Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1984, Qupperneq 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR13. NOVEMBER1984.
3
Húsnæðislánin:
Vonir bundnar við lífeyrissjóðina
Fjárhagsleg geta Húsnæöisstofn-
unar til aö greiöa húsbyggjendum
lán hefur verið nokkuð bágborin að
undanfömu eins og mörgum er
eflaustkunnugtum.
Fyrir nokkru var ákveöiö að
greiða út lán aö andvirði 174 milljón-
ir króna. Þessi lánsfjárveiting dugöi
til aö greiöa út f jórar lánveitingar og
var reynt að hlaupa undir bagga hjá
þeim sem eru að byggja eða kaupa í
fyrsta sinn. En þessi lánveiting
hrekkur skammt.
,,Síðan hefur ekki verið hægt að
greiða út nein lán. En nú er verið að
reyna að afla fjár með skuldabréfa-
sölu til lifeyrissjóðanna,” segir
Siguröur E. Guðmundsson, for-
stööumaður Húsnæðisstofnunar.
1 lánsfjáráætlun ríkisstjórn-
arinnar var gert ráð fyrir því að líf-
eyrissjóöimir keyptu skuldabréf
fyrir 525 milljónir. Sú hefur ekki
orðið raunin og vantar rúmlega 200
milljónir upp á aðsvo sé.
Nú mun ríkisvaldið ætla að bjóða
lífeyrissjóðunum upp á betri kjör í
þessum kaupum og eru vonir um að
salan glæðist við það.
, ,Það aö líf ey rissjóðirnir hafa ekki
keypt þessi skuldabréf á sinn þátt í
því að viö erum verulega á eftir
áætlun og ég geri mér vonir um að
nú verði fleiri skuldabréf keypt og
fjárhagsleg staða okkar batni,”
segir Siguröur.
,,En em lífeyrissjóðirnir tilbúnir
til aðkaupa skuldabréf af ríkinu?”
„Lífeyrissjóðimir hafa alltaf
keypt af byggingasjóði, fram-
kvæmdasjóði og öðrum fjárfestinga-
lánasjóðum á kjörum sem hafa verið
besthverjusinni.
Nú hefur orðið breyting á því og
fjármálaráðuneytið býður aðeins
upp á 5 prósent vexti ofan á láns-
kjaravísitölu. Sjóðimir geta hins
vegar keypt skuldabréf annars
staðar með 8 prósent vöxtum til
langs tíma. Sjóðirnir hafa þess
vegna ekki verið ginnkeyptir fyrir
þessum skuldabréfakaupum. Þeir
hafa krafist þess að vextirnir verði
7,5 prósent og mér skilst að það sé
verið að vinna að þessum málum í
fj ármálaráðuneytinu.
Þaö kemur ekki til með að standa
á lífeyrissjóöunum ef vextirnir verða
jafnháir eða betri en gerist annars
staðar. Því skyldu þeir vera að
kaupa skuldabréf með 5 prósent
vöxtum þegar þeir lána sjóðfélögum
á 7 prósent vöxtum?” segir Pétur
Blöndal, formaður stjórnar Lands-
sambands lífeyrissjóða. -APH.
Útsala á
demöntum
oggulli
Nýstárleg útsala stendur nú yfir á
Hverfisgötu númer 49. Þar eru seldir
gullskartgripir, úr og klukkur með 30%
afslætti.
Ástæöa þessa er sú að nýlega urðu
eigendaskipti á skartgripaverslun
Jóhannesar Norðfjörö sem starfrækt
hefur verið í 82 ár. Verslunina keypti
hlutafélagiðE.G.G.
„Við ætlum að breyta rekstrarfyrir-
komulaginu og því erum við nú með
þessa útsölu á gulli, demöntum, úrum
og klukkum,” sagði Grétar Bergmann,
einn hinna nýju eigenda. „Við verðum
eingöngu með postulínsvörur, silfur og
fleira í þeim dúr í framtíðinni, en eng-
an gullvarning né klukkur. Því var
nauðsynlegt aö rýma til á þennan
máta.”
Utsalan hófst í gærmorgun. Sagði
Grétar aö fólk hefði sýnt þessu nýmæli
mikinn áhuga og þarna hefðu farið
fram „hörkuviöskipti”, eins og hann
orðaði það.
-JSS.
Um 50.000
hafaséð
Dalalíf
Um 50.000 manns hafa nú séð kvik-
myndina Dalalíf. Myndin hefur verið
sýnd víða um land við frábærar undir-
tektir að því er segir í frétt frá aöstand-
endum hennar. Sýningar eru nú að
hef jast á Suður- og Austurlandi.
Næsta verkefni hjá Nýju lífi sf„ sem
framleiðir Dalalíf, er kvikmyndin
Skammdegi sem tekin var í febrúar og
mars sl. vestur í Arnarfirði. Hún
verður frumsýnd snemma á næsta ári.
-JSS.
Sumarmynda-
keppni
lokið
Vinningshöfum í sumarmynda-
keppni DV hafa nú verið afhent
verðlaun og keppnin því formlega til
lykta leidd. Gífurlegur fjöldi mynda .
barst. Þátttakendur voru um 1500 og
myndimar enn fleiri því sumir sendu
bæði inn svart/hvítar myndir og lit-
myndir. Þær myndir sem ekki hlutu
verðlaun hafa nú verið sendar eig-
endum og vill DV ítreka þakklæti til
þeirra fyrir þátttökuna.
Við lokaflokkun myndanna kom í
ljós að vegna tilfærslna hér á ritstjórn
DV, lentu 200 til 300 myndir með af-
gangspappír sem fluttur var á sorp-
haugana í Gufunesi. Sem betur fer
sendu þátttakendur ekki filmur með
myndum sínum þannig að væntanlega
má bæta skaðann. DV harmar þessi
mistök og biður þá afsökunar sem f yrir
þessu urðu. Blaöið mun að sjálfsögöu
verða þeim sem þess óska innan hand-
ar um nýja kópíeringu.
Tmustþjónustu
ímtuguúr
Þaö er meö sérstakri ánægju að Iðnaðarbankinn í Hafnarfirði minnist
í dag tuttugu ára afmælis.
Saga okkar í Hafnarfirði er saga tuttugu ára þjónustu og ánægjulegs
samstarfs við Hafnfirðinga. Þetta er einnig saga tuttugu ára þátttöku
í uppbyggingu hafnfirsks atvinnulífs.
Af þessari þátttöku erum við stolt — og horfum fram á við, — full bjartsýni.
í dag bjóðum við Hafnfirðinga og aðra velkomna í heimsókn til okkar,
halda upp á daginn með okkur og þiggja kaffiveitingar.