Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1984, Síða 10
10
DV. FÖSTUDAGUR 26. OKTOBER1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
íslenskur yfirmaður hjá FAO:
Hátækni-
barátta
gegn
hungri
Dr. Björn Sigurbjörnsson er einn
af alþjóölegri Islendingum; ekki
veröur annað sagt. Hann hefur ferö-
ast til 60 landa, hefur skrifstofur í
Vin og Róm og er þessa stundina aö
vinna aö því aö endurbæta hrís-
grjónategundir og að útrýma tse tse
flugunni i Afríku. Bjöm er sennilegai
háttsettasti Islendingurinn í emb-
ættismannakerfi alþjóðastofnana
Sameinuðu þjóöanna.
Verkefni í 80 löndum
Hann er forstjóri stofnunar sem, til
aö taka stórt upp í sig, heitir á ensku:
Joint FAO/IAEA Division of Isotope
and Radiation Applications of
Atomic Energy for Food and Agri-
cultural Development. Stofnunin er
sameiginleg Matvæla- og landbún-
aðarstofnun Sameinuöu þjóöanna og
Alþjóða kjamorkustofnuninni. Bjöm
hefur 100 starfsmenn í aðalstöðvum
sínum i Vín en starfsmennimir, sem
vinna að ýmsum verkefnum víöa í
heiminum, em svo margir að engri
tölu verður á þá komið. Alls er Bjöm
með verkefnissamninga við yfir 400
rannsóknarstofnanir í um 80 löndum.
Á öl/um sviöum landbún-
aðar
Helsta takmark stofnunarinnar,
sem Bjöm hefur stjómað í eitt ogl
hálft ár, er að vinna gegn fátækt meö
nýjasta hátæknibúnaði. Starfsmenn
Björns nota geislavirk efni til að
endurbæta matjurtir og til að út-
rýma skaðlegum skorkvikindum,
svo eitthvað sé nefnt. Ekkert á sviði
landbúnaðar er þeim óviðkomandi
og alls staðar má nota geislanir til aö,
bæta og betrumbæta.
„Við vinnum á öllum sviðum land-
búnaðar,” segir Bjöm. , ^Eitt verk-
efnið er aö bæta notkun áburðar í
jarðvegi. Við notum geislavirk
áburðarefni svo hægt sé að fylgjast
meö tilfærslu næringarefnanna í i
jarðveginum inn í hina ýmsu plöntu-!
hluta. Við vitum því hvert áburður-
inn fer í plöntuna. Við vitum hvort
hann nýtist.”
Geislavirkni tH plöntukyn-
bóta
„Við notum líka geislavirk efni í
plöntukynbótum. Þá em fræ geisluð
með gammageislum eða neutrónum.
Við það breytast erfðaeinkenni plönt-
unnar og stökkbreytingar eiga sér
stað. Hér um bil ÖU hrísgrjón, sem
ræktuð em í Kalifomiu, eru afbrigöi
sem voru kynbætt með gamma-
geislum og hveiti á Italíu, sem búið
er tU spaghettí úr, var bætt meö
neutrongeislum.
Til að ná fram þessum stökk-
breytingum ræktum við margar
miUjónir plantna. Við geislum aUar
og svo er kannski ein af hverjum
100.000 eins og við viljum hafa þær.|
Við tökum nokkrar slíkar og ræktum
þær. En við vitum ekkert fyrirfram.
Það verður bara að prófa sig áfram
meðþetta.”
Skordýrastríðið
Annað verkefni Bjöms er bardag-
inn gegn skordýrunum sem bæði
bera sjúkdóma og eyðileggja upp-
skeru. Hefðbundna baráttuaðferðin
er að úða eitri yfir þau svæði þar sem
skaöleg skordýr halda sig. En það
getur skaðað bæði plöntur, dýr og
fólk og drepur aldrei ÖU skordýrin.
Helsti óvinur bænda á stórum
svæðum í Afríku er tse tse flugan
sem er sýklaberi og veldur dauða
þúsunda manna og dýra á hverju ári.
Sjúkdómurinn, sem hún ber á miUi,
er svefnsýki og útbreiðsla flugunnar
gerir það aö vericum að gríðarstór
svæði eru óbyggUeg. Þegar hún
drepur ekki fólk drepur hún húsdýr
þess.
Útrýma tse tse fíugu
á 20 árum
„Aðferðin, sem við notum, byggist
á þvi að gera tse tse fluguna ófrjóa
með gammageislum. Ef við hugsum
okkur eins ferkílómetra svæði þar
sem eru 1000 flugur þá byggjum við á
svæðinu verksmiðju sem framleiðir
ófrjóar flugur. Við sleppum síðan
10.000 ófrjóum flugum yfir svæðið.i
Þá eru ekki nema 10 prósent líkur til
aö kvenfluga finni sér frjóa karl-
flugu. Því eru ekki nema 100 sem ná
að fjölda sér. Og þá sleppum við
aftur 10.000 ófrjóum flugum. Nú er
ekki nema eitt prósent sem nær aö
fjöiga sér. Eftir þrjár slíkar umferð-
ir eru venjulega allar flugur á
svæðinu dauðar. Með eitri er aldrei
hægt að eyða þeim aigerlega. Þetta
er útrýming. Eftir 20 ár verðum við
sennilega búnir að útrýma tse tse
flugunni.
Verksmiðjuframleiðsla á
ófrjóum fíugum
önnur fluga, sem við berjumst
Dr. Bjöm S/gurbjömsson er e/nn
enna sem er stærsta stofnun SÞ.
gegn, er ávaxtaflugan. Hún eyði-
leggur alla steinávexti sem þrífast á
Miðjarðarhafssvæðinu. Árið 1955
kom hún til Suður-Ameríku. Tíu
árum síðar var hún komin til Miö-
Ameríku. Árið 1975 varð fyrst vart
við hana i Mexíkó. Þá hótuöu Banda-
ríkjamenn að hætta öllum ávaxta-
eeöstu yfirmanna Matvæ/a- og /andbúnaöarstofnunar Sameinuöu þjóö-
DV-myndir KAE.
BJÖm rrnölr viö eriendan gest á Evrópuþlngi FAOó Islandi i septembar.
innflutningi frá Mexíkó. Mexíkanar
hófu því að byggja risaverksmiðju
með hjálp frá minni stofnun. Þessi
verksmiðja framleiðir 700 milljón
flugur á viku eða sjö tonn. A hver jum
degi er dreift um 150 milljón ófr jóum
flugum. Árið 1983 var ekki til ein ein-
asta ávaxtafluga í landinu.
Mexíkanar telja sig spara um 800
milljón dollara á ári meö þessu móti
og rekstrarkostnaöur verksmiðjunn-
ar er ekki nema fjórar til fimm
milljónir dollara á ári. Upphaflega
kostaði um 60 milljónir að byggja
hana.
Og nú erum við að byrja á svona
verkefni í Egyptalandi. Þegar
vinnum við aö þessu í Nígeríu og
Kenya og víðar.
Styrkja Keldnaholt
Viö stundum lfka rannsóknir á
frjósemi búfjár og fóðrunarrann-
sóknir. Við styrkjum til dæmis verk-
efni uppi á Keldnaholti. Þar á að
setja saman fjórar gervikýr. Melt-
ingarfærin í þeim eiga að vera næst-
um nákvæmlega eins og í jórturdýri,
kú eöa kind. Viö notum geislavirka
ísótópa til að fylgjast með hvernig
næringarefnin nýtast skepnunni. Það
er voðalega dýrt að gera þetta í lif-
andi skepnu. Þarna er hægt að mæla
orkuna sem kemur úr fóðrinu.
Þetta er glersílindir með stimpli.
Siðan er vökvi úr kú settur ofan í og
loks heyið. Þetta er nákvæmlega það
sama og er að gerast í kúnni. Síðan
getur maður sett ný efni í grasið og
prófað sig áfram. Ef þetta virkar í
gervikúnni þá er hægt aö prófa þetta
á alvörukú.”
Kjarnorkufræöingur
Bjöm lagði stund á kjamorkufræði
í Bandaríkjunum og tók þar próf í
notkun geislavirkra efna. Það var
árið 1957.
„Þetta var rétt að byrja þá. Eg
byrjaði í þessari stofnun, sem ég er
nú hjá, árið ’63. Eg var yfirmaður
jurtakynbótadeildarinnar í fimm ár.
Síðan var ég varaforstjóri stofnunar-
innar í sex ár. Þá kom ég heim og var
forstjóri Rannsóknastofnunar land-
búnaðarins til ’83. Síðan fékk ég leyfi
frá störfum og var ráðinn við stofn-
unina úti og þar er ég búinn að vera í
eitt og hálft ár. Eg á að vera þama í
eitt og hálft ár enn. Þetta er voðalega
skemmtilegt starf.”
Forstjóri FAO íslandsvinur
Heyrst hefur að forstjóri Matvæla-
og landbúnaðarstof nunar Sameinuöu
þjóðanna, sem er yfirmaður Bjöms,
sé hinn mesti harðstjóri. Sá heitir
EdouardSaouma.
„Hann er mjög ákveðinn og vill
beina sem mest athyglinni að fátæk-
ustu þjóðunum. Afríka og sum Asíu-
lönd njóta forgangs. Það er númer
eitt að fólk svelti ekki. Um leiö er
lögð áhersla á samvinnu allra þjóða.
Stofnunin lítur vægari augum á
Evrópu. Það er betra að þurfa að
fara i megrunarkúr en að þurfa að
betlafyrirmat.
Saouma er mikill Islandsvinur og
þykir við vera til mikillar fyrirmynd-
ar fyrir þróunarríki. Við höfum
unnið okkur upp úr fátækt í vel-
ferðarríki. Hann þakkar þetta
menntun, kunnáttu og dugnaöi því
þrátt fyrir erfið skilyrði getum við
framleitthérmeiraennóg.” -Þó.G.