Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1984, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1984, Page 4
4 DV. ÞRIÐJUDAGUR13. NÓVEMBER1984. Skipstjórinn á Bravó spilar „Cherry Pink” í Klettshelli. - DV-myndlr: Bj. Bj. VESTMANNAEYJAR EKKIAÐEINS FYRIR FUGLASKODARA Ferðaskrifstofa Vestmannaeyja og Flugleiðir kynna Eyjareisu Vestmannaeyjar bjóöa landsmenn velkomna í Eyjareisu, segir í auglýs- ingunni. DV skrapp í slíka reisu iiér á dögunum. Innifaliö í Eyjareisu var .flug fram og til baka til Vestmanna- eyja frá Reykjavík, gisting í tvær næt- ur á Hótel Gestgjafanum, nýju og glæsilegu hóteli, aögöngumiöi á Myllu- hól, ölstofu sem nýlega var opnuð í Vestmannaeyjum og kvöldverður á Skansinum, skemmtistaö sem er eng- inn eftirbátur skemmtistaöa höfuö- borgarinnar. Veröiö fyrir ÖU herleg- heitin — krónur 3.500. Flugið meö Flugleiöum tók aðeins 20 mínútur svo varla tók því aö fara úr yfirhöfninni í flugvéUnni því viö vorum ekki fyrr komin í loftið en aö tUkynnt var um lendingu í Vestmannaeyjum. Flugstööin í Eyjum er ný og glæsileg, tekin í notkun áriö 1980. Þar er varla hægt annaö en aö fá smáminnimattar- kennd ef maöur ber hana saman viö flugstöðina okkar í Reykjavík, gamla og hrörlega, enda er hún frá því í seinni heimsstyrjöld. Okkur var tjáö á flugveUinum aö ástandiö í flugmálum heföi veriö frekar slæmt í sumar vegna þoku og oft ekki hægt að fljúga. En aö sögn gerir þaö þó ekkert tU því aUtaf er hægt aö komast heim meö Herjólfi ef í hart fer. Flugleiöir fljúga tU Vest- mannaeyja tvisvar á dag aUa daga vikunnarnema sunnudaga. Þaö er Ferðaskrifstofa Vestmanna- eyja sem skipuleggur Eyjareisur í samvinnu við Flugleiðir. Margt er hægt að aðhafast á slíku ferðalagi fyrir utan þaö sem innifaUð er í Eyjareisu- pakkanum. Ferðaskrifstofan er mönn- um innan handar með skoðunarferöir um og umhverfis Heimaey undir hand- leiðslu kunnugra leiösögumanna. Snör- uöu DV menn sér aö sjálfsögöu í skoð- unarferð um eyna. Keyrt var upp aö eldstöðvunum og um bæinn. Víöa mátti sjá húsin standa hálf upp úr hrauninu. Þaö viröist ótrúlegt aö þarna hafi allt veriö á kafi í ösku og vikri fyrir nokkr- umárum. Fleira er hægt að gera sér til dægra- styttingar í Eyjunvt.d. aö heimsækja Náttúrugripasafn Vestmannaeyja sem stóö fyrir fyrsta bankaráninu á ls- 1 skoðunarferð um Heimaey. Jörðin var sums staðar ylvolg og engum varð kalt á tánum. Á Mylluhóli var framreiddur MyUu-extra bjór. landi. Þannig var mál meö vexti aö rafmagnið fór af fiskakerunum þegar gosið hófst og fiskarnir voru í lífs- hættu. Var þá „brotist” inn í bankann og þaöan numin á brott lítil rafstöö til aö bjarga lífi fiskanna. Safniö státar einnig af stóru og miklu fuglasafni, m.a. dökkri langvíu, þeirri einu sinn- ar tegundar í heiminum aö sögn Friö- riks Jessonar, umsjónarmanns safns- ins. Þarna kennir líka ýmissa ann- arra grasa, m.a. þaö eina sem til er af Jólni, eyjunni sem kom upp viö hlið Surtseyjar á sínurn tíma en hvarf aftur í hafiö. Þá er á safninu Svarta ekkjan, kóngulóin baneitraða, sporödreki einn vígalegur, eðlur, leöurblökur og önnur áh'ka ógeðsleg kvikindi sem gaman er aö horfast í augu viö uppstoppuð. Skipstjórinn spilaði á trompet í Klettshelli Þegar komiö er niöur á höfnina á Heimaey blasir viö skilti sem á stend- ur „Bravo — boat trips”. Þeir sem skildu ensku voru ekki lengi að átta sig. Þarna var hægt að fara í skoðunar- ferö á báti. Fyrst var siglt út í Kletts- helli. Þar tók skipstjórinn fram trornp- et og spilaði „Cherry Pink” af mikiUi sniUi. Hljómburöurinn í heUinum var slíkur aö orö fá vart lýst. Því næst var siglt umhverfis Heimaey og vissi leið- sögumaöurinn nafniö á hverjum ein- asta steini sem stóö upp úr sjónum og hverri einustu holu sem var sýnileg í klettunum, — afar fróöleg ferð og hin , besta skemmtun. Sem sé, það ætti engum aö leiöast í Eyjareisu. Ekkert skorti á að Vest- mannaeyjar uppfyUtu þær kröfur sem gerðar eru tU feröamannastaöar. Feröalög tU Vestmannaeyja eru ekki lengur aöeins fýrir fuglaskoöara sem vilja skríöa um þúfur og kUfra í klett- um í hnébuxum og meö kíki um hálsinn heldur einnig fyrir þá sem vUja sletta úr klaufunum yfir eina helgi í Eyja- reisu. í dag mælir Dagfari_____________I dag mælir Dagfari____________í dag mælir Dagfari KRATAR MUNU BERJAST Ná er ljóst að átök veröa við for- mannskjör á flokksþingi krata um næstu helgi. Jón Baldvin hefur varp- að stríðshanskanum og hyggst steypa Kjartani af formannsstóU og taka þar sjálfur sæti. Kjartan segist hins vegar munu berjast ótrauður fyrir endurkjöri og engin ástæða tU að efast um að hann standi við þau orö. Þessu var svolítið öðruvísi farið þegar Kjartan Jóhannsson bolaði Benedikt Gröndal úr stöðu for- manns. Þá fór Kjartan með veggjum meðan hann var að afla framboði sínu fylgis. Lét Benedikt ekki vita hvað til stóð, en ræddi við menn á síð- kvöldum i síma og bað þá styðja sig. Benedikt Gröndal var grunlaus um þetta athæfi Kjartans og taldi sig öruggan um endurkjör án mótfram- boðs. Raunar frétti Benedikt Grön- dal það fyrst úr blöðunum að Kjartan ætiaði í framboð. Fannst Benedikt þetta næsta ótrúleg frétt tU að byrja með, en varð síðan að gleypa þann stóra bita. Um tíma leit út fyrir harða kosningabaráttu þeirra tveggja. Þá dró Benedikt framboö sitt til baka. Kjartan var kosinn og þakkaði hann Benedikt mjög fyrir drengskap og flokkshollustu. Jón Baldvin sýndi þá sjálfsögðu háttvisi að tilkynna Kjartani fyrst- um manna að hann hygðist bjóöa sig fram gegn honum. Veröur hann því ekki sakaður um sama undirferii og Kjartan sýndi Benedikt á sínum tima. En Jón Baldvin veröur Kjart- ani skeinuhættur andstæðingur viö baráttuna um formannskjörlð og hér skaí engu spáð um úrslit. Jóhanna Sigurðardóttir býður sig fram til varaformanns með Jóni líkt og Ferr- aro með Mondale fyrir vestan. En Kjartan er nú enginn Reagan svo samlikingin nær ekki lengra. Jón Baldvm er greindur málafyigju- maður sem hefur tamið sér mjög ákveðinn málflutning i ræðu og riti. Ekki sist virðist hann njóta sin vel i kappræðum í sjónvarpi, en þar eru örlög stjórnmálamanna mjög farin að ráðast hérlendis sem á öðrum Vesturlöndum. 4uk þess er hann hæfilega yfirlætislegur tU að almenn- ingur telji vist að hér fari maður sem hafi bein í nefinu og taki engum vettl- ingatökum á málum. Hins vegar er Jón Baldvin sagður mjög einráður og á raunar ekki langt aö sækja þaö. Hann er þvi ekki maður sem hefur safnað i kringum sig hópi náinna samstarfsmanna sem einhvers mega sin i flokknum því slikir vUja vera með i ráðum. Jón Baidvin verð- ur frekar að treysta á hinn almenna krata á flokksþinginu, ef svo má að orði komast. Kjartan Jóhannsson telur sig eiga mikU itök þar sem er gamla Hafnar- fjarðargengið sem lengi var uppi- staðan í veldi Alþýðuflokksins. En þetta Hafnarfjarðarfylgi er ekki eins sterkt og á dögum EmUs og félaga og nægir ekki lengur tU að tryggja for- manni öruggt endurkjör. Kjartan hefur á margan hátt reynst vel sem stjórnmálamaður, en kvartað hefur verið undan því að hann hafi fjar- lægst hinn aimenna flokksmann og upphefö formanns og ráðherraemb- ættis stigið honum tU höfuðs á sínum tíma, enda ekki langt aö fara. En víst á Kjartan trygga fylgismenn sem munu berjast hart fyrir endurkjörl hans. Hvernig sem þessar kosningar fara getur veriö, að flokksþingið um næstu helgi leysist upp í harðvítugan slag sem gangi af Alþýðuflokknum dauðum. Fari svo geta kratar snúið sér að deUum um hvort formanns- slagurinn hafi gengið af flokknum dauðum eða hvort flokksþingið hafi aðeins verið að veita dauðum flokki nábjargirnar. Dagfari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.