Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1984, Blaðsíða 1
ÐAGBLAÐIÐ — VISIR
246. TBL.—74. og 10.—ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1984.
Raf magnsverð þyrfti að
hækka um 25 prósent
Ef Landsvirkjun keypti Kröflu-
virkjun á kostnaðarverði, 3.000
milljónir, þyrfti að hækka rafmagns-
verð í landinu um nálægt 25%.
Stjómendur Landsvirkjunar telja
hámarkskaupverð 700—800 milljónir
svo að ekki þurfi að hækka raf-
magnsverðið. Hjá fjármálaráðu-
neyti mun talið að 1.000—1.200
milljónir séu það kaupverð sem
ef Landsvirkjun keypti Kröfluvirkjun á kostnaðarverði
Landsvirkjun geti ráðið við án raf-
magnshækkunar.
Þarna ber því á milli allt að því
500 milljónir króna. Landsvirkjun
nefnir 700 en fjármálaráðuneytið
jafnvel. 1.200. Það liggur því ekki
ennþá fyrir hvort skattgreiðendur
verða að taka á sig beint 1.800 eöa
jafnvel 2.300 milljónir af kostnaðar-
verðiKröflu.
Til samanburðar við þessar stóm
tölur í dæminu um ráðstöfun Kröflu-
virkjunar er að allar tekjur Lands-
virkjunar af rafmagnssölu verða
2.220 milljónir í ár, þar af 1.636 vegna
sölu til almenningsveitna og 584
vegna sölu til stóriðju. Af þessum
tekjum fara raunar 123 milljónir til
þess að borga það rafmagn sem
Kröfluvirkjun selur Landsvirkjun á
árinu.
„1 okkar útreikningum höfum við
miðað við að það verð sem við tökum
Kröfluvirkjun á borgist með 25 ára
annuitetsláni sem beri 6% vexti. Há-
marksverð samkvæmt því er 700—
800 milljónir enda er það jafnframt
skilyrði aö rafmagnsverð hækki ekki
af þessum sökum,” segir Halldór
Jónatansson, forstjóri Lands-
virkjunar.
„Hitt er svo annað mál að eins og
orkubúskap okkar er háttað er
Kröfluvirk jun alveg óþörf. Hún tekur
einfaldlega af okkur þennan 100
milljóna króna markað og í staðinn
sitjum við uppi með ónotaöa orku-
getu í okkar eigin virkjunum,” segir
Halldór.
HERB
Formannskjörið í Alþýðuflokknum:
Ræður landsbyggðin úrslitum?
£ '•>
Næsti
formaöur
BSRB
— sjá bls.29
Krabbadans
ogerótík
— sjá bls. 13
Of/ágt
orkuverö
- sjá bls. 10
Fríhafnir:
Samanburöur
á veröihér
ogerlendis
— sjá bls. 8-9
NúerBorg
hjónunum
borgiö
— sjá bls. 14
Fyratu vfsbendingar um að fsaflingarhðtifl f ralsarans si f nðnd birtast vanjulaga f glugga Rammagarflar-
innar f Hafnarstrœti. Þð kætast bðmin og kaupmennimir an hinn siigafli iaunþegi, nýstaflinn upp úr vark-
falli, andumýjar krftarkortifl sitt. DV-mynd GVA.
Sumir spámenn hafa spáð Jóni Bald-
vini Hannibalssyni 40% atkvæða í for-
mannskjöri Alþýðuflokksins um næstu
helgi og Kjartan standi uppi með sigur-
inn og 60% atkvæða. Um 250 fulltrúar
munu sitja þingið, þar af eru tæplega
50 fulltrúar frá Reykjavík og álíka
margir frá Reykjaneskjördæimi.
„Þaö er landsbyggðin sem ræður
þessu,” sagði einn viðmælandi DV,
verðandi flokksþingsfulltrúi.
Það hefur vakið athygli að Magnús
H. Magnússon, núverandi varaformað-
ur, hefur ekki gefið upp hvorn fram-
bjóðandann hann muni styðja. Jó-
hanna Sigurðardóttir, sem býður sig
fram sem varaformann, eini fram-
bjóðandinn, hefur ekki heldur gefið
upp hvom hún styðji.
„Sterkasta vopn Jóns Baldvins er
hin mikla óánægja sem er í flokknum,”
sagði annar viðmælandi. En Reykja-
víkurliðið í Alþýðuflokknum hefur
löngum átt erfitt uppdráttar — því
verður róðurinn um helgina erfiður.
—ÞG
Húsnæðislánin:
Vonir
bundnarviö
lífeyrissjóöina
— sjá bls. 3
Rushhyggst
skoramörg
mörkgegn
íslendingum
— sjá íþróttir
bls. 16-17