Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1984, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1984, Síða 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR13. NOVEMBER1984. 11 Takið verkfallsréttinn af opinberum starfsmönnum Opinberir starfsmenn ná engum kjarabótum fram með verkföllum. Opinberir starfsmenn hafa léleg laun. Með verkföllum ná þeir aðeins fram sömu iaunahækkunum og aðrir þegnar þjóðfélagsins — i prósentum talið. Launin eru i raun jafnléleg áframogáður. Opinberir starfsmenn munu aldrei ná svipuðum kjörum og sambæri- legar stéttir í störfum hjá einkafyrir- tæk jum. Sist af öllu með verkf öllum. Vandi opinberra starfsmanna með launakjörin liggur ekki í því að þeir fengu fyrst verkfallsrétt um miðjan síðasta áratug. Vandi þeirra liggur í eðli vinnuveitandans. Og á meðan vinnuveitandinn — hið opinbera — breytist ekkert þá gagna verkföll ekkert. Risaeð/a Rekstur hins opinbera minnir á risaeðlu. Hún slettist áfram, yfir- komin af likamsþunga. Hún hirðir um magn en ekki gæði. Viðhald hennar byggist á því að fá meira og meira. Þannig er hið opinpera. Sjónvarpið auglýsir eftir upptökustjóra í stúdíói. Starfið krefst sköpunarhæfileika, næmrar tilfinningar, myndskyns og stjómunarhæfileika. En i aug- lýsingunni er krafist menntunar raf- eindavirkja. Sjónvarpið er eitt af ofvöxnum líf- færum risaeðlunnar. Þar starfa magnvana frumur — rafeinda- virkjar og símvirkjar í tugatali, en minna af hugmyndaríku fólki með sköpunargetu. Bifreiöaeftirlitið er annað dæmi um illa farið liffæri risaeölunnar. Þar greiðir hið opinbera einhver lægstu laun sem þekkjast. Hlutverk Bifreiðaeftirlitsins er tilgangsh'tið, leifar úreltrar alræðishugsunar. Arangurinn verður sá að illa launað fólkið sinnir starfinu af skeytingar- leysi, án þjónustuhugsunar. Það hefur að engu að keppa. En þegar starfsfólk Bifreiöaeftirlitsins er ekki í vinnunni þá kemur í ljós aö þetta er ÓLAFUR HAUKSSON allt ágætisfólk. Ágætiö fær bara ekki notið sín gagnvart viöskiptavinun- um. Heilaskemmdir Mesta mein risaeðlunnar er það að hún er heilaskemmd. Hið opinbera slettist áfram eins og risaeölan, óaf- vitandi um tilganginn. Til hvers rekur hið opinbera sjón- varp? Að hverju hafa yfirmenn og starfsfólk sjónvarpsins að keppa? Hvaö hvetur fólkið til dáða? Hvað veitir því samkeppni? Og hvernig er tekið á nýjum ferskum hug- myndum? Til hvers er Bifreiðaeftirlit? Eru ekki verkstæði á landinu? Hversu mörg óhöpp verða í umferðinni vegna ófullnægjandi búnaöar öku- tækja? Er hinn ófullnægjandi búnaður ekki frekar afleiðing af sölu- skatti á viögerðum og of háum tollum á varahlutum? Heilaskemmd hins opinbera er i ráðuneytunum og á Alþingi. Hún er hjá yfirmönnum opinberra stofnana. Þessi liössöfnuður veður áfram í þeirri villu að hið opinbera verði að hafa sífellt meiri afskipti af lífi landsmanna. Heilaskemmdin heldur fast í allt sem hið opinbera hefur einu sinni komið höndum yfir. Heila- skemmdin spyr um magn en ekki gæði. Hún spyr um flokksskírteini en ekki hæfileika. Yfirmenn opinberra stofnana eiga sér aðeins eitt markmið: að stækka sína deild. Fjölga starfsmönnum, stækka húsnæðið, auka á „mikil- vægi” sitt. Þeir þurfa engum að svara frekar en þeir vilja. Þeir bera enga ábyrgð. Þeir hafa engan yfir- mann sem krefst hagkvæmni. Þeir hafa enga samkeppni sem hvetur þá til að gera betur en keppinauturinn. Lágu launin Þetta óeðli hins opinbera veldur lágu laununum. Arangur af starfi opinberra stofnana skiptir sjaldnast máli. Því skiptir engu máli þótt meðalmenn ráðist á lágum launum til starfa þar. Kennarar kvarta mest allra opin- berra starfsmanna undan lágum launum. Á einum og hálfum áratug hefur þeim fjölgað nær tvöfalt í land- inu á meðan nemendum hefur fjölg- að um 6%. Alþingi, ráðuneyti og skólamenn hafa þanið kennslubáknið út. Meira magn, en hvar eru gæðin? Þreyttir og illa launaðir kennarar gera engum gagn. Hinir heilaskemmdu hjá því opin- bera vinna að því nótt sem nýtan dag að þynna út ferlíkið. Peningarnir Ul skiptanna eru ekkert meiri en áður. Samt hafa aldrei starfað jafnmargir hjá þvi opinbera og nú. Þeir eru fleiri, en fá bara minni laun hver og einn. Aðrar leiðir Verkföll breyta ekki eðli hins opin- bera. Þess vegna hafa opinberir starfsmenn ekkert með verkf allsrétt að gera. Þar að auki eru opinberar stofrianir flestar hverjar einokunar- stofnanir. Stöövun þeirra i verkfalli felst helst í því að heilbrigt atvinnulíf í landinu fær ekki einhverja stimpla á pappira. An stimplanna fær enginn að hreyfa sig. Þetta er óréttlátt gagnvart heilbrigðu atvinnulíf i. Opinberir starfsmenn eru betur settir með rækilegri naflaskoðun. Hver og einn einasti opinber starfs- maöur ætti að kryfja starf sitt til mergjar — einnig alþingismenn. Er min þörf? Hvað gerist ef stofnunin er minnkuð til helminga eða lögð niður ? Hver annar getur gert þetta betur og hagkvæmar? Meö því að minnka rikisbáknið geta opinberir starfsmenn fyrst látið sig dreyma um betri kjör. Og það besta er kannski að þeir opinberir starfsmenn sem mundu hætta hjá þvi opinbera fengju allflestir betri laun hjá einkaaðilum. Ólafur Hauksson. RITSTJÓRI áj& „Opínberír starfsmenn munu aldrei ná svipuðum kjörum og sambærilegar stéttir í störfum hjá einkafyrirtækjum. Síst af öllu með verkföllum.” Af kjaramálum og efnahagsmálum g|| „Efnahagsvandræði íslensku þjóðarinnar ™ liggja ekki í of háu kaupi opinberra starfs- manna, heidur öðru.” Verkfall opinberra starfsmanna undanfamar vikur hefir haft mikil áhrif á þjóðfélagið. Þaö er óvenju- legt hversu verkfallið olli strax í upphafi miklum hugaræsingi og óvild meðal ýmissa í stjómar- búðunum i garð verkfallsmanna. Sérstaka athygli vek ja viðbrögð f jár- málaráðherrans er hann ákveður, þvert á ráðleggingar sérfróðs manns um túlkun á ákvæðum laga um rétt- indi og skyldur starfsmanna ríkisins varöandi fyrirframgreiðslu launa eins og ríkisstarfsmönnum ber, að greiða ekki laun nema fram aö boðuðu verkfalli. Undur er að nokkur ábyrgur maður með heilbrígða skyn- semi skuli láta sér slíkt detta i hug. Þeir sem minnst mega sin í þessu þjóðfélagi em margir hverjir innan raða BSRB-fólks og yfirleitt hefir þessi ákvörðun fjármálaráðherrans komið mörgum í koll. Frádrátt á launum heföi mátt lelðrétta síðar og mun slíkt vera viðtekin venja þegar villur eru á launaútreikningi viöast hvar. Þessi ákvörðun lýsir vel því raunverulega hugarþeli ráðherrans til smælingjanna í þessu þjóðfélagi og ættu ríkisstarfsmenn þeir sem hér hafa orðið fyrir baröinu á gjörræðis- ákvörðun ráðherrans aö minnast þessa sérstaklega fyrir næstkomandi borgarstjómarkosningar. Hótanir fjármá/aráðherra 1 kvöldfréttum rikisfjölmiöla 31. okt. kveður fjármálaráðherra dýr- tíðina rjúka upp um allt að tvöfalda þá prósentutölu sem samið var um til handa BSRB. Aftur vekur furðu þessi yfirlýsing f jármálaráðherrans. Rökstuðningur ráðherrans liggur einkum í þeirri f ullyröingu að g jalda- aukning rikissj%ös vegna þessa samnings muni nema um 400 milljónum á ári og engir fjármunir séu til! Það gleymist hinsvegar að víða eru miklir fjármunir faldir. Efnahagsvandræði íslensku þjóðar- innar liggja ekki i of háu kaupi opin- berra starf smanna, heldur ööru: Hér verða nefnd nokkur dæmi: 1. Ohagkvæm fjárfesting. Fjöl- mörg fyrirtæki fjárfesta í ótrú- legustu og oft einskis nýtum hlutum i þeim tilgangi að þeir f jármunir verði ekki skattlagðir. Hér má t.d. nefna óeðlilegar fjárfestingar oliufélaga i allt of mörgum birgðatönkum og bensínsölum. Veit almenningur og fjármálaráðherrann að mikill hluti birgðatanka er tómur allt árið nema rétt um áramót? Hvað kostar bygging bensínstöðvar? Heyrt hefi ég töluna 30 milljónir nefndar fyrir einameðalstóra. 2. Hindra verður tafarlaust arð- streymi út úr landinu. Islendingar eru vinnufúsir og duglegir en aröurinn af vinnunni hverfur að verulegu leyti út úr landinu. Hér má nefna óeðÚlegar niðurgreiðslur á landbúnaöarvörum sem nema ná- lægt 10% fjárlaga. Þá ber sér- staklega að geta skuldasöfnunar erlendis frá. Um það bil helmingur af erlendum skuldum þjóðarinnar stafar af lánum til fjármögnunar orkuvera. lslendingar sýndu allt að því bamaskap þegar samiö var á sínum tima um raforkusölu til ál- versins í Straumsvík. Þangað rennur nálægt helmingur raforkunnar en tekjur Landsvirkjunar eru um eða jafnvel innan viö 10% af þessum af- glapasamning. Islendingar eru oft einkennilega óhagsýnir. Dæmi þessa Kjallarinn GUÐJÓN JENSSON PÓST AFGREIÐSLUM AÐUR er óþörf fjölbreytni í ýmsum vöru- tegundum. Hvaða gagn er af þegar vöruúrval er þvílíkt að velja má úr t.d. um 20 mismunandi tegundum af klósettpappír? Innkaupsverðið er himinhátt og þess vegna eru nauösynjamar óþarflega dýrar. Víxláhrif launahækkana og verð- lags er eldd nema hálfur sannleikur- inn, það sjáum við af verðlagsþróun- inni síöastliöna 17 mánuöi. Launa- hækkun BSRB þarf ekki að fara sjálfrátt út í verðlagið, viljl til að hindra slfkt og vilji til að leysa efna- hagsvandamálln á raunhæfan hátt eralltsem vantar. Guðjón Jensson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.