Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1984, Qupperneq 7
DV. ÞRIÐJ UDAGUR13. NOVEMBER1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
sömuleiðis er á rangri braut. Er það
fjarskiptahnötturinn Westar. Er búist
við því að skutlan verði í námunda við
gervihnöttinn á morgun. — Geimfar-
amir fimm um borð í „Discovery”
eiga að vera átta daga alls í þessari
ferð, sem brýtur blað í sögu geimferð-
anna með björgun hinna dýru gervi-
hnatta.
Ný tækni
í hjarta-
lækningu
Nýtt blóðþynningarlyf var meðal
nýmæla sem athygli vakti á ársþingi
bandarísku hjartaverndarsamtak-
anna í gær. Lyf þetta er gefið við
blóðtappa en hefur þann kost fram
yfir önnur blóðþynningarefni að ekki
er hætt við að sjúklingi blæði út þótt
opna þurfi honum æð.
Einnig var á þinginu kynnt nýtt
lasergeislatæki, sem nota má til þess
að eyða kalkandi efni i kransæðum
án hættu á að brenna aðra vefi.
Utanríkisstefnan
verdur óbreytt
— sagði Rajiv Gandhi sem f etar
„Það er rúm fyrir alla trúflokka í Indlandl,” seglr Rajiv Gandhi, en þessi hópur sikka bíður i flóttamannabúðum
þar sem hann leitaði hslis undan ofsóknum hindúa.
Eftir að geimförunum í skutlunni
.JDiscovery" tókst í gær að bjarga um
borð gervihnetti, sem fyrr á þessu ári
hafði verið sendur á loft en hafnað á
skakkri braut, reyna þeir í dag að
bjarga öðrum spútnik.
Þeir Joe Allen og Dale Gardner
höfðu þó lent í basii við gervihnöttinn
Palapa þegar Allen tókst ekki aö koma
festingum á gervihnöttinn til þess að
kræk ja griparmi skutlunnar í hann. En
í þyngdarleysinu tókst honum aö halda
við Palapa á meðan Gardner festi
gervihnöttinn í lestarrými skutlunnar.
Núna á sjötta degi ferðarinnar halda
geimfararnir af stað til þess að freista
þess að bjarga öðrum gervihnetti, sem
BJÖRGUÐU GERVI-
HNETTINUM UM
BORD í SKUTLUNA
OG LEITA NÚ AÐ
ÖDRUM í GEIMNUM
í fótspor móður sinnar
Rajiv Gandhi var í gær kjörinn for-
seti Kongressflokksins. Fyrsta verk
hans var að skipa tvo nánustu sam-
starfsmenn sína í lykilstöður. Geröi
hann Arun Singh að tengilið sinum við
þingið og Arun Nehru fékk fyrra starf
Rajivs sem einn af fimm fram-
kvæmdastjórum flokksins.
Búast má við að þessir tveir menn
muni ráða miklu í ríkisstjórn Rajivs.
Skipan þeirra gefur til kynna að Rajiv
hyggist halda við þeim sið móður sinn-
ar að safna völdum í f orsætisráðuneyt-
inu en láta hin ráðuneytin aðeins um
framkvæmdaatriðin.
1 sjónvarpsræðu í gærkvöldi gaf
Rajiv loks einhverjar ábendingar um
áhersluatriöi stjómarstefnu sinnar.
Hann sagöi aö stjórn sín mundi halda
sig á vegi sósíalisma og ríkisstýrös
efnahagslifs. Lagði hann áherslu á
hagkvæmni í rikisbúskapnum. — „Við
munum ekki skjóta skjólshúsi yfir hina
lötu, spilltu eða duglausu,” sagöi hann.
„Utanríkisstefnan verður óbreytt,”
sagði Rajiv og kvað Indverja meta
mikils vináttutengslin viö Sovétríkin
en sambandiö við Bandaríkin væri
margþætt.
I tilvísun til óeirðanna undanfariö og
aukinna áhrifa trúarhópa í indverskum
stjómmálum sagöi Rajiv að lands-
stjórn án tillits til trúarbragða hlyti að
vera grundvöllur indversks þjóðlífs.
Lagði hann þunga áherslu á að allir
trúarhópar rúmuðust á Indlandi.
„Saman munum við byggja Indland,
sem er kyndill friöar og tillitssemi,”
sagði Rajiv.
Helmingur
farinn úr
sendiráðinu
Eftir nokkurra vikna þrengsli og
óþægindi hefur hluti þeirra 150 Austur-
Þjóðverja, sem leitað höfðu hælis í
vestur-þýska sendiráðinu í Prag, nú
gefist upp í tilraunum sínum til að fá
að flytja til Vesturlanda og snúið aftur
til heimila sinna úr sendiráðinu.
Hefur um heimingur þeirra
tekið saman föggur sínar á síðustu
dögum, yfirgefið sendiráðið og tekið
næstu lest heim. — Milli tuttugu
og þrjátiu fóm úr sendiráðinu í gær.
Sumir höföu þá dvalið í sex vikur í
þrengslunum í sendiráðinu. (Mörg
börn vom í hópnum.)
Austur-þýsk yfirvöld höfðu heitið
fólkinu að það þyrfti ekki aö óttast lög-
sókn eða ofsóknir af neinu tagi þótt þaö
sneriheim.
Þeir, sem enn sitja eftir í sendi-
ráðinu, ætla að þrauka enn og gera sér
vonir um að fá tryggingu fyrir vega-
bréfsáritun og leyfi til þess aö flytjast
úr landi. Stjórnin í Austur-Berlín hefur
til þessa ekki viljaö lof a neinu slíku.
BUNAÐARBANKI
ÍSLANDS
Heiðraði v/iðskiptauinur.
Nýja bókin okkar heitir á einföldu íslenzku máli
SPARIBÓK
með sérvöxtum
Hún á að fullnægja þörfum þeirra, sem vilja hafa
vaðið fyrir neðan sig. Þetta er bók sem hentar
þeim, sem ætla að spara til langs tíma, en vilja
þó hafa aðgang að fé sínu fyrirvaralaust.
Þessi bók gefur hærri ávöxtun því lengur sem
innstæðan er óhreyfð eða allt að 2Q% á ári.
í bókina er skráð innstæða oq vextir. hér þarf
ekki stofnskírteini eða vfirlit. Hún kemur
samt ekki í stað gömlu góðu almennu sparisjóðs-
bókarinnar, en sameinar ýmsa kosti hennar
annars vegar og bundinna reikninga hins vegar.
Þetta er einfalt kerfi og vel skiljanlegt og
þarfnast ekki upphrópana.
Verið velkomin í afgreiðslustaði bankans til
að kynna ykkur þessa nýju sparibók og aðrar
sparnaðarleiðir Búnaðarbankans. Við teljum,
að bankinn geti nú sinnt hinum margvíslegu
þörfum viðskiptamanna með beztu ávöxtun
sparifjár.
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS