Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1984, Side 6
DV. ÞRIÐJUDAGUR13. NÖVEMBER1984.
Utlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Thatcher hótar strangari lög
um eftir kolaróstumar
Æ fleiri kolanámumenn snúa aftur til starfa úr 8 mánaða verkfalli en örvænting verkfallsmanna
brýst út í of beldisaðgerðum
Bretland kann að leiða í gildi ný lög
til þess að spoma gegn ofbeldinu sem
brotist hefur út í kolaverkfalbnu.
Lét Thatcher forsætisráðherra þetta
á sér skilja í gærkvöldi eftir
róstusaman dag þar sem verkfalls-
verðir vörpuðu stálboltum og íkveikju-
sprengjum að lögreglu.
Verkfallsverðir ætluðu sér að
stemma stigu viö því að æ fleiri tækju
að nýju til starfa í kolanámunum
í Yorkshire. I gær höfðu 1900 náma-
menn, sem áður voru í verkfalli, hafið
störf aö nýju. — Var það mestur f jöldi,
sem tók upp starf aftur á einum degi,
síðan kolaverkfallið hófst fyrir átta
mánuöum.
Thatcher sagð í borgarstjóraveislu í
London í gær: „Ofbeldiö hefur risiö
upp aftur í koladeilunni vegna þess aö
leiðtogar kolanámumanna svífast
einskis til að halda áfram vinnu-
stöövuninni. En ofbeldið mun ekki
sigra. Lögregla og dómstólar munu
ekki láta kúga sig. Vanti réttarkerfinu
umboö til þess að halda uppi lögum og
reglu í frjálsu samfélagi og nauðsyn-
legri vemd minnimáttar gegn hinum
sterkari, þá munum við veita þeim það
semmeöþarf.”
Boðaði hún aö fyrir árslok mundi
liggja fyrir nýtt lagafrumvarp um
breytingar varöandi reglur um hegðan
á almannafæri.
Um 30 lögreglumenn og sex verk-
fallsverðir særðust í róstunum í Suður-
Yorkshire í gær. 30 verkfallsverðir
voru handteknir eftir innbrot í versl-
anir, gripdeildir, spjöll á strætum og
uppsetningu vegatálma.
Arthur Scargill, leiðtogi náma-
manna, sakaði lögregluna að hafa átt
upptökin.
Af 181 þúsund kolanámumönnum
landsins eru nú 57 þúsund aö störfum.
56 af 174 kolanámum, sem eru í rekstri,
skila af sér um 500 þúsund málestum á
hverri viku. — Um 4000 námamenn
hafa snúiö aftur til starfa á síðustu
tveim vikum og er- búist við því að
miklu fleiri fylgi fordæmi þeirra fyrir
næsta mánudag til þess að ná jólabón-
usnum.
Róstusamt var í Yorkshire í gær þegar verkfallsverðir veltu við bifreiðum og kveiktu í þeim, brutust inn í verslanir
og vörpuðu íkveikjuspreng jum að lögreglu.
Æ fleiri námamenn snúa nú aftur til starfa eftir átta mánaða verkfall í kola
námum Breta.
Herútboð í Nicaragua
Varnarmálaráðuneyti Nicaragua
hefur skipaö her landsins að vera í við-
bragðsstöðu og einn foringja sandin-
ista segir að landsmenn þurfi aö her-
væðast vegna hættunnar á innrás frá
Bandaríkjunum.
Diplómatar gefa þó í skyn að þetta
kunni eins að vera gert í pólitísku skyni
frekar en af hemaðarlegri nauösyn.
Þetta ber að í sömu mund sem árs-
fundur samtaka Ameríkuríkja (OAS)
hófst í Brasilíu en þar ber hæst í
umræðum vaxandi spennu milli
Nicaragua og Bandarikjanna þótt þaö
mál hafi verið tekið út af dagskrá fund-
arins.
Nicaragua hefur æ ofan í æ sakaö
Bandaríkin um aö ala á innrásar-
áætlunum. Síðast í gær fullyrti stjómin í
Managua aö 25 bandarísk herskip
stefndu að ströndum landsins meö
fimmtán þúsund manna herliö innan-
borös.
I Washington er því haldið fram að
herskipasiglingar á þessum slóðum
séu hluti af flotaæfingum á Atlantshafi
og Kyrrahafi og þar á meöal í Fonseca-
flóa en innrás væri alls ekki markmiðið
og ekkert slíkt í undirbúningi.
I höfuðborginni Managua var um að
iitast í gær líkt og striðsástand rikti.
Sovéskir T-55 skriðdrekar skröltu þar
um stræti, grafnar vom skotgrafir og
hermenn unnu að því að koma fyrir
fallbyssum undir felunetum.
Leticia Herrera, einn foringja
sandinista, sagði að íbúar Nicaragua
væru reiðurbúnir að fórna sínum
síðasta blóðdropa til varna landsins.
„Það vamarliö mun mynda
orjúfanlegan vegg gegn árásarstefnu
heimsvaldasinna.”
Sagði hann að yfir 95% þeirra, sem
náð hefðu 14 ára aldri, hefðu gefið sig
fram við skrifstofur sandinista og
boðið sig til herþjálfunar.
„Á sömu stundu sem einn Gringói
stígur fæti sínum á okkar strendur
munu landsmenn komnir í vamar-
stööur,” sagðiHerrera.
Sandinistar segja hvern landsmann
reiðubúlnn til varnar ef Bandaríkin
reyniinnrás.
STÓRIÐJA í FÍKNIEFNAFRAMLEIÐSLU
— 5000 kotbændur í nauðungarvinnu við framleiðslu á maríjúana
Mexikanska lögreglan hefur iagt
hald á meira en átta þúsund lestir af
maríjúana eftir að hún fann af-
skekkta fíkniefnaverksmiðju í eyði-
mörkinni. Þar fann hún um leið um
5000 smábændur sem neyddir höfðu
verið til starfa í verksmiðjunni.
Atta menn voru handteknir fyrir
að reka verksmiðjuna og vom sjö
þeirra úr öryggislögreglu Mexíkó.
Kotungamir sættu einskonar
þrælavist við fíkniefnaframleiðsl-
una. Sögöust þeir hafa verið blekktir
til starfa en síðan meinaö að snúa
aftur heim til sín. Bjuggu þeir við
þröngan kost og voru iila vannæröir
þegar aö var komiö.
1 þessari herferð fann lögreglan
akra, þurrkunar- og pökkunarverk-
smiðju og bílastæöi fyrir þrjátíu
vörubíla. Þessi athafnasemi var
dreifð á nokkra búgarða í Chihuahua
í Norður-Mexíkó.
h
/#
L /.-1 Ums Guðm Pétu ijón: undur rsson
Vetursnemma áferðíSíberíu
Vetrarsnjórinn er óvænt snemma á
ferðinni í Síberíu og frosthörkur. Tutt-
ugu timburflutningaprammar hafa
setið fastir í tvær vikur í þykkum ís á
ánni Ket í vesturhluta Síberíu.
Þyrlur hafa þurft að flytja nauösynj-
ar til áhafna prammanna, en dráttar-
bátar hafa nú náö prömmunum laus-
um.
Sovéska blaðiö Isvestia greinir frá
því að í norðausturhluta Síberíu hafi
fljótaprammar setiö fastir í ís í enn
fleiri vikur á ánni Lena, sem rennur
norður í Ishafiö.
Marokko
sagdisigúr
Einingarsam-
tökumAfnku
Marokkó yfirgaf fund einingarsam-
taka Afríkuríkja í gærkvöldi þegar
skæruliðum Polisario, andstæðingum
Marokkóstjórnar, var leyfð seta á
fundinum.
Polisario hefur barist við Marokkó-
st jórn um yfirráö Vestur-Sahara, síðan
Spánverjar slepptu tökum á nýlend-
unni1976.
Marokkó lýsti því yfir að þaö segði
sig endanlega úr samtökunum. Hefur
sh'kt ekki gerst áður í samtökunum þau
21 ár sem þau hafa verið við lýði.