Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1984, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1984, Page 18
18 (þróttii (þróttir DV. FÖSTUDAGUR 26. OKTOBER1984. íþróttir íþróttir lþ • GlennHoddle. Hoddle ogNeill íleikbann Frá Sigurbirni Aöalsteinssyni, frétta- manni DV í London: Eins og skýrt var frá í DV í gœr voru þeir Glenn Hoddle, Tottenham, og Warren Neill, QPR, reknir af leikvelli í Evrópuleikjum félaganna í fyrra- kvöld. Þeir félagar hafa nú verið dæmdir í tveggja leikja bann. Það þýðir að þeir missa báðir af síðari leikjum liða sinna í 2. umferðinni og fyrri leikjunum i 3. umferðef liðin komast áfram. -SK. Dómarinn hengdi bakara fyrir smið Peter White, Aston Villa, var rekinn af leikvelli í leik Aston Villa og Nor- wich á laugardaginn var. Það kom þó í Ijós eftir leikinn að dómarinn hafði hengt bakara fyrir smiö. Paul Rideout, Aston Villa, viðurkenndi eftir leikinn að hafa hrópað ókvæðisorð að dómar- anum. Dómarinn hélt að Peter White hefði veriö að opna munninn en svo var ekki í þetta skiptiö. Rideout hefur nú verið dæmdur í eins leiks keppnisbann og 150 punda sekt að auki. -SK. Kviknaði f Carrow Road Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta- manni DV í London: Það varð uppi fótur og fit í Norwich í gærmorgun þegar i ljós kom að kviknað var í áhorfendastæðum á heimavelli Norwich, Carrow Road. Fljótlega tókst að slökkva eldinn en ekki þó áður en 2500 sæti höföu eyðilagst. Þetta er gífurlegt tjón fyrir félagið og er það talið nema um einni milljón punda eða um 40 milljónum islenskra króna. -SK. Eínnig íþróttir á bls. 16 og 17 íslendingar léku sér að Finnum eins og köttur að mús í Helsinki á NM í gær — og unnu stórsigur, 32:13 — Þetta var sigur liðsheildarinnar. Finnar áttu aldrei svar við leik okkar og vlö vorum heilum gæðaflokki betri en Finnarnir, sagði Jón Hjaltalin Magnússon, formaður HSÍ, eftir að islenska landsliðið hafði unnið stór- sigur, 32:13, yfir Finnum i fyrsta leik Norðurlandamótsins í handknattleik sem hófst i Helsinki i gær. — Það kom greinilega fram að við búum enn að hinum góða undirbúningi fyrir OL í Los Angeles. Við erum búnir aö fínpússa leikkerfin sem við æföum fyrir OL og leikurinn gekk eins og vel smurð vél. Mikil barátta var í vöminni og sóknarleikurinn var skipulega leik- inn. Strákarnir gáfu aldrei eftir þótt þeir næðu yfirburðum strax í byrjun — Kæmust yfir, 13-4, fyrir leikhlé, sagöi JónHjaltalín. — Þetta var auðveldur sigur hjá okkur. Mótspyman var aldrei mikil, sagði Þorbergur Aðalsteinsson sem skoraði 8 mörk í leiknum. Karl Þráinsson úr Víkingi lék sinn fyrsta landsleik — og stóð hann sig vel. Karl skoraði þrjú mörk úr hornum. Markverðirnir Einar Þorvarðarson og Kristján Sigmundsson vörðu vel í markinu. Þeir sem skoruðu mörk Islands í leiknum, voru: Þorbergur 8, Kristján Arason 8, Þorgils Ottar 4, Karl 3, Viggó Sigurðs- son 3, Steinar Birgisson 2, Páll Olafs- son 2, Jakob Sigurðsson 1 og Hans Guðmundsson 1. Sigurður með gegn Svíum - Það er mikill hugur í strákunum og það verður ekkert gefið eftir í leikn- um gegn Svíum þótt okkur hafi gengið erfiðlega gegn þeim í gegnum árin, sagði Jón Hjaltalín. Jón sagði að Sigurður Gunnarsson væri oröinn góður af meiðslunum í hné og hann myndi leika meö gegn Svíum. Island mætir Svíþjóð í Helsinki í dag. -SOS • Þorbergur Aðalsteinsson—skoraði 8 mö Móther ■ | Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta- Imanni DV f Svíþjóð: Mótherjar Valsmanna i IEvrópukeppninnl í handknattleik, Ystad frá Sviþjóð, hafa átt mjög I erfitt uppdráttar það sem af er “ keppnistímabilinu. Siggi og Raggi beint til Spánar Eftir keppnina í Worid Cup á ítalíu halda þeir Ragnar Ölafsson og Sigurður Pétursson strax til Spánar þar sem þeir ásamt ívari Haukssyní taka þátt í Evrópu- keppni félagsliða (áhugamenn). Leikið verður á Aloha golfveUinum á MarbeUa. Þeir Ragnar og Sigurður hafa áður tekið þátt í samskonar Evrópumóti og stóðu sig þá mjög vel. -SK. íþróttir h íþróttir íþróttir íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.