurt var um verkfalls- vörslu BSRB reyndust skoöanir mjög skiptar. Annars vegar var spurt: Hvort styður þú frekar málstaö BSRB eða fjármálaráöuneytisins í yfirstandandi kjaradeilu? 53,5 prósent af öllu úrtak- inu sögðust frekar styöja málstaö BSRB. 13,8% kváöust frekar styöja málstaö f jármálaráðuneytisins. Marg- ir, eða 21,2% voru óákveðnir og 11,5% vildu ekki svara. Þetta þýðir að BSRB hafði stuðning 79,5% þeirra sem af- stöðu tóku en f jármálaráðuneytiö naut stuðnings20,5%. Ennfremur var spurt: Telur þú, að BSRB hafi gengið hæfilega langt, of langt eöa of skammt í verkfallsvörslu? Þá sögðust 36 prósent telja, að BSRB hefði gengið of langt í verkfalls- vörslunni. 31,8% töldu BSRB hafa gengið hæfilega langt og 6,2% álitu BSRB hafa gengiö of skammt í verk- fallsvörslu. 14,3% voru óákveðnir og 11,7% vildu ekki svara. Þetta þýðir, að af þeim sem tóku afstööu álitu 48,6% að BSRB hefði gengið of langt, 43% hæfilega langt og 8,3%,of skammt. Urtakið í könnuninni var 600 manns, og var jafnt skipt milli kynja og jafnt milli Reykjavíkursvæðisins og lands- byggðarinnar. -HH. Verkfallsvarsla BSRB. „Styð BSRB þótt margt hafi klúðrast hjá þeim. Ummælifólks: Persónulegar athugasemdir .í'ylgjandi því aö BSRB fái leiörétt- ingu á launum sínum,” sagði karl á Reykjavíkursvæðinu í könnuninni. „VU helst sjá Albert keyrðan út í hafsauga,” sagði kona á Reykjavíkur- svæðinu. ,,Eg er viss um að Albert gæti engan veginn lifað af lægstu iaununum jafnvel ekki hundurinn hans,” sagði karl á Reykjavíkursvæðinu. ,díg ætla að biöja þig að tala ekki um Albert i min eyru. Ég get ekki einu sinni hugs- að mér að sjá mynd af honum,” sagði kona á Reykjavíkursvæöinu. „Myndi ekki kjósa lista sem Aibert væri á,” sagði kona á Reykjavíkursvæðinu. „Finnst fjármálaráöuneytið ekki hafa komið rétt fram við fólkiö,” sagði karl í Olafsvík. „Styð BSRB þótt sumt hafi klúðrast hjá þeim,” sagði karl á Suður- landi. „Eg held ég styðji frekar BSRB. Ef Albert hefði þagað hefði ég stutt hann,” sagðikona útiá landi. „Kristján Thorlacius er alveg úti að aka. Frekjan orðin óhófleg,” sagði karl úti á landi. „BSRB hefur veriö með alltof miklar öfgar,” sagði karl á Reykjavíkursvæðinu. „Oraunhæft með öUu hjá BSRB. Það er heimskreppa,” sagði karl á Sauðárkróki. „Eg stóð með BSRB en eftir að hafa hlustaö á málstað þeirra i sjálfu verkfalUnu snerist mér hugur,” sagði karl á Suöuriandi. „Það verður að átta sig á að það er ekki hægt að heimta peninga sem eru ekki til,” sagði kona á Reyk ja- vUcursvæðinu. ,,Kristján Thoriacius er eins og pelikani,” sagði kona á Reykja- víkursvæðinu. „Mér finnst verkföU alltaf jaöra viö hafís eöa eldgos. Verkfóll ættu að vera óþörf í dag,” sagði kona úti á landi. „Styö Albert al- gjörlega í þessu máli,” sagði karl á Reykjavíkursvæðinu. „Þaö er ekki mönnum sæmandi að koma fram eins og BSRB-menn hafa gert,” sagði kona á Reykjavíkursvæðinu. „Mér finnst báðir aöUar ósann- gjarnir,” sagöi karl úti á landi. „Mér finnst þessi samningamál vera orðin hreinn skrípaleikur. Þessir menn sem standa í þessu eru eins og sandkassa- börn,” sagði kona á Reykjavíkur- svæðinu. ,3SRB-fólkið á ekkert sam- eiginlegt,” sagði kona á Reykjavíkur- svæðinu. „Báðir aöUar hafa komið slæ- lega fram í vinnudeilunni,” sagði kari á Reykjavíkursvæðinu. „Báöir aöilar hafa nokkuð tU síns máls,” sagði annar. „Það hafa báðir aðilar mikið tU síns máls í þessari deilu svo að ég er hlutlaus,” sagði kona á Norðurlandi. ,3tyð hvorki BSRB né fjármálaráðu- neytið en þeir hafa hvor um sig mikið tU síns máls. Eg held að við verðum bráöum seld á uppboöi því rUciskassinn hlýtur að vera orðinn löngu tómur,” sagði karl úti á landi. ,,Ég veit ekki hvorn málstaðinn ég styð. Ég er farin að halda að þetta sé að verða eitthvað persónulegt á mUli toppanna sem semja,” sagöi kona úti á landi. „Þetta er komiö út í rugl,” sagði karl úti á landi. Verkfallsvarslan „Mætti segja mér að BSRB hafi gengiö of langt,” sagði karl á Norður- landi. „BSRB hefur farið langt út fyrir sitt sviö,” sagði karl á Reykjavíkur- svæðinu. „Þetta hefur gengið of langt og bitnað á gamla fólkinu og bömunum mest, eða þeim sem síst skyldi,” sagði kona á Suöurlandi. „BSRB gekk of langt í Háskólanum,” sagði karl á Reykjavíkursvæöinu. „BSRB gekk of langt varðandi Háskólann,” sagöi annar. „Þrátt fyrir stuðning við BSRB hafa þeir gengiö aö mínu mati heist til langt við verkfaUsvörslu,” sagði kona á Reykjavíkursvæðinu. „Það er búið að sýna þaö mikið um- buröarlyndi fram tU þessa að nú verður að sýna einhverja hörku,” sagði karl á Reykjavíkursvæðinu. „Þetta hefur gengið of langt en ríkis- stjórnin hefur gefið tilefni til þess,” sagði annar. „Ég tel að þeir hafi átt að komast inn á Keflavíkurflugvöll,” sagði karl á Suöurnesjum. „BSRB hefði mátt ganga lengra til að knýja fram lausn sem fyrst,” sagði kona á Reykjavíkursvæðinu. „Við heyrum ekkert hér og vitum því lítið,” sagði karl í sveit á Norðurlandi. „Heyrum lítiö af fréttum og vitum því ekki um aðgerðir BSRB,” sagði kona á Suðurlandi.” -HH. Spurt var: Hvort styður þú frekar málstað BSRB eða fjármálaráðuneytisins í yfirstand- andi kjaradeilu? NIÐURSTÖÐUR SKODANAKÖNNUNARINNAR URÐU ÞESSAR: BSRB 321 eða 53,5% Fjármálaráðuneytið 83 eða 13,8% Óákveðnir 127 eða 21,2% Vilja ekki svara 69eða 11,5% EFAÐEINS ERU TEKNIR ÞEIR SEM AFSTÖDU TÓKU: BSRB 79,5% Fjármálaráðuneytið 20,5% Spurt var: Telur þú, að BSRB hafi gengið hœfilega langt, verkfallsvörslu? of langt eða of skammt i NIDURSTÖÐUR SKODANAKÖNNUNARINNAR URÐU ÞESSAR: Hœfílega langt 191 eða31,8% Of langt 216 eða 36,0% Of skammt 37 eða 6,2% Óókveðnir 86eða 14,3% Vilja ekki svara 70 eða 11,7% EFADEINS ERU TEKN/R ÞE/R SEM TÓKU AFSTÖDU: Hæfilega langt 43% Of langt 48,6% Of skammt 8,3% Höskuldur Jónsson ráðuneyt- isstjóri: Miklu meiri hraðí áverðbólguhjólinu ,3amkvæmt þessum niöurstöðum má ætla að rúmlega 53% þeirra sem spurðir voru styðji kaupkröfur upp á 34% og verötryggingu launa,” sagði Höskuldur Jónsson ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu. „Sé þetta rétt ber það vott um aö meirihlutinn óski eftir miklu meiri hraöa á verðbólguhjólinu en menn hafa áöur látiö sér til hugar koma. Varðandi afstöðuna til fjármála- ráðuneytisins er hins vegar ekki ljóst hvort fólki finnst ríkið hafa boöiö of mikiðeðaof lítiö.” Varðandi verkfallsvörslu BSRB kvaðst Höskuldur ólíta að þar hefði verið „gengiöalltof, alltof langt”. Hins vegar bæri að hafa í huga að fjár- málaráöuneytiö væri annar aöili máls- ins og hlyti afstaða hans að mótast af því. -JSS. Þórður Sverrisson, fulltrúi hjá Eimskip: „Athyglisverðar niðurstöður” „Þetta eru athyglisveröar niður- stöður,” sagði Þórður Sverrisson, full- trúi framkvstjóra. hjá Eimskip, um skoðanakönnun DV. „Við teljum að BSRB hafi gengið of langt gagnvart okkur. Bandalagið á í deilu við ríkisvaldið en ekki okkur. Þaö • má alltaf gera ráð fyrir að slík vinnu- deila trufli starfsemi utan ríkiskerf- isins. En við teljum að verkfallsvarsla BSRB hafi gengið það langt að brotið haf i verið á okkur ólöglega. Við höfum haldið starfsemi okkar í hvívetna innan ramma laganna. Við höfum ekkert gert nema með heimild viðkomandi embættismanna. Því hefur okkur þótt það afar sérstakt að BSRB skuli stööva okkur þegar slíkar heimildir liggja fyrir. Niðurstaða skoðanakönnunarinnar kemur því síst á óvart. Hún sýnir að almenningur í landinu samþykkir ekki að einn aðili, í þessu tilviki stéttarfé- lag, gangi fram á verkfallstímum og takivöldinísínarhendur.” -JSS. Haraldur Steinþórs- f son,fram- kvæmda- stjóri BSRB: Kjarabarátta fyrir opnumtjöldum „Við höfum rekiö okkar kjarabar- áttu og síðar verkfall fyrir opnum tjöldum. Rök okkar fyrir þörfinni á kjarabótum eru augljós og ég fagna þeim skilningi sem þau virðast mæta,” sagði Haraldur Steinþórsson. „Varðandi framkvæmd verkfallsins þá hefur oft verið ruglað saman annars vegar baráttu BSRB fyrir framkvæmd verkfallsins og hinsvegar mótmælum okkar gegn því að kjaradeilunefnd taki sér vald sem hún ekki hefur. Ég hygg að skoðun þeirra sem telja okkur hafa gengið of langt byggist á því að þeir átti sig ekki á hörku f jármálaráðuneyt- isins í okkar garð og að kjaradeilu- nefnd hefur því miður reynst verkfæri stjómvalda.” -EH. Guðrún Árnadóttir, formaður verkfalls- stjórnar BSRB: Vanþekkingað halda að við göngumof langt „Ég eraðsjálfsögðuafaránægðmeð útkomu BSRB í þessari skoðana- könnun. Hvaö varðar verkfalls- vörsluna þá er mjótt á milli þeirra sem telja aö það sé farið of langt og þeirra sem telja að farið sé hæfilega langt,” sagði Guðrún Amadóttir. „Það er mitt álit að það sé af van- þekkingu að fólk heldur að við göngum of langt. Staðan er oft mjög flókin hvaö varðar verkfallsbrotin og það liggur ekki ljóst fyrir almenningi að þarna sé um verkfallsbrot að ræða og þaö oft mjöggrófaðokkarmati.” _eh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.