Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1984, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1984, Side 32
FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Sími ritstjórnar: 68-66 11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greið- ast 1.000 krénur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið í hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst,óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1984. John de Loraine ásamt eiginkonu sinniá „kóka'mbílnum"á meóan aiit lók í iyndi. Nú hefur hann misst hvort tveggja. 12 milljónir dollara og atvinnafyrir700 manns ef... Marilyn kemur til íslands Bandariskir bUaframleiöendur vilja fjárfesta fyrir 12 miiljónir dollara í bílaverksmiðju hér á landi, verk- smiöju sem gæti veitt 700 Islendingum atvinnu. Þetta er meðal þess er fram kemur í bréfaskriftum Loraine bíla- verksmiðjunnar til iðnaöarráðuneytis- ins og tvær helstu ástæöur fyrir Islandsáhuganum tilgreindar: Lág laun og áskjósanleg staðsetning miðja vegu milli Ameríku og Evrópu. Eins og greint hefur veriö frá í frétt- um eru Loraine bílaverksmiðjumar gjaldþrota og var eigandi þeirra og stofnandi, John de Loraine, mikið í sviðsljósinu þegar grunur lék á að hann hefði ætlað sér að bjarga gjald- þroti með stórfelldri sölu á kókaíni. Af þeirri ákæru hefur hann nú verið sýknaöur. En fyrirtækiö hefur hann misst úr höndunum svo og eiginkonu og eignir. Að sögn Hermanns Sveinbjörns- sonar, deildarstjóra í iðnaðarráðu- neytinu, er ekki ljóst hvaða aðilar það eru sem nú reyna aö rífa fyrirtækið upp úr öskustónni. Skjöl þau sem þeir hafa sent ráöuneytinu eru á stærö við símaskrá þar sem fylgja teikningar af „kókaínbílnum” sem er afar sport- legur í útliti og óvenjulegur vegna þess aö hurðir opnast í loft upp. Er hann þá líkastur h'tilli flugvél. Tegundarheitiö, sem fyrirhugað er að framleiða hér á landi, nefnist Marilyn og í skjölum Bandaríkjamannanna er þess getið að bíllinn er markaösfærður í samvinnu við Aston Martin bílaverksmiðjurnar. „Eg skrifa þeim bréf í dag og býð þeim til viðræðna hér á landi,” sagöi Hermann Sveinbjömsson, deildar- stjóri í iðnaðarráöuneytinu. -EIR. VISA Um veröld alla. LOKI Þar launaði tarfurínn of- beldið. I dag veröur Gullinbrú formlega tekin í notkun en umferð um hana hófst fyrir nokkru. Að visu er munurinn ó formlegri og óformlegri notkun ekki Ijós en þaö er önnur saga. Brúin styttír verulega leið- ina úr bænum i nýja hverfiO á Grafarholtí. Þótt hún létí ekki mikiO yfir sér þé er þetta mikið mannvirki og traust. Og ekki sakar aO brúin é nöfnu i fornum sögum. DavfO Oddsson mun taka brúna formlega i notkun klukkan 15.30. DV-mynd GVA GENGISFELUNG FYRIR VIKULOK? Gengið hefur þegar sigið um 3,5% Engin ákvörðun hefur verið tekin hana. Ræðan átti að liggja fyrir síð- ar um þær í dag. Það er ýmissa kosta um að fella gengi krónunnar gagn- asta fimmtudag til þess að talsmenn völ og menn vilja skoða þá. Þá eru vart Bandaríkjadollar. Gengið hefur annarra flokka hefðu tíma til undir- ekki öll kurl komin til grafar, til þegar sigið um 3,5% síðustu daga búnings umræðum. I gær lá ræðan dæmis liggur hvorki fyrir búvöru- vegna þess aö dollarinn hefur styrkst aðeins fyrir í drögum en i hana vant- verð né fiskverð,” sagði Steingrím- almennt. Verði ákveðin bein gengis- ar ennþá lýsingu allra næstu ráðstaf- ur. feliing sem liður í ráðstöfunum ana. „Gengið verður ekki fellt eitt sér, vegna nýgerðra kjarasamninga Formenn stjórnarandstööuþing- verði það fellt, heldur leggjum við kemur hún til framkvæmda fyrir flokka mótmæltu þessu. I morgun fram í einum pakka þær ráðstafanir vikulok. sagði forsætisráðherra DV að enn sem við teljum nauðsynlegar. Þær Stefnuræða Steingríms Hermanns- lægi ekki fyrir hvort stefnuræðan eiga að miða fyrst og fremst að því sonar forsætisráöherra er á dagskrá yröi flutt á fimmtudagskvöld. „Eg að tryggja atvinnuöryggi, vemda at- Alþingis á fimmtudagskvöld og á þá hef látið útbúa allítarlegar tillögur vinnulífið og vernda kjör þeirra sem að útvarpa henni og umræöum um um ráöstafanir og ríkisstjómin f jall- versterusettiríþjóðfélaginu.”HERB Akureyri: Af tur er ylur í göngugötu Heitt vatn er aftur farið að leika um upphitunarkerfið í göngugötunni á Akureyri og fólk því hætt að skripla þar á svelli eða vaða krap. Ekki þurfti aö koma til fundar hita- veitustjórnar eins og til stóð til að ákveða hvort vatn mætti renna í slöngunum í götunni.Hitaveitustjórinn vildi fá vatnið á varmadælur sem hita affallsvatn og senda aftur út til not- enda. Almenningur og bæjarstjóm vildi hins vegar þurra og hreina göngu- götu. Á föstudaginn lét hitaveitu- stjórinn skrúfa frá. Eftir er þó að finna heppilegt fyrirkomulag á upphitun götunnar til að koma í veg fyrir fleiri árekstra milli bæjaryfirvalda og hita- veitunnar. Á meöan það er ekki fundið ætti þó að haldast ylur í strætinu. -JBH/Akureyri. Óætum tarfi stolið úr kaupfélaginu Eins og skýrt var frá í DV á dög- unum voru tveir ungir Stöðfirðingar gripnir glóðvolgir með þrjú hreindýr sem þeir höföu skotiö í Breiödal í Suður-Múlasýslu. Lögreglan á Fá- skrúðsfirði tók síðan skrokkana í sína vörslu og kom þeim í geymslu í kaup- félaginu á Fáskrúðsfirði til bráða- birgða. A föstudaginn, þegar flytja átti skrokkana til sýslumannsins á Eski- firði, fundist aðeins tveir skrokkar, sá þriðjivar horfinn. „Það er búið að leita dymm og dyngjum í geymslunni en skrokkurinn finnst hvergi, sagði Bjarni Stefánsson, fulltrúi sýslumannsins á Eskifirði. „Þetta voru tveir tarfar og einn kálfur en nú er annar tarfurinn á bak og burt. Það getur hver sem er gengið í geymsl- una því hún er ólæst en ég trúi því varla að þetta hafi átt sér stað því það er tveggja manna tak að flytja á brott heilan tarf og þarf auk þess bíl,” sagði Bjami. Það má kalla það kaldhæðni örlag- anna að þjófarnir skyldu taka tarfinn en ekki kálfinn því nú yfir fengitímann er tarfakjöt afar bragövont og af flestum talið hið mesta óæti. -EH. Dularfull f rett í Verdens Gang -forkastanlegur fréttaflutningur, segir fréttafulltrúi Flugleiða „Þetta er forkastanlegur frétta- flutningur, bæði hjá Verdens Gang og DV,” sagði Sæmundur Guðvins- son, fréttafulltrúi Flugleiða. Tilefníð var frétt DV í gær um aðra frétt er birtist í Verdens Gang, stærsta dag- blaði Noregs, í gærmorgun þar sem sagt var frá erfiðleikum eins af flug- stjórum Flugleiða í lofti yfir Osló sem nær því varð þess valdandí að DC 9 þota f rá SAS flugfélaginu fly gi á þá íslensku. „Við fengum bréf frá norskum flugvallayfirvöldum á föstudag, dag- sett 2.11., þar sem flugstjóri okkar er beöinn um að koma til viðtals næst er hann é leið um Fornebuflugvöll í Osló," sagði Sæmdur Guövinsson. „Ekki var málið nú alvarlegra en það.” Þá sagði Sæmundur að annað í frétt Verdens Gang væri í svipuðum dúr. Þar segöi m.a. að 250 farþegar hefðu veriö í hvorri vél og þyrfti þá vel aö pakka þar sem DC 9 þota tæki ekki nema 110 farþega og Boeing þota Flugleiða, sem þarna um ræðir, tæki aðeins 131 farþega. .JFlugmennimir, sem stjórnuðu Flugleíðaþotunni í þessari ferð, tóku ekki eftir neinu óvenjulegu en upphaf málsins mun vera þaö að flugstjóri SAS vélarinnar sagði í skýrslu að hann teldi sig hafa farið of nærri Flugleiðaþotunni,” sagði Sæmundur Guðvinsson. Málið er í rannsókn. -EIR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.