Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1984, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1984, Side 9
DV. FÖSTUDAGUR 26. OKTÖBER1984. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Danir hóta verkfóllum út af at- vinnuleysis- bótunum Frá Gunnlaugi A. Jónssyni í Lundi: Stór hluti dönsku verkalýðshreyf- ingarinnar hótar hinni borgaralegu samsteypustjórn landsins allsherjar- verkfalli í sambandi við kjarasamn- inga næsta árs. Knud Heinesen, einn af leiðtogum sósíaldemókrata (fyrrverandi fjár- málaráðherra) hefur tekið undir hót- anir verkalýðshreyfingarinnar. Þaö er samkomulag ríkisstjórnar- flokkanna fjögurra (íhaldsmanna, Vinstri flokksins, Kristiiega þjóöar- flokksins og miðdemókrata) ásamt Róttæka flokknum, sem er ástæðan til „stríðsins” milli ríkisstjómarinnar og verkalýðshreyfingarinnar. Samkomu- lagið varðar hina atvinnulausu. Til- laga ríkisstjómarinnar þýðir að þeir sem hafa verið atvinnulausir í langan tíma geta ekki verið endalaust á at- vinnuleysisbótum. Þeir muni fá eitt starfstilboð og missi þeir þá atvinnu býðst þeim ný starfsmenntun og fái þeir ekki atvinnu þá, missa þeir bæt- umar og verða að leita á náðir félags- málastofnunarinnar. Hanby Hansen, formaður stærstu verkalýðssamtaka landsins, tók tillög- unni svo illa að hann hótaði allsherjar- verkfalli. „Ríkisstjórnin vill hrekja hina atvinnulausu ofan í f jöldagröf fé- lagsmálastofnunar,” sagði Hansen. — Heinesen tók í sama streng. „Þetta er dropinn sem fyllir mælinn,” sagði hann. Poul Schliiter forsætisráöherra læt- ur sér hins vegar hvergi bregöa. „Rík- isstjórnin stendur fast við sínar tillög- ur, sem raunar hafa verið misskildar. Hér er um að ræða hið ágætasta tilboð til handa hinum atvinnulausu.” Svíþjóð: Nýir skattar Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta- manni DV í Sviþjóð: Kjell Olav Feldt, f jármálaráðherra Svíþjóðar kynnti í fyrradag nýjar efna- hagsaðgerðir sænsku ríkisstjómarinn- ar. Aðgerðirnar felast fyrst og fremst í nýjum sköttum sem gefa eiga ríkis- stjórninni fjóra milijarða sænskra króna. Af þeim verður 1750 milljónum variö til aö auka atvinnu I landinu. Skattarnir verða einkum teknir af bensíni, rafmagni, ferðalögum, áfengi og tóbaki. Rikisstjómin hefur náð sam- komulagi viö vinstri flokkinn, komm- únistana, um þessar aðgerðir og taka þær gildi 1. desember næstkomandi. Ljóst er nú að verðbólga fer langt yfir það 4% mark sem ríkisstjórnin hafði sett sér. Talið er að við árslok 1984 verði hún að minnsta kosti 7%. Ríkisstjómin segir hins vegar að tak- markið sé að koma verðbólgunni niður í 3% á næsta ári. Barzel: Flæmdist úr embætti fyrir áburð um mútur. ann lausan Utvarpið í Afganistan greindi frá þvi í morgun aö franski blaðamaður- inn Jacques Abouchar hefði verið lát- inn laus úr fangelsi og mundi fá aö fara úr landi með franskri þingmannanefnd sem væntanleg er til Afganistans vegna málsins. Babrak Karmal forseti hafði í gær sagt að hann mundi náða blaðamann- inn af mannúðarástæðum og í vináttu- skyni við Frakkland. Abouchar hafði verið dæmdur í átján ára fangelsi fýrir að hafa komið inn í landiö með ólöglegum hætti til að stunda njósnir og hryðjuverkastarf- semi. Hann hafði verið tekinn til fanga í f ylgd með nokkrum skæruliðum. Dómur þessi hafði valdið mikiili óánægju i Frakklandi og þá ekki sist meðal franskra kommúnista sem jafn- an hafa þótt fylgispakir við Moskvulín- una. Haföi mjög kólnað sambúö iFrakklands og Sovétrikjanna vegna Imálsins. Barzel sagði af sér Rainer Barzel, fyrrum kanslaraefni kristilegra demókrata í V-Þýskalandi, sagði í gær af sér embætti þingforseta sambandsþingsins í Bonn vegna ásak- ana um að hafa þegið mútur af Flick- fyrirtækjasamsteypunni. Barzel heldur fast fram sakleysi sínu en segist neyddur til að vikja á meðan málið er í rannsókn svo aö þing- ið geti starfað eðlilega. — Mætti hann ekki á þingfund í gær. Honum hefur verið boriö á brýn að hafa þegið 1,7 milljónir marka í mútur fyrir að draga sig út úr samkeppni við Helmut Kohl um kanslaraframboð. Flick-mútumálið virðist enn eiga eftir að draga æöi mikinn dilk á eftir sér fyrir frammámenn flokkanna í V- Þýskalandi. Einn ráðherra Kohls kanslara, Otto Lambsdorf efnahags- málaráðherra og einn af leiötogum frjálslyndra demókrata, neyddist til þess að segja af sér síðasta vetur. Rannsókn lokið á páfatilræðinu Búist er við því að þrír Búlgarir og fjórir Tyrkir verði í dag opinberlega ákærðir fyrir hlutdeild í samsærinu um tilræðiö við páfann 19. maí 1981. Dómarinn, sem síðustu þrjú árin hefur stjómaö rannsókninni á þessu dularfulla máli, mun í dag gera niður- stöður rannsóknar sinnar kunnar. Rík- issaksóknari hefur lagt til að sjö menn verði sóttir til saka fyrir að vera í vit- orði með Tyrkjanum Ali Agca sem særði Jóhannes Pál páfa skotsári á Péturstorginu þennan maídag. Framan af í fangavistinni mun Ali Agca hafa verið þögull sem gröfin um samsærið en sagt er að hann hafi síðar leyst frá skjóðunni. Mjög hefur verið að búlgörsku leyniþjónustunni bent í málinu en hún starfar eins og dóttur- fyrirtæki sovésku leyniþjónustunnar. Einn starfsmanna á skrifstofu búlg- arska flugfélagsins í Róm var handtek- inn og hefur verið í gæslu síöan í nóv- ember 1982 en tveir aðrir sem grunur Pólsk yfirvöld hafa greint frá því að þrír menn séu nú í haldi grunaöir um aðild aö ráni prests- ins, Jerzy Popieluszko. Hár, sem talið er af höfði prests- ins, fannst í farangursrými emb- beindist að höfðu náð að forða sér heim til Búlgaríu í tæka tiö. Tveir Tyrkjanna, sem viðriðnir eru máliö, sitja í ítölskum fangelsum. Sá þriöji er í haldi í Búlgaríu en sá f jórði fer huldu höfði. — Bekir Celenk, sem er í haldi í Búlgaríu, er sagður æðstráð- andi tyrknesku mafíunnar. ættisbíls eins starfsmanna innan- rikisráöuneytisins og kvisast hefur að fingraför starfsmannsins hafi fundist í bifreiöinni sem prestinum var rænt úr síðasta föstudag. Er prestsránið að upplýsast? Þarftu að se/ja bít? Vantarþig bíi? SMÁ-AUGLÝSING IDV GETUR LEYST VANDANN. SMÁAUGLÝSINGADEILD - ÞVERHOLT111 - SÍMI27022. Bílar til sölu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.