Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1984, Side 36
FgÉTTASKOJIÐ
68).(78).(88
SIMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu >
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið í
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1984.
_
■saass
Ríkið vill
borga launin
Frétt D V afþessu máti frá i gær.
„Við höfum viljað borga út laun,
sem næst lagi, til þeirra sem eru við
störf og gerum þá ekki greinarmun á
því hvort um er að ræða fólk í til
dæmis BHM, Sóknarkonur eða
BSRB-fólk sem vinnur á sjúkrahús-
um,” sagði Höskuldur Jónsson, ráöu-
neytisstjóri fjármálaráðuneytisins, í
samtali við DV er við spuröum hann
um þetta atriði í framhaldi af frétt
DV i gær um aö BSRB vilji ekki að
sitt fólk fái laun fyrir verkfallslok,
þ.e.a.s. það fólk sem skyldugt er aö
vinnaíverkfallinu.
Höskuldur sagðist skilja afstöðu
BSRB í þessu máli og vitnaöi meðal
annars tO lagaákvæða sem gera ekki
ráð fyrir að laun séu greidd fyrr en
að verkfalii loknu. Hins vegar benti
hann á að ríkisvaldið hefði lagt á þaö
áherslu að geta greitt starfsfólki
sjúkrahúsa og lögreglumönnum
þeim sem vinna í verkfallinu laun
fyrir þann tíma sem liðinn er frá
upphafiverkfalls.
-FRI
Dularfullt
símarugl á
Seltjarnarnesi
A Seltjarnamesi búa tveir menn.
Annar heitir Einar, hinn Guölaugur.
Báöir hafa þeir síma eins og gerist og
gengur, Einar númerið 29603 og Guð-
laugur 614843.
Þá gerist það fyrir 12 dögum aö Ein-
ar ætlar að hringja heim til sín og verð-
ur að sjálfsögðu hissa þegar Guðlaug-
ur svarar, maður sem hann hefur
aldrei hitt né heyrt nefndan. Einar
biöst afsökunar, leggur á og hringir
aftur. Enn svarar Guðlaugur og geng-
ur þetta nokkra hríð þar tU Einari þyk-
ir fullreynt að Guölaugur sé kominn
með símann hans. Símanúmer Guð-
laugs er aftur á móti týnt.
Heima hjá Einari stendur síminn og
þegir þunnu hljóöi þar til allt í einu
heyrist hringing og í símanum er
maður sem spyr hvort búiö sé að
tengja símann sinn. Segir hann þetta
vera númer 611221. Einar var þá þrátt
fyrir allt meö símanúmer, númer
þriðja aðila sem fyrir bragðið er síma-
laus og númer Guölaugs er týnt eins og
fyrr sagði. Þykir mönnunum þrem og
fjöiskyldum þeirra þetta aö sjálfsögðu
bagalegt og kunna engin ráð í verkfall-
inu. -EIR
Jafnt innanlands sem utan.
Ingimar Halldórsson, samninganefndarmaður á ísafirði:
„EKKITÚLKAÐ SEM
VERÐTRYGGING”
„Af okkar hálfu var þetta ekkl að í værl fólgið verðtryggingará- elnsþarsemmennvilduveraaðhár-
túlkað sem verðtryggingarákvæði, kvæði. toga orðalag samningsins um
heldur hPimiiH tii endurskoðunar af þennan endurskoðunarrétt. Verð-
beggja hálfu ef kaupmáttur um- Starfsmannafélagið haföi trygging er ekki heimll samkvaHnt
aflminnfl launa nú breytist á samþykkt samninginn, svo og gfldandi lögum svo að óþarfi er að
samningstímanum,” segir Ingimar Orkubú Vestfjarða. Bæjgrstjórn Isa- deila um þetta. Það þarf hins vegar
Halldórsson á ísafiröi, einn af þrem í f jarðar frestaði afgreiðslu í fyrradag ef til vill að breyta orðalaginu svo að
samninganefnd bæjarins. Þessi um- eftir að skattatilboö ríkisstjórn- öllum misskilningi verði eytt,” sagði
mæli varöa samning við starfs- arinnarkomfram. Ingimar.
mapnafélagiö, sem sagt hefui verið „Málinu var frestað út af þessu og -HERB.
DV VÍSAR A V0PNIN
Lögreglan hefur fundið byssur þær
sem stolið var úr versluninni Vestur-
röst aðfaranótt miðvikudagsins eftir
aö ókunn rödd hringdi á afgreiðslu DV
og vísaði á byssurnar skammt frá nýja
útvarpshúsinu skömmu fyrir kl. 20 í
gærkvöldi.
DV hafði þegar samband viö lög-
regluna eftir simtalið, sem fór á
staðinn og fann byssurnar 10 vaföar
inn i lak, en augljóst var að þær höföu
legiö þama skamma stund er þær
fundust.
Auk byssanna fannst á staðnum
nokkurt magn skota í íþróttatösku auk
annars þýfis.
-FRI.
Enn óvíst
meðbensín
Sovéska olíuskipið Lipetsk kom til
landsins i gær meö 16 lestir af bensini
sem duga ættu landsmönnum i 85
daga. Forstjórar olíufélaganna
þriggja sóttu um undanþágu til verk-
fallsnefndar BSRB i gær til að losa
skipið en þvi erindi var hafnað.
„Við leysum eitt vandamál í einu,”
sagði Vilhjálmur Jónsson, forstjóri
Esso, í morgun. „Það er gott hvað
gengur. Okkur tókst að losa svart-
olíuskipið sem legiö haföi hér í 10 daga.
Nú vinnum við að því að losa bensín-
skgiið.”
Ef verkfallsnefnd BSRB stendur
föst á sinu og neitar bón olíuféiaganna
verður bensinlaust á Islandi um miöja
næstuviku. -EIR.
Hringið
ókeypis
til útlanda
Það eru biðraðir við ýmsa ónefnda
símasjálfsala i höfuðborginni þessa
dagana og vafalítið einnig víða úti á
landsbyggðinni. Ástæðan er sú að
sjálfsalamir eru flestir orðnir stút-
fullir af smámynt og sumir fyrir
bragðiö þeirrar náttúru að úr þeim
er hægt að hringja beint til útlanda.
„Þetta getur gerst ef myntin dett-
ur ekki lengur ofan í kassann og situr
þess í stað föst í rennunni,” sagði
Ágúst Einarsson hjá Pósti og síma í
samtali við DV. „Þetta á ekki við um
alla sjálfsalana, myntin þarf að sitja,
á ákveðinn hátt til að þetta gangi.
Venjulega er einn starfsmaður í því
að tæma og sjá um viöhald á sjálfsöl-
um og víða í Reykjavík þarf aö tæma
þá tvisvar í viku. Þvi er ekki undar-
legt þó að margir þeirra séu nú orðn-
ir yfirfullir,” sagði Agúst Einarsson.
Mikil aösókn er að ákveðnum veit-
ingastaö í Reykjavík þar sem er
sjálfsali meö galopna linu til út-
landa. Allir eru að bíða eftir að kom-
ast í símann og í biðröðinni má jafnt
sjá Islendinga, Víetnama og þel-
dökka.
Til fróðleiks má geta þess að
mínútusamtal til Kúbu kostar 122
krónur. Mínúta til Argentínu 100
krónur o.s.frv. Það er Póstur og simi
sem sjálfur greiðir fyrir þessa
óvæntu þjónustu í verkfallinu. -EIR