Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1984, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1984, Qupperneq 6
6 DV. FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER1984. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Nú stendur yfir vertið hjá hjólbarðeverkstæöunum og mikið um að vere þar. D V-mynd Kristján Ari. Snjórinn á næsta leiti: Ökumenn verða að huga að dekkjunum Nú er sá tími ársins er bílaeig- endur veröa aö fara aö huga aö bílum sínum fyrir veturinn. Þegar þetta er skrifað er verkfall opinberra starfsmanna enn i fullum gangi og vegna þess er að verða vetrar- dekkja- og naglalaust á flestum hjól- baröaverkstæöum. Nóg er til af dekkjum og nöglum í tollvöru- geymslunni en aögangurinn þangað er sem stendur lokaður. Menn eru því uggandi yfir þessu ástandi og ljóst er að ófremdar- ástand getur skapast ef skyndilega fer að snjóa. Sérstaklega á þaö við um höfuðborgarsvæðið þar sem um- ferð er mikil. Hjá Umferðarráði eru menn ugg- andi yfir þessu. „Aðalatriðið er að bileigendur reyni að koma vetrardekkjunum undir sem allra fyrst, það er að segja þeir sem eiga dekk. Þaö er einnig veigamikið atriði að ökumenn ofmeti ekki þennan útbúnað bifreiða sinna og reyni eftir fremsta megni að meta aðstæöur hverju sinni og haga akstr- inum eftir því,” segir Oli H. Þórðar- son, framkvæmdastjóri Umferðar- ráðs. Hann sagði einnig að við þær aðstæður sem ríktu nú í þjóðfélaginu væri nokkuð afbrigðilegt ástand í umferðinni. Nú mætti t.d. búast við gangandi vegfarendum á hinum ýmsu stöðum vegna strætisvagna- leysis. Það væri ekki eins og við venjulegar aðstæður þar sem gang- andi vegfarendur eru helst í kringum biðstöðvar strætisvagnanna. Þá væri einnig viss hætta samfara þvíað ökumenn tækju upp puttalinga þótt það sé góðra gjalda vert. Þegar bilar stoppa skyndilega á fjölfömum götum til þessara hluta getur skapast hættuástand. Vetrardekkin undir bifínn En hvað sem öllu ástandi líður er ljóst að ökumenn verða að fara að skipta yfir í vetrardekk og nú þegar eru þeir framsýnu byrjaðir. Hér á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi eru fjölmargir staöir sem sjá um þessa þjónustu og oftast nefndir hjólbarðaverkstæði. Vert er að geta þess að ekkert hjól- barðaverkstæði er lengur opið á sunnudögum en slíkt hefur verið al- gengt undanfarin ár á mesta anna- tíma hjá þessum verkstæðum. En flestir eru með opið á laugardögum og einnig f jölmargir með opið fram eftirkvöldi. Kostnaður Venjuleg aögerð á fólksbíl, þ.e. að skipta á fjórum felgum yfir í vetrar- dekk og jafnvægisstilla framhjólin kostar um 644 krónur. Að negla eitt dekk kostar um 200 krónur. Sólað vetrardekk kostar um 1360 krónur og nýtt dekk kostar um 2100krónur. -APH. Kostnaður við að skipta yfir í vetrardekk 71kr...að skipta yf ir á aöra felgu. 40 kr... aö taka hjól undan og setja undiraftur. 100 kr... að jafnvægisstilla eitt hjól. 644 krónur kostar þessi aðgerð fyrir ven julegan fólksbil. Naglar 200 krónur... að negla venjulegt dekk. Vetrardekk Ca 1360 krónur... sólað dekk. Ca 2100krónur...nýttdekk. Það eru vanir menn og snör handtök sem svlpta gömlu dekkjunum af felgunum og setja vetrardekkin á. Forðíst óþægindi í f rosthörkunum látid stilla bflinn Það er ýmislegt sem ökumenn verða að ganga úr skugga um áður en veturinn gengur í garð. Samkvæmt gildandi reglum áttu allir bifreiðaeigendur að vera búnir að láta stilla ljósin á bifreiöum sinum fyrir 1. október. Að láta ljósastilla er fljótgert á verkstæðum sem sjá um slíka þjónustu. Hjá verkstæöinu Bifreiöastilling i Kópavogi fengust þær upplýsingar aö ekki þyrfti að bíða lengi eftir aö láta stilla ljósin. Flestir gætu ekið beint inn og fengið þetta gert á svipstundu. Ljósastilling þar kostar 160 krónur og er það verð einnig á flestum öðrum stöðum. Vélastilling Þá er einnig gott að láta stilla vélina til aö forðast óþægindi sem kunna að geta komiö upp þegar frostiö er byrjaö aö herja á bílinn. Þegar um véla- stillingu er aö ræða er hleðslan könnuð og einnig viftureim og fleira. Algengt verð fyrir vélastillingu með nauðsynlegum varahlutum er á bilinu 1200—1400 krónur fyrir venjulegan fólksbíl. Frostlögurinn Svo má að sjálfsögðu ekki gleyma frostleginum. Allar bensínstöðvar sjá um að mæla kælivökvann á vatnskass- anum og gefa upplýsingar um hversu mikið þarf af frostleginum. Þá verður einnig að vera frostvarnarefni á rúöu- pissinu. Svo er bara aðaka af stað. -APH. Stærri baukurlnn inniheldur 365 flúortöflur og fékkst hann gefins á Heilsuvernd- arstöð Reykjavíkur. Minni baukurinn fékkst gegn framvisun lyfseðils og kostaði um 140 krónur. Hann inniheldur 250 töflur. DV-mynd Kristján Ari. Flúortöf lur gef ins fyrir Reykvíkinga — aðrir greiða fullt verð Mikil skrif hafa verið um flúortöflur og eru skiptar skoðanir um hvort beri að gefa bömum töfiurnar eða ekki. Vilji foreldrar verða sér úti um flúor- töflur fá þeir þær fritt ef þeir eru bú- settir í Reykjavik en íbúar í öðrum landshlutum þurfa að greiða fyrir þær fullt verð. Samkvæmt lyfjaskrá, sem gildir frá júlí til október á þessu ári, kosta 365 flúortöflur 169 krónur frá Stefáni Thorarensen en 200,52 frá Deltahf. Neytandi, sem búsettur er i Reykja- vik, þarf aðeins að gera sér ferö á HeilsuverndarstöðReykjavíkur,á tann- læknadeild skólabama þar sem töflumar fást gefins. Það eina sem for- eldrið þarf að gera er að útfylla eyðu- blað þar sem helstu upplýsingar koma fram, meðal annars nafn, heimilisfang og aldur barns. Uthlutað er 365 töflum í senn og fylgja helstu upplýsingar með frá yfirskólatannlækni. Þar stendur meðal annars: Til þess aö flúortöflur komi að bestum notum i baráttunni gegn tannskemmdum þarf að taka þær reglulega dag hvem og aldrei að sleppa úr degi. Böm á aldrinum 6—12 ára þurfa 3 töflur á dag. Best er að taka þærþannig: 1 tafla að morgni, 1 tafla um miðjan daginn og ein tafla að kvöldi eftir tann- burstun. 0—3 ára gamalt bam skal taka eina töflu á dag og 3—6 ára tvær á dag. Töflurnar eru bragðdaufar og flest böm taka þær með glöðu geði. Ef einhver tregða er hjá barni að taka sínar töflur má taka þær í mat. Þær leysast auðveldlega upp og spilla ekki bragði. Ráðlagt er að gefa aldrei meira en uppgefinn dagskammt. Lítið sem ekkert niðurgreitt Ibúar utan Reykjavíkur þurfa að fá lyfseðil hjá tannlækni. Ekki er hægt að fá lyf fyrir tvö börn út á einn lyfseðil, jafnvel þó um systkin sé að ræða. Fyrir símsendan lyfseðil greiðast 40 krónur. Ríkisstjórnin reynir að spara með því aö auka hlutdeild sjúklings. Þannig greiðir sjúklingurinn 120 krónur af inn- lendum lyfjum en 240 krónur af þeim erlendu ef elnungis er um 120 daga skammt að ræða eða skammt sem endist skemur. Fái sjúklingurinn hins vegar skammt fyrir fleiri en 120 daga, til dæmis 150, greiöir hann fastagjald fyrir 120 daga notkun og siðan annað fastagjald fyrir þá daga sem umfram eru. Fyrir 150 töflur af innlendu lyfi yrðu því greiddar 240 krónur (120X2). Þegar flúortöflum er úthlutað fær neytandinn 365 töflur. Eigi bamiö aö taka eina töflu á dag þá er þar um árs- úthlutun að ræða og því ekkert greitt frá sjúkrasamlagi og engar leiðbeiningarfylgja. Mörgum þykir nokkuð hart aö vita til þess að Reykvíkingurinn fær flúor- töflur gefins en nágrannarnir greiða fullt gjald og í mörgum tilfellum er ekkert niöurgreitt frá sjúkrasamlagi. -RR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.