Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1984, Side 5
DV. FÖSTUDAGUR 26. OKTOBER1984.
5
timskip kænr
úrskuröinn
Eimskipafélag Islands kraföist
lögbanns á aðgerðir BSRB-verkfalls-
varöa við Urriðafoss á Grundar-
tanga í síðustu yiku. Fógetaréttur
synjaði lögbannskröfunni á þriöju-
dag. I úrskurðarorðum, sem Eggert
Oskarsson setudómari kvað upp, er
ekki talið eðiilegt að beita lögbanni
sem réttarúrræði vegna þess að
deiluaðilar eiga þess kost aö fá úr-
lausn í venjulegu dómsmáli.
Eimskip hefur kært úrskurðinn til
Hæstaréttar. Aðalkrafan er að um-
beðið lögbann verði lagt á en til vara
er gerð sú krafa að úrskurður réttar-
ins í málinu verði felldur úr gildi og
að umbeðin lögbannskrafa verði lögð
fyrir fógeta til efnislegrar úrlausnar.
FLUGLEIÐIR
BÆTA VIÐ BORG
I dag hefja Flugleiðir reglulegt
áætlunarflug á milli Lúxemborgar
og Orlando á Flórídaskaga í Banda-
ríkjunum. Framan af verður aðeins
flogið einu sinni í viku á milli
borganna og að sögn Sæmundar Guð-
vinssonar, fréttafulltrúa Flugleiða,
eru bókanir þegar í góðu lagi.
Evrópubúar sækja i sandinn og sól-
ina á Flórída yfir vetrarmánuðina og
Flórídabúar eru áhugamenn um
skíðaf eröir á gamla meginlandinu.
Flugleiðir eru fyrsta alþjóðaflug-
'félagið sem hefur áætlunarflug milli
Evrópu og Orlando og sem dæmi má
nefna að British Airways hefur ekki
sína áætlun fyrr en í april.
-EIR.
Veröbólgan ykist
um 10 prosentustig
Ef kjarasamningur Félags bóka-
gerðarmanna yrði almenn regla á
vinnumarkaði myndi það gera það að
verkum að verðbólga á þessu ári og því
næsta yrði um 10 prósentustigum hærri
en gert er ráð fyrir í þjóðhagsáætlun.
Ef samið yrði um þessar hækkanir á
almennum vinnumarkaði yrði verð-
bólga á þessu ári, frá upphafi til loka
árs, um 23%. Verðbólga frá upphafi til
loka árs 1985 yrði þá um 19% eða um 10
prósentustigum hærri hvert ár en rík-
isstjómin hefur gert ráð fyrir. I þjóð-
hagsáætlun er gert ráð fyrir áð verð-
bólguhraðinn í lok næsta árs verði
kominn niður í 9%. Ef þetta gengi fram
yrði meðal hækkun verðbólgunnar
milli áranna 1984 og 1985 um 26%.
Þessi spá er byggð á þeirri forsendu að
strax aö loknum samningum yrði
gengið fellt um 15% til að mæta
þessum launabreytingum og síðan
kæmi önnur 8% gengisfelling um næstu
áramót til að mæta vanda sjávarút-
vegsins.
Þjóöhagsstofnun hefur enn ekki
viljað gefa opinberlega út mat á
áhrifum þess að k jarasamningur bóka-
gerðarmanna yrði almenn regla á
vinnumarkaði. Jón Sigurösson, for-
stjóri Þjóðhagsstofnunar, sagði þó í
samtali við DV að þaö gæfi augaleið aö
þar sem sá samningur fæli í sér tvöfalt
meiri launabreytingar en gert væri ráð
fyrir í þjóðhagsáætlun þá stæðust
varla forsendur um gengi ef hann yrði
aimenn regla.
Kjarasamningur bókagerðarmanna
gerir ráð fyrir 22,5% hækkun launa frá
upphafi til loka samningstimabils en
tilboð það sem VSI hefur gert ASI felur
i sér um 11% hækkun launa auk skatta-
lækkana sem metnar eru á um 7 til 8%
að meðaltali. Jón Sigurösson sagði að
þótt tilboð VSI yrði grundvöllur al-
mennra kjarasamninga þá kæmi öll
þéssi 11% kauphækkun strax í upphafi
samningstímans og slíkir samningar
myndu verða ákaflega erfiðir fyrir
sjávarútveginn og mikil áraun fyrir
gengisstefnu ríkisstjómarinnar. ÖEF
VIUA SETJA ÚTVARPSSTÖD Á STOFN STRAX
Undirbúningsnefnd að stofnun
Islenska útvarpsfélagsins hf. hefur
sent menntamálaráðherra bréf þar
sem óskað er eftir leyfi nú þegar til aö
setja á stofn útvarpsstöð.
Nefndin hefur einnig ritað póst- og
símamálastjóra. Er hann beðinn um
aö hafa tæknibúnaö tilbúinn til
notkunar ef af leyfisveitingu verður.
Loks hefur nefndin óskað eftir stuðn-
ingsyfirlýsingu borgarráös vegna
þeirrar þjónustu sem rekstur útvarps-
stöðvar hefur í för með sér.
Framhaldsstofnfundur Islenska út-
varpsfélagsins hf. verður haldinn 30.
október næstkomandi. Er þá fyrirhug-
að aökjósa stjórn félagsins.
-JSS
\
Fullkomin
aldeyris-
jór
er ekki lengur
einkamál
ríkisbankanna
^jaldeyrts
Banki
Þaö er með sérstakri ánægju að við skýrum frá því, að frá og með 1. október veitir
Iðnaðarbankinn, fyrstur einkabanka, fulla og ótakmarkaða gjaldeyrisþjónustu.
Þjónusta okkar eykst því verulega.
• Við opnum ábyrgðir vegna innflutnings.
• Við önnumst innheimtur vegna innflutnings.
• Við veitum aðstoð og höfum milligöngu við opnun ábyrgða vegna útflutnings.
• Við sjáum um innheimtur vegna útflutnings gegnum erlenda banka.
• Við kaupum og seljum erlendan gjaldeyri til ferðamanna, námsmanna
og annarra, samkvæmt reglum þarað lútandi.
Tilgangurinn með þessum breytingum er að sjálfsögðu sá að koma til móts við
viðskiptavini bankans og aðra sem kjósa að nota þjónustu hans.
Verið velkomin til viðskipta.
Iðnaðarbankinn