Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1984, Qupperneq 26
26
Lýður Guðmundsson loftskeytamaður
lést aðfaranótt sunnudagsins 4.
nóvember. Hann var fæddur 7. júlí 1906
á Bíldudal, Suðurfjaröahreppi í
Vestur-Baröastrandarsýslu, sonur
hjónanna Guðlaugar Jónsdóttur og
Guðmundar Árnasonar. Lýöur útskrif-
aðist úr Loftskeytaskólanum 1924. Arið
1930 hóf Lýður störf hjá Skipaútgerö
ríkisins á varðskipum og síðar strand-
ferðaskipum. Eftirlifandi eiginkona
hans er Guðrún Sigurðardóttir. Þau
eignuðust tvo syni. Otför Lýðs verður
gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30.
Úlafur Byron Guðmundsson lést 5.
nóvember sl. Hann var fæddur í
Reykjavík 6. ágúst 1925, sonur hjón-
anna Guömundar Jóhannssonar og
Bríetar Olafsdóttur. Ölafur var
tvígiftur. Fyrri kona hans var
Auðbjörg Jóhannsdóttir, og eignuðust
þau fjögur börn. Olafur og Auðbjörg
slitu samvistum. Ariö 1977 giftist
Ölafur Sigrúnu Schneider. (Jtför Olafs
verður gerö frá Kristskirkju, Landa-
koti í dag kl. 13.30.
Guðrún Sigurðardóttir andaöist 5.
nóvember á Elli- og hjúkrunarheimil-
inu Grund. Utför hennar hefur farið
fram í kyrrþey samkvæmt ósk hinnar
látnu.
Ársæll Ólafsson frá Mýrarhúsum,
Akranesi, lést 11. nóvember á dvalar-
heimilinu Höfða.
Guðríður Bárðardóttir frá Jórvík,
Álftavatni, andaðist í Sjúkrahúsi
Suðurlands, Selfossi, 10. nóvember.
Guömundur Ásgrímur Björnsson,
Drápuhlíð 48, andaðist á heimili sinu
að morgni 12. nóvember.
Þorleifur Ólafur Guðmundsson frá
Bjarnarhöfn, Grænuhlíð 18, lést 8.
nóvember.
Magnús Kristjánsson rafmagnseftir-
litsmaöur, Laugateigi 5, andaöist i
Landakotsspítala 11. nóvembersl.
Ágústa Ingjaldsdóttlr frá Auösholti,
Nörvasundi 36 Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Langholtskirkju miöviku-
daginn 14. nóvemberkl. 15.
Sigþrúður Guðjónsdóttir, Flókagötu
33, sem lést 10. nóvember sl., verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykja-
vík föstudaginn 16. nóvember kl. 13.30.
Sjöfn Ingadóttir, Þórufelli 6, verður
jarðsungin frá Háteigskirkju miðviku-
daginn 14. nóvember kl. 15.
Sveinn Einarsson veiðistjóri, frá
Miödal, verður jarðsunginn frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn
14. nóvemberkl. 13.30.
Björn Jónsson, Garðaflöt 15 Garöabæ,
verður jarösunginn frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 14. nóvember kl.
13.30.
Ferðalög
Frá Ferðafélagi
íslands
Fyrsta myndakvöld vetrarins verður mið-
vikudaginn 14. nóv. nk. og hefst kl. 20.30 á
Hverfisgötu 105 (Risinu).
Efni:
1. Guðrún Guðvarðardóttir sýnir myndir úr
gönguferðum um Hornstrandir, Djúp, önund-
arf jörð, Dýraf jörð og e.t.v. víðar.
2. Eftir kaffihlé sýnir Guðmundur Jóelsson
myndir úr ferð F.l. siðastliðið sumar en það
var gönguferð frá Borgarfirði eystra til Seyð-
isf jarðar og um Fjarðarheiði til Egilsstaða.
Hér gefst gott tækifæri til þess að kynnast
landinu með augum þess sem f erðast fótgang-
andi.
Aögangseyrir er kr. 50. Frjálsar veitingar í
hléi.
ATH.: Myndasýningin er á Hverfisgötu 105
(Risinu), sem er á horni Snorrabrautar og
Hverfisgötu, vestanvert við gatnamótin. I
anddyri, til hægri, er lyfta.
Allir velkomnú-, félagar og aðrir. Skoðið
landið með þeim sem ferðast á tveim jafn-
fljótum.
Fræðslufundur Hjartaverndar
á 20 ára afmæli
Hjartavemd, landssamtök hjarta- og æða-
vemdarfélaga, er 20 ára um þessar mundir
(stofnuð 25. okt. 1964). I tilefni afmælisins
heldur Hjartavemd fræðslufund fyrir
almennlng um hjarta- og æðasjúkdóma, rann-
sóknir, lækningar og nýjungar laugardaginn
17. nóvember nasstkomandi kl. 14.30 í Domus
Medica.
Sjö fyrirlesarar flytja erindi á fundinum og
á eftir verða umræður og fyrirspumum
svarað.
Dagskráin verður þessi: Dr. Sigurður
Samúelsson prófessor: Þáttur Hjartaveradar
í heilbrlgðisþjónustunnl; Ottó J. Bjömsson
tölfræðingur: RannsóknarferlU Hjarta-
veradar og næstu verkefni; Nikulás Sigfússon
yfirlæknir: Hveralg gengur i baráttunni vlð
hækkaðan blóðþrýstlng?; dr. Guömundur
Þorgeirsson læknir: Dánarorsaklr i hóprann-
sókn Hjartaveradar; Gestur Þorgeirsson
læknir: Nýjungar í lyfjameðferð kranssða-
sjúklinga; dr. Þórður Harðarson prófessor:
Ný tækni við hjartarannsóknlr; dr. Ami
Kristinsson læknir: Um hjartaskurðlæknlng-
arhérálandi.
Snorri Páll Snorrason yfirlæknir stýrir
hringborðsumræðum og tekur við spum-
ingum fundarmanna. öllum er frjáls
aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Kvenfélag Kópavogs
Fundur verður haidinn í kvenfélagi Kópavogs
fimmtudaginn 15. nóvember kl. 20.30 í félags-
heimilinu. Spilað veröur bingó eftir kaffi.
Stjórnin.
Frá Norræna félaginu í
Mosfellssveit
Norræna félagið í Mosfellssveit heldur aðal-
fund sinn í Varmárskóla miðvikudaginn 14.
nóvembernk. oghefsthann kl. 21.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa mun Sig-
hvatur Björgvinsson framkvæmdastjóri
skýra frá nýmælum i ferðamálum Norræna
féiagsins og helstu viðfangsefnum sem á döf-
inni eru hjá félaginu nú og í næstu framtíö.
Kvennadeild Flugbjörgunar-
sveitarinnar
heldur félagsfund miðvikudaginn 14.
nóvember kl. 20.30. Vilborg Harðardóttir
ræðir um 1985, síðasta ár kvennaáratugar SÞ.
DDDDDDDODDDDDDDDODDDDDODDDOODDODDDDDDDDDDDDDD
D D
□
□
□
D
D
D
AÐALFUNDUR
Taflfélags Reykjavíkur 1984
verður haldinn að Grensásvegi 46 mánudaginn 19.
nóvember og hefst hann kl. 20.00.
n Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. önnurmál.
Stjórnin.
D
D
D
D
D
D
O
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
000000000000000000000000000000000000000000000
D
D
D
D
D
D
D
D
D
DV. ÞRIÐJUDAGUR13. NÖVEMBER1984.
í gærkvöldi ______ í gærkvöldi
GÓD VÍSA
1 gær sýndi sjónvarpið m.a. tvö
sýnishom af framleiðslu Breta fyrir
sjónvarp. Afraksturinn var misjafn
að gæðum. Skemmtiþátturinn 1 fullu
fjöri er í besta falli broslegur. Meira
var lagt í leikritið um lífshlaup
Georgs Orwell; Kveikjan að 1984.
Þetta leikrit er haganlega gert, eins
og bresk sjónvarpsverk eru oftast.
Þó er leikrit líklega ekki sérlega vel
falliö til að segja þessa sögu. Höfund-
unum hætti við að dvelja um of við
persónulega hagi skáldsins, oft á
kostnað heildarmyndarinnar. T.d.
vantaði mjög að skerpa myndina af
hreyfingu sósíalista á árum borgara-
styrjaldarinnar á Spáni. Atburðir
þeirra ára mótuöu Orwell ööru frem-
ur. Menn minnast þess e.t.v. að í vor
sýndi sjónvarpið heimildarmyndir
þar sem þetta efni vartíundað ræki-
legar. Hinu má þó ekki gleyma að
góð vísa er víst aldrei of oft kveðin.
1 útvarpsdagskránni var fátt um
fína drætti. Jón Gröndal ræddi um
eftirköstin af verkfallinu í þættinum
Um daginn og veginn. Erindi Jóns
var hressilegt en samherjar hans eru
liklega vandfundnir.
Gísli Kristjánsson.
Grettir Bjömsson tónlistarmaður:
Gott útvarp á morgnana
Það má segja það að eina
tækifærið sem ég hef til að hlusta á
útvarp sé á morgnana. Dagskráin þá
er líka oft ágæt og mest hef ég
gaman af alis konar viðtalsþáttum
þar sem fólk til sjávar og sveita er
tekið tali. Það mætti gjaman vera
meira af slíkum óundirbúnum
þáttum. Fréttaflutningur útvarpsins
í heild er allur mjög vandaður og
skýr en eitt er það atriði í tilkynn-
ingalestri hádegisútvarps sem fer í
taugamar á mér en það er þegar
Gjaldheimtan og aðrar stofnanir eru
að setja fólki afarkosti yfir hádegis-
matnum varðandi vanskil og inn-
heimtuaögerðir. Einnig finnst mér
að mætti vera meira af þáttum í út-
varpsdagskránni fyrir gamalt fólk
sem vafalaust er langstærsti
hlustunarhópur útvarpsins. Ég sest
svo yfirleitt fyrir framan skjáinn um
áttaleytið og horfi svona fram eftir
kvöldi. Þaö eru margir góðir og fjöl-
breyttir þættir í dagskránni, t.d.
voru þættimir um Marco Polo alveg
stórkostlegir. Hins vegar mætti
gjarnan vera meira af tónlistar-
þáttum þar sem ungum tónlistar-
mönnum í námi væri gefinn kostur á
að koma fram, sér til uppörvunar og
öðrum til skemmtunar.
Aðalfundur Samtaka sveitar-
félaga í Vesturlandskjör-
dæmi
verður 16.—17. nóvember 1984 í Hótel Stykkis-
hólmi.
Aætlunarbitreið frá sérleyfi Helga Péturs-
sonar mun fara frá Umferðarmiðstöðinni í
Reykjavik kl. 8.15, frá bæjarskrifstofunum á
Akranesi kl. 10.00 og frá Hótel Borgamesi kl.
10.40 á föstudag og sömu leið til baka strax að
fundi loknum.
Áætlunarflug frá Amarflugi er kl. 15.00 á
föstudegi frá Reykjavík en kl. 16.45 á laugar-
degi frá Stykkishólmi. Möguleiki erá leiguvél
eða að færa áætlun til, ef næg þátttaka fæst.
Hótel Stykkishólmur býður gistingu og fæði
á kr. 1.200, miöað við að tvéir séu í herbergi.
SSVK munu greiða kvöldverðinn. Æskilegt er
að fulltrúar og gestir panti gistingu hjá hótel-
inuhiðfyrsta.
Oddvitar em minntir á að kjörbréf þurfa
að berast k jörbréfanefnd á fundinum.
Tilkynningar
Námskeið í skyndihjálp
Þriðjudaginn 13. nóv. heldur Reykjavíkur-
deild RKI námskeiö í almennri skyndihjálp í
húsnæði sinu aö Nóatúni 21. Á námskeiðinu
verða kennd meginatriði skyndihjálpar auk
blástursaðferöarinnar og lýkur þvi 21. nóv.
með verkefni sem hægt er að fá metið í fjöl-
brauta-og iðnskólum.
Breytt verð á loðnu
Á f undi Verðlagsráðs sjávarútvegsins þann 5.
nóvember sl. var samþykkt vegna breyttra
aðstæðna aö skiptaverð á loönu til bræðslu
yrði 1D60 kr. hvert tonn frá og með 1. nóvem-
ber til 31. desember 1984. önnur ákvæðl sam-
kvæmt tiikynningu ráðsins nr. 16 era óbreytt.
Fékk fyrst far,
stal svo bílnum
og velti honum
Piltur frá Akureyri slapp með hand-
leggsbrot þegar hann velti bíl sem
hann hafði tekið í óleyfi á bænum
Kálfsskinni á Árskógsströnd aöfara-
nótt laugardags.
Vinnumaður á Kálfsskinni var aö
koma af dansleik í Árskógi um þrjú-
leytiö og tók umræddan pilt upp í að af-
leggjaranum og fór síðan sjálfur heim.
Virðist sem pilturinn hafi beðið átekta
og síðan farið á eftir vinnumanninum
til að ná í bílinn. Ætlun hans var að
komast til Akureyrar en bílferöin varð
þó aðeins nokkrir kílómetrar eða að
bænum Rauðavík. Þar fyrir ofan valt
bíllinn margar veltur og stöðvaðist um
40 metra frá veginum. Hann er gjör-
ónýtur.
Bíllinn er af Datsun gerð, með sól-
lúgu á þakinu, og er taliö að pilturinn
hafi þeyst út um hana í fyrstu veltunni.
Að sögn rannsóknarlögreglunnar á
Akureyri er pilturinn grunaður um
ölvun við akstur.
-JBH/Akureyri.
Kvenfélag Kópavogs
heldur spilakvöld þriðjudaginn 13. nóvember
kl. 20.30 í f élagsheimilinu.
Nefndin.
Opið hús
hjá Verkakvennafélaginu
Framsókn
Verkakvennafélagið Framsókn varð 70 ára
25. okt. sl. en vegna ófyrirsjáanlegra orsaka
var ekki hægt að minnast þess á þeim degi.
Stjórn félagsins hefur ákveðið aö hafa opið
hús að Hótel Sögu, Átthagasal, milli ki. 15 og
18 25. nóvember. Félagskonur eru hvattar til
aö h'ta inn og þiggja kaffi.
Stjórnin.
Fræðsluerindi
um siðfræði
Dr. Björn Björnsson, prófessor við
guðfræðideild H.I., mun 4 næstu fimmtu-
dagskvöld, 15. nóv., 22. nóv., 29. nóv. og 6.
des., flytja fræðsluerindi um siðfræðileg efni
á vegum Hafnarfjaröarsóknar og veröa þau
haldin í Slysavarnafélagshúsinu við Hjalla-
braut og hefjast kl. 20.30.
I fyrsta erindi sínu mun hann fjaila um
siðferðilegar grunnviðmiðanir og beina þeim
síðan að ákveðnum viðfangsefnum og vanda-
málum samtiðarinnar.
Boðið verður upp á kaffi og frjáisar
umræður í áframhaldi af hverju erindi.
Sr. Gunnþór Ingason.
Tímaritið Gangleri
síðara hefti 58. árgangs erkomið út. Blaöið er
að venju 96 bls. með greinum um andleg mál.
Meðal efnis er grein um samanburð á
skoðunum Williams James og Sigurðar Nor-
dal. Grein er um heilastarfsemi Japana og
kafh úr bók Matthíasar Jónassonar um eðh
drauma. Skyggn kona segir frá hfsútsýn sinni
og reynslu í öörum heimi. Grein er um hug-
ræna þögn og önnur eftir J. Kristhnamurti um
orð og veruleika. Greinarflokkur er um
búddisma og Siva sútrar. Einnig er grein um
snjómanninn og aðrar shkar verur sem víða
hafa sést.
Alls era 19 greinar nú í Ganglera, auk smá-
efnis.
Áskriftarverð er kr. 360. Nýir áskrifendur
fá tvö eldri blöð ókeypis. Áskriftarsími er
39573 eftirkl. 17.00.
Fréttatilkynning
Einar Sindrason, háls-, nef- og eyrnalæknir,
ásamt öðrum sérfræðingum Heymar- og tal-
meinastöðvar Islands, verður í Lundaskóla á
Akureyri dagana 23. og 24. nóv. nk.
Rannsökuð verður heyrn og tal og útveguð
heymartæki. Tekið á móti pöntunum á Heyrn-
ar- og talmeinastöð Islands i Reykjavík alla
virka daga frá kl. 10—14 i sima 91-83855 til og
með21.nóv.nk.
Samningur BSRB:
64,3 prósent
samþykktu
Nýgeröur kjarasamníngur BSRB
var samþykktur í allsherjaratkvæða-
greiðslu með 64,3% greiddra atkvæða.
Á kjörskrá voru 11.812 og kusu 9.654
eða 81,73% félagsmanna. 6.210 sam-
þykktu samninginn eöa 64,3% þeirra
sem greiddu atkvæði, 1.318 eða 13,7%
höfnuöu samningnum, 2.100 eða 21,7%
skiluöu auðu og 26 eða 0,3% gerðu ógilt.
-ÓEF.
Árnað heilla
Gefin hafa verið saman í hjónaband af
séra Gunnari Björnssyni ungfrú
Ingibjörg Gissurardóttir og örn Sigur-
jónsson. Heimili þeirra er að
Bólstaðarhlið 34.
Gefin hafa verið saman í hjónaband af
séra Halldóri Gröndal ungfrú Halldóra
Sigurðardóttir og Runólfur Sigtryggs-
son. Heimili þeirra er að Torfufelli 25.
(Stúdíó Guðmundar,
Einholti 2, tók myndirnar)
Bella
il uUI
Ég er að reyna að ná mér niður
eftir sumarfríið.