Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1984, Qupperneq 30
34
DV. FÖSTUDAGUR 26. OKTOBER1984.
Sumarmyndakeppni DV:
Sigurvegarar í svart/hvítu
Síðastliðna mánuöi hefur staðið yfir svokallaða sumarmyndakeppni. Fjöldi myndefnin og mörg þúsund ljósmynd- ina. Hefur þátttaka aldrei áður verið
hin árlega Ijósmyndakeppni DV, hin áhugaljósmyndara glimdi við sumar- ir, í svart/hvitu og Iit, bárust i keppn- jafnalmenn í þessari keppni og má tala
Þessi nafnlausa mynd Jens Ormslav varð /öðru ssati.
um myndaflóð i bókstaflegri merk-
ingu.
Verðlaun í keppninni eru enda höfð-
ingleg; fyrstu verðlaun í báðum flokk-
um Nikon 50 mm myndavél, önnur
verðlaun í báðum flokkum Polaroid 660
myndavél og þriðju til fimmtu verð-
laun Polaroid Viva myndavélar. Allir
verðlaunagripirnir eru frá Ljósmynda-
þjónustunni hf., Laugavegi 176.
Myndefni ljósmyndanna var marg-
víslegt og sumarið skoðað út frá fjöl-
breytilegum sjónarhornum en mest
bar þó á myndum af manninum í sam-
spili við náttúruna. Flest myndefnin
einkenndust af léttu andrúmslofti, sól
og bjartsýni. En fáar ljósmyndir
sýndu okkur sumarið í gegnum rign-
ingarskrúöann.
I dag birtast verölaunamyndir í
svart/hvitum flokki keppninnar en lit-
myndir, sem til verðlauna unnu, verða
birtar í helgarblaði DV sem kemur út á
morgun.
I svart/hvítum flokki varð mynd
Davíös Þorsteinssonar, „Lögreglukór-
inn hitar upp”, í fyrsta sæti: Tækni-
lega vel samsett mynd þar sem leikur
með myndskurð og fókus elur af sér
inntakslegt tvíræði. Sterk mynd og
jafnframt spaugileg. I 2. sæti varð
mynd Jens Ormslevs. Tæknilega og
myndrænt séð er þetta einföld mynd en
myndefnið er vel valið og hlaðið ótal
túlkunarmöguleikum. Hún sýnir okkur
mannf jöldann og einstaklinginn á eink-
ar táknrænan hátt. 1 3. sæti varð mynd
Einars Sveins Jónssonar. „1 leit aö
ljósi”. Þetta er ein af þeim fáu mynd-
um þar sem myndefnið er sett á svið til
að lýsa hugmynd. Myndin er smellin
og sýnir sumarið á raunsæjan og jafn-
framt kaldranalegan hátt. I 4. sæti
varð mynd Sveins Eiríkssonar og sýnir
hún íslenska sumarið í svölum skugga.
I 5. sæti varð svo mynd Smára Njáls-
sonar sem tjáir vel sumarstemmningu
yngstu kynslóðarinnar.
Verðlaunamyndir i litmyndahluta
keppninnar verða kynntar í DV á
morgun, eins og áður sagöi, og greint
verður frá verðlaunaafhendingu síðar.