Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1984, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1984, Blaðsíða 13
DV. FÖSTUDAGUR 26. OKTOBER1984. HARALDUR BLÖNDAL LÖGFRÆOINGUR tryggja samkeppnisstööu hans, þegar hún hindrar aö skip annarra útgeröar- manna geti lagst að bryggju. Og þannig má taka fleiri dæmi um að verkfaU BSRB bitnar fyrst og fremst á þriðja aðila. I sumum tilfellum má rök- styðja að verkfallið sé af hinu góða, eins og t.d. hjá kennurum, en fram- koma þeirra í þessu verkfalli hefur sýnt að nauösynlegt er að fjölga einka- skólum í landinu til þess að geta valiö börnum sinum kennara sem misnota ekki aðstöðu sína til þess aö boöa póli- tiskt fagnaöarerindi. Eða er þaö til- hlýöiieg framkoma hjá kennurum aö flytja bömum fyrirlestra um léleg laun sín, — hætta kennslu í miðjum tíma með athugasemd um aö nú dugi kaupið ekki til meiri kennslu eða hreinlega stela bókum af börnunum, eins og gert var í Fossvogsskóla? Ólögmæt vinnustöðvun aö t.d. fá ættingjar farþega ekki að sækja þá eins og alsiða er, — þó mun Einar örn Stefánsson fréttamaður hafa fengiö að sækja konu sína enda bæði í verkfalli og í BSRB. Tjón I sjálfu sér snertir þetta ekkert ríkis- sjóð. Hins vegar veldur þetta skipafélög- unum og flugfélögunum mjög miklu tjóni. Þau verða verr í stakk búin til þess aö greiða hærra kaup, — en verða vitanlega að greiða alla sína skatta og skyldur til ríkissjóös og sveitarfélag- anna. Dagsbrúnarmenn ættu að hafa hugfast að verkfallsvarsla BSRB á hafnarbakkanum í Reykjavík hefur tvennt, og aðeins tvennt, i för með sér: Annars vegar minni tekjur Eimskipa- félagsins, — þar með minni möguleika á kauphækkun. Hins vegar aukna skatta á almenningi, — þar með minni raunverulega kauphækkun þegar sam- ið verður um hana í kjarasamningum ASI og VSI. Kristbjörg Kjeld er ekki að gæta hagsmuna bróður síns, eða Með sama hætti hefur framkoma út- varpsstarfsmanna verið. Frá því að Brota-ögmundur hóf ólögmæta vinnu- stöðvun i sjónvarpinu í byrjun þessa mánaðar hefur það orðið æ skýrara aö einokun útvarpsins verður að rjúfa. Um þaö er oröin samstaða meðal stjómarflokkanna og er það tíma- spursmál hvenær frjálsar útvarps- stöðvar hefja almennan útvarps- rekstur. Víða erlendis hafa verið sett lög til þess að tryggja hagsmuni þriðja aðila. Þetta hefur ekki veriö knýjandi á Is- landi enda hafa verkföll hin síðari ár farið friðsamlega fram. Verkfalls- varsla hefur verið gerð með skynsemi og truntuháttur og þjösnagangur eru nær óþekkt fyrirbrigði hjá frjálsu verkalýðsfélögunum. Menn geta velt því fyrir sér, — af hverju verkfalls- verðir BSRB hagi sér alls staðar eins og KGB menn. Ætli skýringin sé ekki fólgin í því að þeir eru alla daga að segja fólki fyrir og skýla sér á bak við vald reglugeröa og fyrirmæla. Nú hafa þeir ekki stuðning af reglugerðum en framkoman er sú sama. Haraldur Blöndal. Kjallarinn AÐALHEIÐUR JÓNSDÓTTIR VERSLUNARMAÐUR ekki eins og aörir menn og kannski líka hitt að honum og Lucy, ásamt öðrum hundum, hefði auðnast að gera höfuð- borg Islands að lögverndaöri hunda- borg. Hvað geríst / kjaramá/um? I umræöum um kjaramálin hefir þess mjög gætt að félagsmenn BSRB teldu sig hafa dregist langt aftur úr í kjaramálum vegna yfirborgana á al- mennum vinnumarkaði. En loks virð- ist formaður BSRB haf a áttað sig á því að það séu fleiri en opinberir starfs- menn sem mega bíta í það súra epli að vera ekki yfirborgað vinnuafl. — Þá kemur það fram að lægsti launataxti sem BSRB auglýsti var töluvert yfir 16 þús. kr. — En krafa verkamannasam- bandsins nú er 14 þús. Eitt þús. kr. lægri en farið var fram á fyrir samn- ingana í vetur. Verður trúlega 13 þús. næst. — En hvað um það. Þarna hlýtur eitthvað að spila inn í sem ekki er unnt að skilgreina. Er þar um að ræða yfir- borgað vinnuafl eöa eru þessir menn orðnir svo dauökúgaðir vinnuþrælar að v þeir telji sig ekki hafa nokkum rétt til mannsæmandi lífskjara? — En hvað sem þessum ósköpum veldur hlýtur aö teljast óheilbrigt og óraunhæft að stilla kröfum sínum langt neðan við það sem talið er að nægi til lífsframfæris. — En auðvitað þurfa toppamir ekkert að ótt- ast. Þeir munu aö sjálfsögðu alltaf standa upp úr. Formaður BSRB sagði í áðurnefnd- um sjónvarpsþætti aö þeir sem þar væru saman komnir hefðu allir dágóð laun. En geta þessir heiöursmenn þá ekki áttaö sig á því aö þeir þurfi ekki jafnmiklar kauphækkanir og hinir sem lægst laun hafa? Hvaö gerist í kjaramálum er spurn- ing sem vafalaust brennur á mörgum nú um stundir. Talaö er um að margir sjái ekki fram á annaö en missa íbúðir sínar og öll nauðungaruppboðin sem auglýst eru dag hvem benda ótvírætt í þá átt. — Þá sýnir mikið fylgishrun ríkisstjómarinnar einnig að fólk er orðið mjög aðþrengt og er að læra að meta á hlutlægan hátt vinnubrögð hennar, sem er góðra gjalda vert, og vonandi slær ekki í baksegl meö það. Nú heyrist frá ríkisstjómarherbúð- unum minnst á kjarabætur með lækk- un skatta. Það veit ríkisstjómin ofur vel að táknar kjaraskerðingu í formi dulbúinna skatta sem harðast kæmi niður á þeim sem hafa svo lág laun að þeir borga lítinn eða engan tekjuskatt. Og þá hefir heyrst minnst á Trygginga- stofnun ríkisins í þessu sambandi. Nú ættu heiðursmennirnir aö láta leiftursóknina slá í gegn. Leggja niður alla heilbrigðisþjónustu og taka að sér fleiri á vinnumarkaðinum en einstæöa foreldra og barnmargar fjölskyldur. Helst af öllu losa atvinnurekendur við allar kaupgreiðslur. En hvað gerir verkalýðshreyfingin nú? Lætur hún snúa á sig eða myndar hún órofa heild gegn ranglæti og fjand- samlegu ríkisvaldi? I áratugi hefir hún verið að grafa sína eigin gröf. Barist við sjálfa sig og barist gegn launajafn- rétti. Ef hún getur ekki látið af þessari iðju sinni — snúið við og náð áttum, hlýtur mælirinn að vera fullur og það besta senj hún getur gert að leggjast út af og deyja — biðja atvinnurekendur aö kasta yfir sig rekunum og syngja sálumessu. Aðalheiður Jónsdóttir. 13 Hálfkommakirkja hálfkommakristni Kjallarinn • „íslenzkir lútherstrúarmenn ættu að íhuga, hvað þar með hefur gerzt. Þeir eru orðnir aðilar að alþjóðasamtökum, sem er stýrt austan yfir járntjald.” ARNÓR HANNiBALSSON, málefni kirkjunnar svo mikið sem meö litlaputta. Um leið og það gerðist væri kirkjan að velli hnigin; þjóðlif og þúsund ára menning þjóðarinnar í tætlum. Það er þessi staðfesta pólsku kirkjunnar, sem gerir hana að öflugastu stofnun þjóðarinnar. Hin „nýja þjónustuguðfræði” (eða „díakónía”) Káldys biskups heldur því að vísu ekki fram, að guö hafi skapað heiminn undir forystu Sú ákvörðun heimsþings lúthers-| trúarmanna að kjósa biskup þennan forseta sinn er hnefahögg í andlit allra þeirra austantjaldsmanna, sem J reyna við erfiðar aðstæður að varð-1 veita sitt andlega frelsi. Mótmæli og þögn Ætla hefði mátt, aö heimsþingiðl hefði nú notað tækifærið og sam-1 þykkt skorinorðan stuðning við , ofsótta trúbræður austantjalds. Enj ekki i KIRKJUÞINGIÐ ( BÚDAPEST Það var eitt sinn sagt um Krist, að hann væri átvagl og vínsvelgur (Matth. 11:19) vegna þess, aö hann sat veislu og neytti víns! Með hlið- stæöri forsendu á að stimpla lúth- ersku kirkjuna kommúnisma, vegna þess að hún hél.t 7. heimsþing sitt i Ungverjalandi og valdi sér forseta eftir þeirri reglu, sem gilt hefir nær undantekningarlaust i allri sögunni frá stofnun sambandsins 1947, að for- seti sé kosinn sá sem er yfirmaður þeirrar kirkjudeildar, þar sem þing- iö er haldið. Heimsþing lúthersku kirkjunnar eru haldin á 7 ára fresti. Þingstaðurinn færist jafnan til milli landa og heimsálfa. Þetta var í fyrsta sinn, sem heimsþing var haldið i landi austan jámtjalds, 22. júli til 5. ágúst í sumar. Þennan stimpil sinn vill Arnór Hannibalsson setja á Lútherska heimssambandiö í grein sinni í Dag- blaöinu Vísi, þriðjudaginn 23. okt. sl. Þar sem hér er um mjög svo villandi getsakir að ræða, er ástæða til þess að andmæla fullyrðingum greinar- höfundar. Sambandsleysi Ein höfuöorsök þeirrar óaldar, sem yfir heiminn gengur, er sambandsleysið milli austurs og vesturs og sú þvergiröing, sem jám- tjaldið hefir haft i för meö sér. Þessi stirfni kom fljótt i Ijós að lokinni seinni heimsstyrjöld. Þegar ég sótti 2. heimsþing kirkjunnar i Hannover í Vestur-Þýskalandi 1952, var þaö átakanlegt að engum fulltrúa Austur-Evrópuríkja skyldi leyft að sækja þaö. Austan við jámtjaldið em um 16 lútherskar kirkjudeildir í sam- bandinu og þeim megin eru hinir sögufrægu staöir siðbótarmannsins Marteins Lúthers. Eg minnist þess hvernig Hans Lilje biskup tók á þessu ógnþrungna viðhorfi í upphafsræðu sinni, er hann lagði út af oröunum: „Ekki með valdi né krafti, heldur fyrir anda minn, segir Drottinn allsherjar.” (Sak. 4:6) Um leið og Hans Lilje lýsti yfir einnar mínútu þögn til þess að minnast fjarverandi fulltrúa í bæn, sagði hann um hið rikjandi ástand, að hér væri þingheimur saman kom- inn „án alls haturs án ótta við vald- beitingu, en í trausti þess samfélags, sem ekkert afl á jörðinni gæti eyði- lagt.” Síðan þetta var hefir viðhorfið tals- vert breyst eins og í Ungverjalandi, þó að yfirlýst andstaða stjórnvalda í Austur-Evrópu sé fyrir hendi og kristnir menn þar víða ofsóttir vægðariaust fyrir trúarskoðanir sín- ar. Þetta breytta viðhorf kemur glöggt í ljós í ummælum Poul Han- sens, fyrrv. Evrópuritara Lútherska Kjallarinn HERRA PETUR SIGURGEIRSSON BISKUP heimssambandsins, sem undanfarin 20 ár hefir unnið að samstarfi milli kirkna í Austur- og Vestur-Evrópu. Hann sagði, að ef sér heföi verið sagt fyrir 10 árum, að heimsþingið ætti að halda i Búdapest, þá heföi hann taliö það hrein ósannindi. „Þá heföi þetta verið óhugsandi,” sagði Poul Han- sen. Og um þingiö í Búdapest sagði áður nefnt. Það kom vel í ljós, að Kaldy, sem hefir átt sæti í stjóm sambandsins, gerir sér fyllilega grein fyrir þeim vanda, sem hann er settur i og hann tók þaö skýrt fram að hann myndi vinna störf sín i sam- ráði og samvinnu viö þá aðra, sem hafa með höndum forustu í mál- efnum lúthersku kirjunnar. Annars er embætti hans ekki stefnumótandi. Þingið og miðstjórn Lútherska heimssambandsins tekur allar meiriháttar ákvarðanir í málefnum kirkjusambandsins, en í stjóminni eru 29 manns frá kirkjudeildum víða að úr heiminum. Ohætt er að segja, að áhrifamesta staða í þessum sam- tökum er hjá framkvæmdastjóra sambandsins, sem nú er bandariskur prestur að nafni Carl Mau, og þjónað hefir sambandinu mörg undanfarin ár. Fagnaðareríndið / fyrirrúmi Reynsla min af störfum Lútherska heimssambandsins, allar götur frá þinginu í Hannover og á þremur öðrum þingum sem og persónulegum kynnum við þá menn er leiða hinar ýmsu starfsgreinar með höfuð- stöðvar í Genf í Sviss, er alfarið á þann veg, aö boðun fagnaðarerindis- ™ „Þátttakendum á þinginu í Búdapest kom saman um þaö, að gildi þingsins og þýð- ing fyrir batnandi ástand í hinum stríðsæsta heimi fólst einmitt í því, að þingið var hægt að halda í Ungver jalandi...” hann: „Eg get ekki litið á það öðru visi en guðdómlega handleiðslu, aö þaðgeturnúskeð.” Giidi þingsins Þátttakendum á þinginu í Búda- pest kom saman um þaö, að gildi þingsins og þýöing fyrir batnandi ástand í hinum stríðsæstá heimi fólst einmitt í því, að þingið var hægt að halda i Ungverjalandi, þar sem tekið var á móti þingheimi af vin- áttuhug og gestrisni og án þess að hægt væri að finna fyrir þeim jám- kalda farartálma, sem aðskilur austur og vestur. Eg ætla ekki að legg ja stríðan dóm á kosningu Kaldys í embætti forseta heimssambandsins. Hann haföi fylgi meirihluta þingfulltrúa í það emb- ætti og m.a. af ástæðu, sem ég hefi ins situr þar í fyrirrúmi og samhjálp til þess að firra heiminn böli sundur- lyndis og blóösúthellinga. Þann veg valdt Kristur lærisveinum sínum, er hann fól þeim að boða kærleika Guðs og frið á jörð. Sá vegur hefir þaö fram yfir allar aðrar leiöir, sem famar eru heiminum til bjargar, að þar sundurgreinast menn ekki eftir landamærum og þar aöskilur ekkert járntjald. Þjóöir heims þarfnast þess meir en nokkru sinni fyrr að ganga á þeirri braut. Yfirskrift þingsins var I Kristi von heimsins. I þeirri von lýsir lútherska kirkjan fram á leið. Að það tókst að rjúfa jámtjaldið geta menn svo kallað „hálfkommún- isma” eða hvaö annaö. Oneitanlega minnir þaö á uppnefniö, sem Kristi var gefið forðum daga. Pétur Sigurgelrsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.